Fréttablaðið - 27.07.2009, Blaðsíða 15
27. JÚLÍ 2009
Fasteignasalan Miklaborg er
með til sölu einbýlishús við
Urðarás í Garðabæ.
E inbýlishús við Urðarás 6 í Garðabæ hefur bæst á skrá hjá Fasteignasölunni Miklu-
borg. Húsið er samtals 221,6 fer-
metrar með sólstofu og tvöföldum
bílskúr og býður upp á stækkunar-
möguleika. Garðurinn er gróinn,
timburpallar eru við húsið og heit-
ur pottur á verönd. Frá húsi er gott
útsýni til Bessastaða, út á Gróttu
og til Reykjavíkur.
Eign skiptist með eftirfarandi
hætti. Komið er inn í flísalagða
forstofu. Við tekur flísalagt hol.
Herbergi eru þrjú, öll parketlögð
og eitt með stórum skápum. Bað-
herbergi er flísalagt, með bað-
kari, sturtu, innréttingu og upp-
hengdu salerni. Þvottahús er flísa-
lagt og með vinnuborði. Þaðan er
innangengt í bílskúr sem er með
geymsluloft að hluta. Útgangur er
á steyptan pall með heitum potti.
Stofur eru samliggjandi og með
parketlagt gólf. Þar er aukin loft-
hæð. Útgengt er í sólstofu, sem er
upphituð og með flísalögðu gólfi.
Frá stofu er einnig útgangur út í
garð. Eldhús er með flísalagt gólf
og vandaðri innréttingu.
Getur losnað fljótlega.
Sólstofa og heitur pottur
Timburpallar eru við húsið og heitur pottur á verönd. MYND/ÓHR MYNDIR
fasteignir
Jón Guðmundsson, lögg. fast.sali.
Til sölu mjög falleg og áhugaverð jörð í Strandasýslu
Um er að ræða c.a. 1.100 hektara jörð stutt frá Hólmavík. Jörðin er
gamalt höfuðból. Ræktuð tún jarðarinnar eru ca 35 ha. Jörðin á hlut
í veiðirétti í tveim ám og hafa verið seld veiðileyfi í árnar. Góður húsa-
kostur er á jörðinni, íbúðarhús byggt 1981 á tveim hæðum ca 200
fm og eldra íbúðarhús 188 fm. Fjárhús sem rúmar 520 fjár, 200 fm
flatgryfja byggð 1979 og hesthús fyrir 3 – 4 hross.
Hér er um að ræða verðmætan möguleika fyrir réttan aðila.
Upplýsingar í síma 896 2822
Jörð í Strandasýsluí l
F
ru
m
Magnús Emilsson, löggiltur fasteignasali
Bæjarhrauni 10 - Hafnarfirði - Sími 520 7500 - www.hraunhamar.is