Fréttablaðið - 27.07.2009, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 27.07.2009, Blaðsíða 8
8 27. júlí 2009 MÁNUDAGUR UMHVERFISMÁL Skipulagsstofnun telur að samlegðaráhrif núver- andi Reykjanesvirkjunar og fyrirhugaðrar stækkunar henn- ar séu verulega neikvæð með til- liti til landslags, nútímahrauna og verndargildis. Jarðvarmavirkjun falli illa hinni sérstæðu náttúru sem á Reykjanesi er. Þetta kemur fram í nýju áliti Skipulagsstofnunar sem birtist á fimmtudag. Leggur hún til að verði leyfi gefið fyrir stækkun- inni þurfi að setja þau skilyrði að séð verði um vöktun á áhrifum á kríu, gróður, og lífríki sjávar og fjöru í samráði við sérfræðinga. Í álitinu kemur hins vegar fram að erfitt sé að leggja mat á hver verði áhrif framkvæmdanna á jarðhita sem náttúruauðlind. Reykjanesvirkjun, sem er 100 MW jarðvarmavirkjun á miklu hverasvæði í eigu HS Orku, var gangsett árið 2006 og fyrirhugar HS Orka að stækka virkjunina um 80 til 100 MW. Frá því að virkjunin var gang- sett árið 2006 hefur gróðureyð- ing á staðnum verið umtalsverð á um 11 hektara svæði. „Það er ekki víst hvort það yrði áframhaldandi gróðureyðing við stækkunina en virkni hveranna jókst mikið þegar virkjunin var tekin í gagnið,“ segir Jakob Gunnarsson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun. Segir hann gróður ýmist hafa soðnað eða eyðst vegna þessa. Til dæmis hafi plantan naðurtunga, sem vex einungis í volgum jarð- vegi og er á válista Náttúrufræði- stofnunar Íslands, eyðst á ákveðn- um svæðum vegna aukinnar virkni jarðhitasvæða. Aukinn hiti hefur einnig eyðilagt aðstöðu sem búið var að byggja upp fyrir ferðamenn í kringum hvera- svæðið. Það hefur skaðað ferða- mennsku mikið á Suðurnesjum, samkvæmt áliti Skipulagsstofn- unar. Hins vegar sé mögulegt að stækkunin geti haft jákvæð áhrif á ferðamennsku ef hverasvæðið verður gert aðgengilegt á ný. Fyrirhugað er að 30-50 MW af stækkuninni verði með svokallaðri pækilvirkjun, sem vinnur betur orku úr þeim jarðvarma sem er til staðar. Minni áhrif eru á ýmsa umhverfisþætti með þess konar virkjun, að sögn Jakobs. Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku, segir fyrirtækið ekki reiðu- búið að tjá sig. Hann hafi fengið skýrsluna í gærmorgun og eigi enn eftir að kynna sér hana í þaula. Stefnt er að því að framkvæmd- ir hefjist í vetur og gangsetning verði 2011. vidir@frettabladid.is Stækkun gæti haft verulega neikvæð áhrif Skipulagsstofnun telur stækkun Reykjanesvirkjun- ar geta haft neikvæð áhrif. Vill stofnunin setja það skilyrði að HS Orka sjái um vöktun á ýmsum atrið- um. Mikil gróðureyðingu hlýst af virkjuninni. GRÓÐUREYÐING Gróður hefur eyðst umtalsvert á um 11 ha svæði frá því að virkjunin var gangsett árið 2006. Skipulagsstofnun telur að setja þurfi ákveðin skilyrði í leyfis- veitingu fyrir framkvæmdinni. SJÁVARÚTVEGUR Jón Kristjánsson fiskifræðingur segir að við skoð- un á löndunum á Vesturlandi hafi hann séð alla sem strandveiðar stunduðu koma með fullan kvóta, 800 kíló, af vænum þorski. Ekkert hafi verið af ýsu, ufsa eða smá- fiski. „Það er spurning hvort þetta dagsaflahámark leiði til þess að menn reyni að hámarka verðmæti aflans,“ segir Jón. Telur hann kvótakerfi á hand- færaveiðum vera hreina vitleysu og geta leitt til þess að menn velji verðmætasta fiskinn. Betra væri að hafa þetta eins og í Færeyjum þar sem menn fá ákveðinn daga- fjölda til veiða og mega landa öllu sem þeir fá. „Menn hafa ýjað að því að stund- að sé brottkast í strandveiðunum. Þetta eru sögur sem fara af stað ef mönnum mislíkar eitthvað,“ segir Arthur Bogason, formaður Lands- sambands smábátaeigenda. Trúir hann og treystir því að menn geri ekki slíka hluti og ef það sé gert „sé það í algjöru lágmarki“. Hjörleifur Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Fiskmarkaðarins á Patreksfirði, segir að engin ástæða sé til grunsemda um þetta. „Auðvitað eru bátar sem koma með stóran og fallegan fisk, það er bara af því að þeir fara á aðrar slóðir,“ segir Hjörleifur. Óvenju- mikið sé af fiski á sunnanverðum Vestfjörðum og menn hafi jafn- vel fengið fisk innst inni í fjarðar- botni. - vsp Strandveiðamenn búnir að fylla kvótann: Engin ástæða til gruns um brottkastALÞINGI „Vegna mikilla anna við undirbúning fjárlaga auk sumar-leyfa treystir ráðuneytið sér ekki til að veita svarið nú en mun taka þessar upplýs- ingar saman svo fljótt sem auðið er.“ Svo segir í svari Jóns Bjarna- sonar, sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra, við fyrirspurn Helga Hjörvar Samfylkingunni um hve miklum fjármunum hefur verið veitt til kynningarstarfs vegna hvalveiða. Spurningin er ítarleg og óskar Helgi margvíslegra sundurgrein- inga á framlögum. Í svarinu segir þó að kynning á málstað Íslands varðandi hvalveiðar hafi verið víð- tæk. - bþs Þingmaður óskaði upplýsinga: Annir og sumar- leyfi tefja svör JÓN BJARNASON 1 Hver er fastafulltrúi Alþjóða- gjaldeysissjóðsins á Íslandi? 2 Hvaða kantmaður úr karlaliði Vals í knattspyrnu hefur gengið til liðs við Þrótt á lánssamningi? 3 Hvað heitir læknir Michaels Jackson, sem grunaður hefur verið um græsku í tengslum við andlát poppgoðsins? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 22 Það er ekki víst hvort það yrði áframhaldandi gróðureyðing við stækkunina en virkni hveranna jókst mikið þeg- ar virkjunin var tekin í gagnið. JAKOB GUNNARSSON SÉRFRÆÐINGUR HJÁ UMHVERFISSTOFNUN STJÓRNMÁL Sveitarfélögin í land- inu voru rekin með samtals rúm- lega nítján milljarða króna halla á síðasta ári. Séu fyrirtæki í eigu sveitarfélaganna tekin með í reikninginn (samstæðureikning- ar) nam tapið rúmlega 109 millj- örðum. Fjárhagsáætlanir gera ráð fyrir að rekstrartapið verði rúm- lega 1,5 milljarðar á þessu ári og að um 15 milljarða afgangur verði af samstæðureikningum. Gengis- sveiflur hafa mikil áhrif á sam- stæðureikningana. Þessar upplýsingar er að finna í svari samgönguráðherra við fyrir- spurn Birkis Jóns Jónssonar, þing- manns Framsóknarflokksins. Fram kemur að Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga telur ástæðu til að skoða sérstaklega fjárhag 10-15 sveitarfélaga. Samanlagðar skuldir sveitar- félaganna hækkuðu um tæpa 60 milljarða króna frá 2007 til 2008 og námu um áramót 155 milljörð- um. Skuldir samstæðnanna jukust um tæpa 200 milljarða og stóðu um áramót í tæpum 450 milljörðum. Halldór Halldórsson, formað- ur Sambands sveitarfélaga, segir stöðu sveitarfélaganna augljós- lega mjög erfiða enda hafi skellur- inn síðasta haust verið rosalegur. Sveitarfélögin hafi mætt minnk- andi tekjum með aðhaldi í rekstri en ríkið svo tekið til sín hluta hag- ræðingarinnar með auknum álög- um, til dæmis hækkuðu trygginga- gjaldi. - bþs Eftirlitsnefnd skoðar bágan fjárhag tíu til fimmtán sveitarfélaga: Ríkið hefur þyngt byrðarnar HALLDÓR HALLDÓRSSON formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. KOSNINGAR Fyrsta umræða um persónukjör til alþingis- og sveitarstjórnakosninga fór fram á föstudag. Mælti Ragna Árna- dóttir dómsmálaráðherra fyrir frumvarpinu. Upptaka persónu- kjörs er meðal forgangsverkefna ríkisstjórnarinnar og hluti af „lýðræðisumbótum sem ríkis- stjórnin telur nauðsynlegar“. Frumvarpinu var vísað til alls- herjarnefndar, eins og alltaf eftir fyrstu umræðu, og fer önnur umræða líklega fram eftir versl- unarmannahelgina. Stefnt er að því að fyrst verði notast við nýja kerfið í sveitarstjórnakosningun- um á næsta ári. - vsp Frumvarp um persónukjör: Vísað til alls- herjarnefndar VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.