Fréttablaðið - 10.07.2009, Síða 32

Fréttablaðið - 10.07.2009, Síða 32
20 10. júlí 2009 FÖSTUDAGUR STEFÁN KARL STEFÁNSSON LEIKARI ER 34 ÁRA. „Sem leikara og listamanni fannst mér hins vegar nóg komið af sælgætisáti og prakkarastrik- um og tel rétt að hleypa öðrum að.“ Svo mælti Stefán Karl Stefánsson þegar hann ákvað að hætta í Lata- bæ og stíga á svið sem Trölli í söng- leiknum Þegar Trölli stal jólunum. Hið íslenska biblíu- félag var stofn- að á þess- um degi árið 1815 og hafði þá einkarétt á útgáfu Biblíunn- ar á Íslandi. Var félag- ið stofnað til að vinna að út- gáfu og útbreiðslu Biblíunn- ar á Íslandi fyrir tilstuðlan ensks manns er hét Ebenezer Hend- erson en hann var hér á ferð á vegum hins volduga enska biblíufélags. Hið íslenska biblíufélag er elsta starfandi félagið á Ís- landi og þegar það varð 175 ára árið 1990 þá gáfu bankarnir á Íslandi félaginu Guðbrands- biblíu, sem verið hafði í eigu Halldóru, dótt- ur Guðbrands Þor- lákssonar biskups á Hólum, en hann stóð fyrir fyrstu út- gáfu Biblíunnar á ís- lensku. Útgáfuár Guð- brandsbiblíu samkvæmt tit- ilblaði er 1584. Guðbrandsbiblía hefur tvisv- ar verið ljósprentuð sem næst upprunalegri mynd. Lithoprent sá um fyrri útgáfuna árið 1956. Bókaútgáfan Lögberg gaf bók- ina út aftur árið 1984, þegar minnst var 400 ára afmælis Guðbrandsbiblíu. ÞETTA GERÐIST: 10. JÚLÍ 1815 Biblíufélag stofnað „Mótið heitir Sunnumótið og er haldið til heiðurs konu sem heitir Sunna Hlín Gunnlaugsdóttir, en hún hefur starfrækt vefinn vodvafikn.net og hefur skrifað margar og góðar greinar fyrir okkur sem stundum þessa íþrótt,“ segir Rúnar Friðriksson, mótsstjóri og upphafsmaður Sunnumótsins sem haldið verður í fyrsta sinn á morgun, 11. júlí. „Sunna Hlín hefur haldið þessum vef úti af miklum krafti og hefur ferðast um allt land til að sækja viðburði sem tengj- ast kraftlyftingum, þó hún hafi aldrei keppt sjálf. Reyndar keppti hún einu sinni í fitness en hefur annars brennandi áhuga á kraftlyftingum. Eitt kvöldið var ég að spjalla við hana á msn og var að stríða henni á því að hún hefði aldrei keppt í kraftlyftingum og þótti henni það sjálfri eigin lega ófært. Þá fékk ég skyndilega þá hugmynd að halda mót henni til heiðurs og fyrir allar konur sem áhuga hafa á krafta- íþróttum,“ segir Rúnar einlægur. Sunnumótið er kraftlyftingamót eingöngu ætlað konum og er hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. „Mótið verður haldið á stóru sviði í verslunarmiðstöðinni Glerártorgi á Akureyri undir fána Kraftlyftingafélags Akureyrar, KFA, en ég hef verið að skipuleggja mótið og er mótsstjóri. Konan mín, Inga Björk Harðardóttir, er meðal þátttakenda og hefur unnið hörðum höndum við að skipuleggja mótið með mér,“ segir Rúnar spenntur. „Ég reiknaði með því að það yrðu fjórar til fimm konur sem tækju þátt og ætlaði ég að halda mótið í litl- um sal sem við höfum til afnota í íþróttahöllinni á Akureyri en þátttaka fór fram úr mínum björtustu vonum. Nú ætla tuttugu og þrjár konur að taka þátt og er það meira en ég þorði nokkurn tíma að vona,“ segir hann ánægður og bætir við: „Bróðurparturinn af kraftlyftingamönnum er nú kom- inn í Íþróttasamband Íslands (ÍSÍ) sem fullgildir meðlimir. Síðustu mót sem haldin hafa verið af Kraftlyftingasambandi Íslands hafa verið mjög vel sótt og því virðist inngangan í ÍSÍ hafa gefið íþróttinni nýja innspýtingu. Við erum því að sjá mun fleiri iðkendur en nokkurn tíma áður.“ Rúnar segist vilja vekja athygli á því að kraftlyftingar séu í raun íþrótt fyrir alla og henti prýðilega konum á öllum aldri. „Þó svo það hafi ekki virst þannig í gegnum tíðina þá er kraftaþjálfun í raun hentug fyrir flesta. Lyftingar vinna til dæmis gegn beinþynningu og er margt gott sem hlýst af þessari þjálfun.“ Mótið er opið og því keppt í einum flokki. „Keppt er í bekk- pressu og réttstöðulyftu og veitum við verðlaun fyrir besta árangurinn í hvoru tveggja. Síðan veitum við stigahæstu konu mótsins verðlaun og verður hún þá krýnd Sunnumeist- ari. Þetta fyrirkomulag verður svo endurskoðað að ári og þá höfum við þetta kannski meira aldursskipt eða í fleiri flokk- um, mér þykir það ekki ólíklegt,“ segir Rúnar og nefnir að keppt sé eftir reglum IPF sem eru alþjóðasamtök kraftlyft- ingamanna undir armi íþrótta- og ólympíusambandsins. „Við keppum því eftir alþjóðlegum reglum. Það eina sem er dá- lítið öðruvísi við þetta mót er að við sleppum hnébeygjunni til að einfalda mótið að þessu sinni. En Sunnumótið verður klárlega árviss atburður á Akureyri hér eftir, tileinkaður konum.“ hrefna@frettabladid.is RÚNAR FRIÐRIKSSON: HELDUR SUNNUMÓT Kraftlyftingar fyrir konur FRAM ÚR BJÖRTUSTU VONUM Rúnar segir þátttöku í Sunnumótinu vera gríðarlega góða og hafi hún í raun komið sér skemmtilega á óvart. MYND/ÚR EINKASAFNI Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir amma og langamma, Sigríður Sveinsdóttir frá Grund II, Borgarfirði eystri, lést fimmtudaginn 9. júlí sl. Minningarathöfn fer fram frá Fossvogskapellu mánudaginn 13. júlí nk. kl. 15.30. Útför frá Bakkagerðiskirkju verður auglýst síðar. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, tengdasonur og bróðir, Atli Thoroddsen flugmaður, Þrastarási 24, Hafnarfirði, lést á krabbameinsdeild 11E á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn 7. júlí. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 16. júlí kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað en þeim sem vilja minnast hans er bent á Karítas, hjúkrunar- og ráð- gjafarþjónustu. Ásta Hallgrímsdóttir Andrea Thoroddsen Júlíana Thoroddsen Þ órunn Christiansen Björn Thoroddsen Margrét Linda Gunnlaugsdóttir Hallgrímur Jónsson Guðríður Þórhallsdóttir systkini og aðrir aðstandendur hins látna. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, Skúla Skúlasonar Jörundarholti 32, Akranesi. Margrét Guðríður Rögnvaldsdóttir Rögnvaldur Skúlason Björg Skúladóttir Víðir Jónasson Helga María Skúladóttir og afabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Hildimundur Sæmundsson Túngötu 4, Álftanesi, lést þann 7. júlí. Jarðarförin auglýst síðar. Aðalheiður Sigurdís Steingrímsdóttir Steingrímur Hildimundarson Steinhildur Hildimundardóttir Leifur Eysteinsson Kristín Hildimundardóttir Jón Gunnsteinsson Sæmundur Hildimundarson Nancy Rut Helgadóttir og barnabörn. Okkar innilegustu þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs eigin- manns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, Aðalmundar Jóns Magnússonar flugvélstjóra, Starhaga 9. Hann var jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 8. júlí sl. Hilke Jakob Magnússon Auður Aðalmundardóttir Sævar Þór Guðmundsson Konrad Garðar Aðalmundsson Unnur Ýr Jónsdóttir Henning Þór Aðalmundsson Berglind Rut Magnúsdóttir Magnús Ingi Aðalmundsson Sunna Björk Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, sonur, bróðir og afi, Reynir Helgason Álfheimum 34, andaðist mánudaginn 6. júlí. Jarðarförin fer fram fimmtudaginn 16. júlí kl. 13.00 í Fossvogskapellu. Björg Gísladóttir Berglind Reynisdóttir Samson Magnússon Sveinbjörg Jónsdóttir Jón Helgason Stefanía Björnsdóttir og barnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir , afi og langafi, Magnús Þórarinsson frá Hjaltabakka, lést á heimili sínu Bergstaðastræti 11 sunnudaginn 5. júlí. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju þriðju- daginn 14. júlí kl. 15.00. Þórarinn Sigvaldi Magnússon Anna Magnea Ólafsdóttir Guðbergur Magnússon Guðný Ragnarsdóttir Þórir Skafti Magnússon Matthildur Guðmannsdóttir Stefán Magnússon Guðbjörg Ása Andersen Jóhannes Magnússon Elsa Björnsdóttir Helgi Magnússon Sigríður G. Pálsdóttir Svanhildur Magnúsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Jón Björnsson fyrrv. frystihússtjóri Kirkjubæjarklaustri, andaðist á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Klausturhólum mánudaginn 6. júlí. Jarðarförin fer fram frá Prestsbakkakirkju á Síðu laugardaginn 11. júlí kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Velunnarasjóð Klausturhóla reikn. 0317-13-771176 kt. 700399-2739. Björn Vignir Jónsson Þóra Sen Ásgeir Jónsson Drífa Ingimundardóttir Birgir Jónsson Bryndís Guðgeirsdóttir Gunnar Þór Jónsson Sveinbjörg Pálsdóttir og fjölskyldur. timamot@frettabladid.is AFMÆLI Helgi Björns- son leikari og söngvari er 51 árs. Jessica Simp- son söngkona er 29 ára.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.