Fréttablaðið - 10.07.2009, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 10.07.2009, Blaðsíða 42
30 10. júlí 2009 FÖSTUDAGUR Fjölnisvöllur, áhorf.: Óuppgefið Fjölnir Stjarnan TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 10–11 (4–6) Varin skot Hrafn 5 – Bjarni 1 Horn 4–6 Aukaspyrnur fengnar 14–10 Rangstöður 7–0 STJARNAN 4-5-1 Bjarni Þórður Halld. 4 Bjarki Eysteinsson - (55. Baldvin Sturlus. 5) Guðni Rúnar Helgas. 5 Daníel Laxdal 4 Hafsteinn Helgason 4 Jóhann Laxdal 5 Björn Pálsson 5 Halldór Orri Björns. 6 Birgir Birgisson 6 (77. Richard Hurlin -) Magnús Björgvins. 6 (86. Heiðar Atli -) Ellert Hreinsson 6 *Maður leiksins FJÖLNIR 5-2-3 *Hrafn Davíðsson 7 Illugi Þór Gunnars. 6 Ásgeir Ásgeirsson 5 Ólafur Johnson 5 Gunnar Valur G. 5 Vigfús Arnar Jós. 5 Magnús Ingi Einars. 6 Gunnar Már Guðm. 6 Tómas Leifsson 6 (88. Aron Jóhanns. -) Jónas Grani Garð. 6 (84.Ragnar Heimir -) Andri V. Ívarsson 7 (74. Kristinn Sig. -) 1-0 Andri Valur Ívarsson (36.) 1-1 Magnús Björgvinsson (55.) 2-1 Jónas Grani Garðarsson (76.) 3-1 Gunnar Már Guðm., víti (83.) 3-1 Þorvaldur Árnason (7) sport@frettabladid.is Kaplakrikavöllur, áhorf.: 1758 FH Fylkir TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 13–4 (3–2) Varin skot Daði 0 – Fjalar 2 Horn 7–5 Aukaspyrnur fengnar 16–12 Rangstöður 3–5 FYLKIR 4–3–3 Fjalar Þorgeirsson 5 Andrés Már Jóh. 6 Kristján Valdimars. 6 Einar Pétursson 4 Tómas Þorsteinsson 4 (42. Jóhann Þórhalls. 5) Valur Fannar Gíslason 6 (46., Ólafur Stígsson 6) Ásgeir Börkur Ásg. 7 Halldór Hilmisson 5 Ingimundur Níels 6 Albert Ingason 6 (64. Pape Faye 5) Kjartan Breiðdal 6 FH 4–3–3 Daði Lárusson 4 Pétur Viðarsson 6 Tommy Nielsen 7 Freyr Bjarnason 4 (42. Sverrir Garðars 7) Hjörtur Logi Valg. 6 Davíð Þór Viðars. 6 Ásgeir Gunnar Ásg. - (12. A. Söderlund 6) Tryggvi Guðmunds. 6 (50. Hákon Hallfreð.5) Matthías Vilhjálms. 6 *Atli Viðar Björns. 7 Atli Guðnason 7 1-0 Atli Viðar Björnsson (2.) 1-1 Ingimundur N. Óskarsson (10.) 1-2 Kjartan Ágúst Breiðdal (18.) 2-2 Atli Viðar Björnsson (41.) 3-2 Matthías Vilhjálmsson (86.) 3-2 Kristinn Jakobsson (6) > Guðbjörg búin að halda markinu hreinu í 400 mínútur Guðbjörg Gunnarsdóttir er að spila vel þessa dagana með sænska liðinu Djurgården en í fyrrakvöld hélt hún marki sínu hreinu fjórða leikinn í röð og það á útivelli á móti toppliði Umeå IK. Guðbjörg hefur nú haldið marki sínu hreinu í 400 mínútur og alls í sex af þeim tíu leikjum sem hún hefur spilað til þessa í sænsku deildinni. Guðbjörg hefur samtals fengið á sig 9 mörk í þeim 10 leikjum sem hún hefur spilað í deildinni og Djurgården hefur náð í 22 af 27 stigum í boði (81 prósent) í þeim leikjum sem hún hefur klárað. Djurgården náði aðeins í 4 af 18 stigum (22 pró- sent) í boði án hennar. Pepsideild karla FH 12 11 0 1 35-8 33 KR 11 6 3 2 20-12 21 Stjarnan 11 6 2 3 26-15 20 Fylkir 11 6 2 3 21-13 20 Keflavík 10 5 3 2 18-15 18 Valur 10 5 1 4 11-16 16 Breiðablik 10 3 3 4 15-17 12 Fram 10 3 2 5 11-13 11 Fjölnir 11 2 2 7 13-23 8 Grindavík 10 2 2 6 11-23 8 ÍBV 10 2 0 8 7-19 6 Þróttur 10 1 2 7 9-23 5 Evrópudeild UEFA The New Saints FC-Fram 1-2 (2-4 samanl.) 1-0 Steve Evans (11.), 1-1 Almarr Ormarsson (16.) 1-2 Sam Tillen (vsp 66.) Keflavík-Valletta 2-2 (2-5) 0-1 Falzon (41.), 1-1 Jón G. Eysteinsson (55.), 2-1 Jóhann B. Guðmundsson (72.), 2-2 Priso (82.) 1. deild karla Þór-Afturelding 3-2 1-0 Ármann Ævarsson (27.), 1-1 Paul Clapson (34.), 2-1 Alexander Linta (vsp 50.), 2-2 Paul Clapson (vsp 64.), 3-2 Hreinn Hringsson (84.) HK-ÍA 2-1 1-0 Calum Þór Bett (23.), 1-1 Arnar Gunn laugsson (29.), 2-1 Aaron Palomares (70.) Selfoss-Haukar 2-2 0-1 Ásgeir Þór Ingólfsson (16.), 0-2 Pétur Á. Sæmundsson (39.), 1-2 Sævar Þór Gíslason (40.). 2-2 Sævar Þór Gíslason (89.). STAÐA EFSTU LIÐA Selfoss 10 7 2 1 21-11 23 Hauakr 10 6 2 2 21-13 20 KA 9 4 5 0 13-5 17 HK 10 5 2 3 19-14 17 ÚRSLITIN Í GÆR Framarar tryggðu sér sæti í 2. umferð undankeppni Evrópudeild- arinnar með 2-1 útisigur á The New Saints F.C. í seinni leik liðanna. Fram komst áfram 4-2 samanlagt. „Þetta var mjög flott að klára þetta,” sagði Þorvaldur Örlygs- son, kátur þjálfari Framliðsins eftir leikinn. Líkt og í fyrri leiknum lenti Framliðið undir snemma leiks en Framarar gáfust ekki upp frekar enn í fyrri leiknum, Almarr Ormarsson jafnaði leikinn fimm mínútum síðar og Sam Tillen skoraði síðan sigurmarkið úr vítaspyrnu á 66. mínútu. „Markið hans Almarrs var gríðarlega mikilvægt fyrir okkur, því það róaði bæði taugarnir og leikinn,“ sagði Þorvaldur. Heimamenn byrjuðu seinni hálfeik af krafti en Framliðið vann sig aftur inn í leikinn. „Við fáum víti þar sem þeir voru heppnir að missa ekki mann líka út af. Eftir það var bara eitt lið á vellinum sem var að reyna að spila boltanum en hitt liðið var bara að tuddast og hlaupa eins og naut í flagi,” sagði Þorvaldur. Framarar mæta tékkneska liðinu Sigma Olomouc í næstu umferð og er fyrri leikurinn strax í næstu viku. „Þegar menn ná árangri þá koma fleiri leikir og það þýðir ekkert að kvarta yfir því,” segir Þor- valdur en árangur Framliðsins færir liðinu um 16 milljónir íslenskra króna í kassann. „Það veitir ekki af að fá pening inn í klúbbinn því það er ekki endalaust til af dósum í hverfinu,“ segir Þorvaldur. Keflvíkingar náðu ekki að komast áfram en þeir töpuðu 2-5 samanlagt fyrir Valetta eftir 2-2 jafntefli í Keflavík í gær. „Það hefði verið gaman ef Keflavík hefði tekist að snúa þessu við og komast áfram og svo vonar maður sannarlega að KR-ingarnir og FH-ingarnir nái að komast lengra. Það er takmarkið að gera knattspyrnuna á Íslandi betri og setja hana á hærra plan. Það gerum við ekki bara með því að vinna leiki heldur einnig með að þjálfarar fari utan og sæki námskeið,” segir Þorvaldur og hann og Framarar geta fagnað frábærri byrjun í fyrstu Evrópukeppni félags- ins í 17 ár. „Framarar voru vanir því hér áður að vera í Evrópukeppni og fá góðar ferðir. Þetta var góð ferð og ekki bara túrista-ferð,“ sagði Þorvaldur að lokum. ÞORVALDUR ÖRLYGSSON, ÞJÁLFARI FRAM: FRAMARAR KOMNIR ÁFRAM EFTIR SIGUR Á THE NEW SAINTS FC Það er ekki endalaust til af dósum í hverfinu FÓTBOLTI Fjölnismenn unnu sinn annan sigur í sumar í Pepsi-deild karla þegar þeir unnu sigur á spútnikliði Stjörnunnar í gær- kvöldi. Þeir laumuðu sér þar með upp úr fallsæti. „Ég held ég verði að vera sáttur. Ég verð að hrósa strákunum fyrir mikla vinnu og menn eru farnir að gera sér grein fyrir því að það verður að leggja allt í sölurnar og berjast vel og þá uppskera menn eftir því,“ sagði Ásmundur Arnars- son, þjálfari Fjölnis, í leikslok. Stjörnumenn voru fremur væng- brotnir sóknarlega en í lið þeirra vantaði þá Steinþór Þorsteinsson og Arnar Má Björgvinsson sem hafa farið mikinn í sumar. Það tók þá tíma að átta sig á því og Fjölnis- menn voru ívið sterkari aðilinn. Undir lok hálfleiksins urðu Magnúsi Björgvinssyni Stjörnu- manni á skelfileg mistök þegar sending hans til baka á Bjarna markvörð fór beint í fæturna á Andra Val Ívarssyni sem þakkaði pent fyrir sig og skoraði auðveld- lega. Staðan því 1-0 í hálfleik. Stjörnumenn mættu brjálaðir til leiks í síðari hálfleik og á 55. mín- útu náði Magnús að bæta fyrir mis- tökin og jafna. Eftir markið voru Stjörnumenn oft aðgangsharðir við mark Fjölnis en það voru hins vegar heimamenn sem voru sterk- ari í lokin og skoruðu þá tvö mörk. Fyrst Jónas Grani Garðarsson og síðan Gunnar Már Guðmundsson með marki úr vítaspyrnu. Stjörnumenn voru vægast sagt ósáttir við annað mark Fjölnis og töldu Jónas Grana hafa lagt bolt- ann fyrir sig með hendinni. Þor- valdur dómari dæmdi hins vegar ekkert og markið stóð. 3-1 voru lokatölur leiksins og nokkuð sann- gjarn sigur Fjölnis staðreynd. „Maður er alltaf smeykur við Stjörnuna. Við vissum að þeir kæmu brjálaðir í seinni hálfleik. Þeir gerðu það og trufluðu okkur verulega með hraða sínum. En svo komumst við í gírinn aftur og náðum jafnvægi í þessu,“ bætti kampakátur Ásmundur við í lokin. - sjj Fjölnismenn unnu sinn fyrsta sigur í deildinni í tæpa tvo mánuði þegar Garðbæingar komu í heimsókn: Sanngjarn baráttusigur Fjölnismanna FJÖLNISSIGUR Hafsteinn Helgason og Andri Valur Ívarsson eigast við í Grafar- voginum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR FÓTBOLTI Sævar Þór Gíslason tryggði Selfyssingum jafntefli gegn Haukum í toppslag 1. deild- ar karla sem fram fór í gær. Sævar jafnaði metin á 89. mínútu í 2-2 sem urðu lokatölur. Sævar Þór hefur nú skorað átta mörk í síðustu þremur leikjum Sel- fyssinga í deildinni en í síðustu umferð skoraði hann öll fjögur mörkin í 4-0 sigri á Aftureldingu. Haukamenn byrjuðu betur á Selfossi í gær og komust tveimur mörkum yfir. - egm Toppslagur 1. deildar: Sævar Þór fer hamförum FÓTBOLTI FH lagði Fylki, 3-2, í blíð- viðrinu í Hafnarfirði í Pepsídeild- inni í gær þrátt fyrir að missa fjóra leikmenn út af vegna meiðsla. Það tók FH aðeins tvær mínút- ur að ná forystunni í Krikanum í gær en þá var eins og heimamenn, sem nú hafa unnið ellefu leiki í röð í deildinni, héldu að hlutirnir kæmu að sjálfu sér og það boðar ekki gott gegn Fylki þar sem hver einn og einasti leikmaður berst eins og ljón, sama hvar spilað er og hver staðan er. Fylkismenn jöfnuðu á tíundu mínútu og komust yfir átta mín- útum síðar með frábæru marki Kjartans Ágústs Breiðdal beint úr aukaspyrnu. FH-ingar misstu dampinn í nokkrar mínútur á eftir en náðu að hrista af sér slenið og sóttu linnulaust síðustu tuttugu mínútur hálfleiksins á sama tíma og Fylkismenn bökkuðu óþarf- lega mikið aftur. Það var svo fjór- um mínútum fyrir hálfleik að FH jafnaði metin en markið hafði legið í loftinu. FH missti sinn fjórða leikmann út af vegna meiðsla þegar enn var hálftími eftir af leiknum en var sterkari aðilinn þrátt fyrir það en mun minna var um færi hjá báðum liðum en í hinum bráðfjöruga fyrri hálfleik. Matthías Vilhjálmsson tryggði FH sigurinn fjórum mínútum fyrir leikslok en Matthías lék í stöðu hægri bakvarðar eftir að Hjörtur Logi fór meiddur út af en Matthías leikur jafnan á miðjunni eða frammi. Ólafur Þórðarson þjálfari Fylkis var að vonum svekktur að fá ekkert út úr leiknum. „Við erum í þessu til að vinna en því miður tókst það ekki í dag. Við höfum sýnt mikinn karakter í sumar og ætlum ekki að hætta því. Þetta var hörku leikur og okkur vantaði meiri reynslu til að klára þetta.“ „Við vorum komnir með þetta í hendurnar en gleymum okkur. Svona er boltinn, þeir eru með gott lið og voru skynsamari en við í þessum leik. Það hafa ekki mörg lið ekki tekið almennilega á þeim en við gerðum það og þess vegna lentu þeir í vandræðum gegn okkur,“ sagði Ólafur. Davíð Þór Viðarsson, fyrir- liði FH, var mun sáttari en Ólaf- ur í leikslok.„Þetta var alvöru leikur. Fylkismenn eru með mjög gott og vel spilandi lið og við lent- um í miklum vandræðum,“ sagði Davíð. „Stundum höfum skorað snemma og rúllað yfir leikina og stundum lent í vandræðum, það er allur gangur á því. Við vöknuðum við það að þeir skoruðu annað markið og síðasta korterið í fyrri og seinni hálfleikurinn var fínn hjá okkur.“ „Það var svekkjandi að vera einum færri í hálftíma en við sýnd- um mikinn karakter að klára leik- inn. Það er mikill kraftur í þessu Fylkisliði og það er eitt af þeim bestu í þessari deild þannig að það var mjög sterkt að koma til baka,“ sagði Davíð að lokum. -gmi Tólf stiga forysta FH-inga Matthías Vilhjálmsson tryggði FH-ingum sigur á baráttuglöðum Fylkismönn- um í Kaplakrika í gær. Þetta var ellefti deildarsigurliðsins liðsins í röð. SIGURMARK Matthías Vilhjálmsson tryggði FH 3-2 sigur á Fylki með marki fjórum mínútum fyrir leikslok. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR MARKAHÆSTUR Atli Viðar Björnsson sækir boltann í markið eftir að hafa skorað annað tveggja marka sinna í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.