Fréttablaðið - 10.07.2009, Page 19
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
SÆLUHELGIN á Suðureyri við Súgandafjörð er hafin og
stendur fram á sunnudag. Sæluhelgin er ein elsta bæjar hátíð
landsins. Fastur liður í hátíðahöldunum er Mansakeppnin
sem er veiðikeppni sem haldin verður nú í 22. sinn.
„Múffurnar eru heilsusamlegar
því í þeim eru gulrætur, epli og
hreinn appelsínusafi, rúsínur og
hnetur,“ segir Harpa Örvars dóttir
listakona. „Ég nota hrásykur í stað-
inn fyrir sykur og ekkert súkku-
laði. Múffurnar eru seðjandi og
æðislegar með smjöri og osti.“
Harpa segist hafa komist yfir
uppskriftina að múffunum í Kan-
ada. „Þessar múffur eru líkar þeim
sem fást á Starbucks í Ameríku,“
upplýsir Harpa og bætir við að
hún hafi bakað þær á Kaffi Tröð
á Akureyri. „Ég fæ aldrei leið á að
baka þær. Ég bakaði þær á hverj-
um degi en núna er þetta ekkert
á borðum hvern einasta morgun,“
segir Harpa hlæjandi.
Af hvaða tilefni gerir Harpa
múffurnar? „Þetta er góður
morgun matur listamannsins um
helgar,“ útskýrir Harpa en hún
býr og starfar í Kvosinni í Mos-
fellsbæ og er þetta ein af hennar
uppáhaldsuppskriftum.
Harpa segir að múffurnar séu
góðar með svalandi drykk á sumr-
in sem vinkona hennar frá Akur-
eyri gaf henni uppskrift að.
martaf@frettabladid.is
Múffur og svalandi safi
Harpa Örvarsdóttir rak kaffihúsið Kaffi Tröð á Akureyri fyrir nokkrum árum og þar bauð hún upp á
heilsumúffur sem voru mjög vinsælar. Hún gefur nú lesendum Fréttablaðsins uppskriftina að þeim.
2 bollar hveiti
1 1/3 bolli hrásykur
2 tsk. lyftiduft
2 tsk. kanill
1/4 tsk. múskat
1/2 tsk. salt
2 bolli rifnar gulrætur
1/4 bolli rúsínur
1/2 bolli saxaðir val-
hnetukjarnar
1/2 bolli kókosmjöl
1/2 bolli afhýðað, rifið
epli
3 stór egg
3/4 bolli olía
1/4 bolli appelsínusafi
2 tsk. vanillusykur
Hrærið saman gulrót-
um, rúsínum, hnetum,
kókosmjöli og epli í
skál. Hrærið eggjum,
olíu, appelsínusafa og
vanillusykri saman í
annarri skál. Blandið
öllu vel saman og setj-
ið í múffu-álbakka.
Stillið ofninn á 175
gráður og bakið á
blæstri í 35 mínútur.
Látið múffurnar kólna
í fimm til tíu mínútur
og takið þær svo úr
bakkanum og látið
kólna lengur.
Svalandi sumardrykkur
3 bollar appelsínusafi
1 bolli ananassafi
3/4 bolli safi úr sítrónu
3/4 bolli safi úr lime
2 vanillustangir
1/2 l engiferöl
Mikið af ís
Blandið öllu saman
í könnu og skerið
vanillustangirnar endi-
langar, skafið innan
úr þeim og setjið út í
drykkinn. Gott er að
setja stangirnar sjálfar
út í svo þær gefi enn
meira bragð. Hrærið
vel saman og geymið
í kæli. Berið fram með
mikið af klaka til að
gera drykkinn ferskari.
MÚFFUR LISTAMANNSINS
Fimmtán hollar múffur
Hörpu Örvarsdóttur finnst bæði gaman
að baka og elda en áhugi á elda-
mennsku er mikill í fjölskyldu hennar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207
Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is
H
rin
gb
ro
t
6.890 kr.
4ra rétta tilboð
og nýr A la Carte
Gjafabréf PerlunnarGóð tækifærisgjöf!
Hægt er að panta 4ra rétta seðilinn
með sérvöldu víni með hverjum rétti: 10.990 kr.
Barolo „Ornato“ 2004 | Ítalía.
Chablis Grand Cru ,,Les Clos” 2005 | Frakkland
Glas af eðalvíni
Nú hefur veitingahúsið Perlan bætt við möguleikanum að velja
sér glas af 16 eðalvínum með mat. Verð frá 1.050-3.700 kr.
Sjá nánar á perlan.is.
· Reykt önd með fíkjum, valhnetum og rauðvínsgljáa ·
· Humarsúpa rjómalöguð með grilluðum humarhölum ·
· Lambahryggur með lambaskanka og rósmarínsósu ·
* E Ð A *
· Fiskur dagsins útfærður af matreiðslumönnum Perlunnar ·
· Skyr “Tonka crème brûlée” með karamelluís ·
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið