Fréttablaðið - 14.08.2009, Blaðsíða 18
18 14. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR
Ísland og Evrópusambandið
UMRÆÐAN
Jón Baldvin Hannibalsson
skrifar um efnahagshrunið
Í grein sinni: „Ísland – það sem læra má af efnahagshruninu,“
sem birtist í áhrifamiklum fjöl-
miðlum í Bretlandi, Frakklandi
og Noregi, auk Íslands, 1. ágúst,
sl., byggir Eva Joly, þingmaður
á Evrópuþinginu, málflutning
sinn á því, að íslenska þjóðin sé
fórnar lamb atburða, sem hún
fékk engu um ráðið.
Þetta má til sanns vegar færa
að nokkru leyti. Þjóðin situr nú
uppi með óbærilegar „skuldir
óreiðumanna“, sem hún stofn-
aði ekki til og naut aðeins að litlu
leyti, þar sem lánin fóru að stór-
um hluta í fjárfestingar erlend-
is. Ósköpin dundu yfir, af því að
hin pólitíska forysta, sem meiri-
hluti þjóðarinnar valdi í hverjum
kosningum á fætur öðrum, svaf
á verðinum og brást gjörsam-
lega trausti þjóðarinnar, þegar
á reyndi. En það þýðir um leið,
að þjóðin er ekki bara saklaust
fórnarlamb. Hún er að því leyti
sinna eigin örlaga smiður, að
hún valdi þessa menn og flokka
til forystu, og hefur þar af leið-
andi ekki við aðra að sakast.
Það var ekki fyrr en allt var
orðið um seinan, og efnahags-
lífið var orðið ein rjúkandi rúst,
að þjóðin tók til sinna eigin
ráða og afhrópaði hina „van-
hæfu“ ríkisstjórn með mótmæla-
aðgerðum, sem vöktu athygli
víða um heim og kenndar hafa
verið við potta og pönnur. Með
búsáhalda byltingunni bjarg-
aði þjóðin sjálfsvirðingu sinni.
En mun hún duga til að bjarga
afkomunni? – Þeirri spurningu
er enn ósvarað.
En hver er þá ábyrgð „alþjóða-
samfélagsins“ á því, hvernig
komið er fyrir íslensku þjóðinni?
Eva Joly orðar það á eftirfarandi
hátt í grein sinni:
Ábyrgðarlaus afstaða sumra
ríkja Evrópusambandsins og
Alþjóða gjaldeyrissjóðsins gagn-
vart hruni íslenska efnahags-
kerfisins sýnir, að þau eru ófær
um að draga lærdóm af hruni
þess samfélags, sem Ísland
var holdgervingur fyrir – þ.e.
samfélags óhefts markaðsfrelsis,
einkum frjálsra f jármála-
markaða, sem þessir sömu
aðilar tóku þátt í að móta.
Einkavæðing „á la Rus“
Ég fæ ekki betur séð en að þarna
hafi Madame Joly nokkuð til síns
máls. Alþjóðagjaldeyrissjóður-
inn hefur á undanförnum árum
verið í reynd eins konar útibú
frá bandaríska fjármálaráðu-
neytinu. Hin alþjóðlega fjár-
málakreppa átti uppruna sinn
í Bandaríkjunum. Hún er bein
afleiðing af þeirri hugmynda-
fræði sem bjó að baki efna-
hagsstefnu Bush-stjórnarinnar.
Þessi stefna hefur verið kennd
við blinda markaðshyggju (e.
market fundamentalism). Hún
lýsti sér í oftrú á getu mark-
aðarins til að leysa öll vanda-
mál og hins vegar á vantrú á
getu lýðræðislega kjörins ríkis-
valds til að hafa mótandi áhrif á
efnahagsstefnuna. Þetta þýddi í
verki hömlulausa einkavæðingar-
áráttu, afnám reglusetningar og
eftirlits með starfsemi fjármála-
markaða, áhættufíkn og ofvöxt
fjármálakerfisins og skatta-
ívilnanir til fjármagnseigenda,
en allt þetta ýtti undir sívax-
andi ójöfnuð og félagslegt órétt-
læti með þeim þjóðum, þar sem
þessi stefna var ráðandi.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
var merkisberi þessarar stefnu
á alþjóðavettvangi. Hann hefur
víða skilið eftir sig sviðna jörð í
þróunarríkjum. Afskipti sjóðs-
ins af innri málefnum ríkja í
Asíukreppunni 1997-98 (sem
og afskipti hans af málum
S-Ameríkuríkja) gerðu víð-
ast hvar illt verra. Sjóðurinn
hefur að vísu beðist afsökunar
á mistökum sínum.
Hins vegar er fátt
sem bendir til þess,
að hann hafi lært eitt-
hvað af þeim.
Það er rétt sem
Madame Joly segir í
grein sinni, að sein-
asta áratuginn eða
svo, varð Ísland að
eins konar hold-
gervingi þeirrar
efnahags stefnu, sem
kennd hefur verið við
nýfrjálshyggju, og hér
var lýst. Tímabilið
hófst með því að ríkisbankarnir
íslensku voru með pólitísku geð-
þóttavaldi afhentir auðklíkum,
sem voru skjólstæðingar þáver-
andi stjórnarflokka. Þetta var
einkavæðing á la Rússland Jelts-
íns. Reyndar hafði ein helsta
auðklíkan fyrst komið undir sig
fótunum undir verndarvæng
Pútíns í St. Pétursborg á sein-
asta áratug liðinnar aldar. Alla
tíð síðan hefur sá þráláti grunur
leikið á, að sumir hinna íslensku
ólígarka hafi haft náin tengsl við
rússnesku mafíuna og að ein-
hverjir íslensku bankanna hafi
verið nýttir til peningaþvættis
á hennar vegum. Þetta er nú
væntan lega undir rannsókn.
Þjóðfélagstilraun
í anda nýfrjálshyggju
Á u.þ.b. sex árum breyttu hinir
nýju eigendur íslensku við-
skiptabönkunum í alþjóðlega
fjárfestingarbanka eða öllu
heldur í áhættusækna vogunar-
sjóði. Á sex árum uxu þessar
fjármálastofnanir íslenska hag-
kerfinu og eftirlitsstofnunum
þess svo yfir höfuð að samsvar-
aði tífaldri þjóðarframleiðslu.
Allt að 85% starfseminnar var
utan Íslands. Snemma árs 2008,
tæpu ári fyrir hrun, gerði hinn
víðkunni hollenski fjármálasér-
fræðingur Willem Buiter úttekt
á íslenska bankakerfinu. Niður-
staða hans var sú, að sjálft við-
skiptamódelið – botnlaus skuld-
setning í erlendum gjaldeyri til
áhættufjárfestinga með hinn
veikburða íslenska seðlabanka
og léttvægan gjaldeyrisvarasjóð
hans sem lánveitanda til þrauta-
vara (og íslenska skattgreiðend-
ur til þrauta-þrautavara) – væri
spilaborg, sem óhjákvæmilega
stefndi í hrun. Spurningin væri
ekki hvort, heldur bara hvenær.
Sérfræðingurinn mælti með
aðgerðum eins og þeim að
breyta útibúum í dótturfyrir-
tæki með sparifjártryggingu
gistiríkis þegar í stað, eða að
flytja höfuð stöðvar bankanna úr
landi, yfir á stærra myntsvæði,
þar sem meginþungi starfsem-
innar var þá þegar. Eftirlits-
stofnanir og stjórnvöld á Íslandi
brugðust ekki við af nægri festu.
Þess vegna fór sem fór. Á þessu
aðgerðaleysi fyrirfinnst engin
skynsamleg skýring önnur en sú,
að forystumenn ráðandi flokks,
Sjálfstæðisflokksins, voru blind-
aðir af pólitískum átrúnaði
sínum um það að afskipti ríkis-
ins gerðu ævinlega illt verra
og að treysta mætti markaðn-
um til að leita bestu lausna.
Markaður inn mundi leiðrétta
sig sjálfur, ef út af bæri. Sú var
trú Greenspans og Geirs líka, að
því er virðist.
Það er rétt að halda því til
haga, að það var yfirlýst stefna
Sjálfstæðisflokksins að gera
Ísland að alþjóðlegri fjármála-
miðstöð. Helsti hugmyndafræð-
ingur flokksins, Hannes Hólm-
steinn Gissurarson prófessor,
skrifaði reglulega lofgreinar í
Wall Street Journal um Ísland
Davíðs Oddssonar, leiðtoga
Sjálfstæðisflokksins og síðar
seðlabankastjóra, sem paradís
frjálshyggjunnar. Hann var í
leiðinni tíður gestur í trúboðs-
stöðvum nýfrjálshyggjunnar í
Washington D.C., sem kenndar
eru við Cato og Heritage. Við-
skiptaráðið, valdastofnun innan
atvinnulífsins í nánum tengslum
við forystu Sjálf-
stæðisflokksins, sem
birti aðgerðaáætlun
í efnahagsmálum í
anda nýfrjálshyggju,
hældi sér af því að
hafa fengið 90% af
tillögum sínum fram-
kvæmd í tíð ríkis-
stjórna Sjálfstæðis-
flokksins. Þetta sama
Viðskiptaráð varaði
sérstaklega við því, að
Ísland liti til velferðar-
ríkja Norðurlanda
sem fyrirmyndar , af
því að Ísland stæði þeim miklu
framar að flestu leyti.
Auðklíkurnar, sem settu
Ísland á hausinn á sex árum,
athöfnuðu sig í pólitísku skjóli
Sjálfstæðisflokksins. Forysta
Sjálfstæðis flokksins var undir
sterkum áhrifum amerískrar
nýfrjálshyggju og deildi auk
þess andúð á Evrópusamband-
inu með hinum bresku arftökum
Thatcher. Eftir á að hyggja virð-
ast þær hafa starfað samkvæmt
formúlunni um „að besta leið-
in til að ræna banka sé að eiga
banka“. Nú er komið á daginn, að
þessir bankar voru lítið annað
en eins konar skulda píramídar í
anda Ponzi. Eigendur bankanna
virðast hafa lagt stund á allar
þær sjónhverfingar, sem stýrðu
risi og falli Enrons, sem á sínum
tíma var sjöunda stærsta fyrir-
tæki Bandaríkjanna, þótt gjald-
þrot Enrons væri að vísu minna
en íslensku bankanna.
Eigendurnir misnotuðu
aðstöðu sína til að moka lánum í
eigin fyrirtæki og félaga sinna.
Krosseignavensl þeirra voru
allsráðandi. Hluta- og verðbréfa-
markaður landsins var í reynd
gervimarkaður, þar sem stunduð
voru innherjaviðskipti og mark-
aðsmisnotkun til að halda uppi
fölsku verði hlutabréfa með bók-
haldshagræðingu og ímyndar-
smíð. Auk þess aðstoðuðu bank-
arnir eigendur sína og attaníossa
þeirra við að búa til hundruð
skúffufyrirtækja, sem að
lokum voru skráð vítt og breitt
um heiminn á aflandseyjum til
þess að véla um fyrir yfirvöld-
um um eignatengsl og til þess að
ná fram skattahagræði. Hinar
svokölluðu eftirlitsstofnanir
ríkis ins, Seðlabanki og Fjármála-
eftirlit, virtust vera fullkom-
lega meðvitundar lausar um það
sem var að gerast allt um kring.
Sama máli gegndi um stjórnvöld,
að svo miklu leyti sem þau voru
ekki beinlínis meðvirk.
Samábyrgð?
Madame Joly spyr í grein sinni,
hvernig hægt sé að ímynda sér
„að 40 manns (þ.e. starfsmenn
eftirlitsstofnana) í Reykjavík
hafi getað haft virkt eftirlit með
starfsemi banka í hjarta fjár-
málahverfisins í Lundúnum.“
Það er von hún spyrji. Þeir gátu
ekki einu sinni haft eftirlit með
því sem gerðist í miðbæ Reykja-
víkur. Og það er ekki einleikið,
að íslensku ólígarkarnir eiga
það sammerkt með rússneskum
kollegum sínum, að þeir una vel
hag sínum í London og þrífast
vel í því umhverfi, sem Blair og
Brown, arftakar Thatcher, hafa
búið bankaræningjum heimsins
þar í borg.
Íslensku bankaræningjarnir
hafa meira að segja apað svo
kyrfilega eftir rússneskum
starfsbræðrum sínum, að þeir
teljast vart menn með mönnum,
nema þeir hafi keypt sér sitt eigið
fótboltalið. Mr. Brown mannaði
sig upp í að beita íslensku bank-
ana í London hryðjuverkalögum
og setti sjálft íslenska ríkið (item
Seðlabanka Íslands) á hryðju-
verkaskrána með al Qaeda.
Ætli hann hefði þorað að beita
sömu bellibrögðum við ólígarka
Pútíns eða olíufurstana í Mið-
Austurlöndum? Er nema von að
Madame Joly spyrji, hvort bresk
stjórnvöld telji sig bera einhverja
ábyrgð á hruni Íslands?
Eitt af því sem bresk stjórn-
völd gætu gert til að bæta fyrir
ofríki sitt gagnvart Íslandi, væri
að aðstoða íslensk stjórnvöld við
að frysta eignir íslensku banka-
ræningjanna í Bretlandi, til
þess að hafa eitthvað upp í þær
skuldir, sem þeir hafa skilið
eftir hjá íslenskum almenningi,
uns dómur hefur gengið um það,
hvort lagaheimildir standi til að
gera eignir þeirra upptækar.
Og er ekki kominn tími til að
bresk stjórnvöld aðstoði íslensk
stjórnvöld, og ríkisstjórnir ann-
arra ríkja, sem eiga svipaðra
hagsmuna að gæta, við að koma
lögum yfir þær skattaparadísir,
sem þrífast á sjálfum Bret-
landseyjum og víðar um heim-
inn í skjóli breskrar réttvísi (e.
British protectorates)?
Nú, þegar tíu mánuðir eru
liðnir frá hruni, hefur engum
– ekki einu sinni eigendum og
stjórnendum bankanna – verið
birt ákæra, hvað þá heldur að
nokkur maður hafi verið hneppt-
ur í varðhald, til að gæta rann-
sóknarhagsmuna og forða förg-
un sönnunargagna. Á meðan
hafa auðkýfingarnir haft nægan
tíma til að fela fjármuni á
aflandseyjum, leppa eignarhald
og fela slóðina. Komið hefur á
daginn, að saksóknari ríkisins
telst vanhæfur til að rannsaka
fjármálamisferli, þar sem sonur
hans er fjármálastjóri einnar
helstu auðklíkunnar. Í staðinn
hefur ríkið gripið til þess ráðs
að skipa sérstakan saksóknara,
án nokkurrar reynslu af umfjöll-
un um alþjóðlega fjárglæfra, og
enn aðra þrjá til að fást við mál
hvers banka fyrir sig. Þessu til
viðbótar hafa tveir lögfræðingar
og einn hagfræðingur verið skip-
aðir í nefnd til að afla gagna um
orsakir hrunsins. Alþingi – elsta
þjóðþing í heimi – hefur skipað
rannsóknarnefnd, væntanlega
til að kanna pólitíska ábyrgð á
óförunum. Til þeirrar nefndar
hefur ekkert spurst síðan.
Allt staðfestir þetta með
átakan legum hætti getuleysi
íslenska stjórnkerfisins til að
ráða við verkefni af þessari
stærðargráðu. Því veldur bæði
smæð kerfisins, ráðning emb-
ættismanna á flokkspólitískum
forsendum fremur en starfs-
hæfni og klíkuskapur fámenns
ættbálkasamfélags. Klíkuveldið
birtist m.a. í því að sumir af
bankastjórunum voru í pólitísku
fóstbræðralagi við forstöðumann
fjármálaeftirlitsins, þar sem
þeir ólust upp í pólitískum ung-
liðasamtökum Sjálfstæðisflokks-
ins við Háskóla Íslands. Kerfinu
er m.ö.o. falið að rannsaka sjálft
sig. Það er ekki trúverðugt. Það
hefur orðið alger trúnaðarbrest-
ur milli almennings í landinu og
stjórnmálaforystunnar. Kerfið
virkar ekki. Þjóðfélagssáttmál-
inn er rofinn.
Þegar af þeirri ástæðu þarf
þetta fámenna eysamfélag nú á
utanaðkomandi aðstoð að halda.
Þá er ekki bara átt við fjárhags-
aðstoð vegna skuldavandans. Við
þurfum líka atbeina sérfræðinga
með reynslu af rannsóknum á
alþjóðlegu fjármálamisferli og
efnahagssérfræðinga, sem eru
óháðir innlendum hagsmuna-
klíkum. Það er í þessum punkti,
sem Evrópusambandið og ríkis-
stjórnir nágrannalanda, ekki síst
annarra Norðurlanda og Bret-
lands, gætu lagt okkur lið. En
til þess að svo megi verða, þurfa
íslensk stjórnvöld að viðurkenna
vanmátt sinn. Þau þurfa sjálf að
hafa frumkvæði að því að leita
sér aðstoðar. Stjórnarandstaðan,
sem er arftaki þeirra afla, sem
komu þjóðinni á vonarvöl, gæti
svo best bætt fyrir afglöp for-
vera sinna, að láta vera að ala á
þjóðrembu og útlendingaóvild, að
ósekju – með göróttu lýðskrumi.
Tillögur
Ég leyfi mér hér með að koma á
framfæri eftirfarandi tillögum
um aðgerðir, sem ég beini til
forystumanna sænsku ríkis-
stjórnarinnar, sem nú fer með
forsæti innan Evrópusambands-
ins.
(1) Evrópusambandið sendi á
vettvang hóp reyndra sérfræð-
inga, í umboði framkvæmda-
stjórnar og/eða ráðherraráðs-
ins, til að rannsaka orsakir
kerfishruns fjármálastofnana á
Íslandi og tengsl þess við hina
alþjóðlegu fjármálakreppu.
Rannsóknin beinist sérstaklega
að því, hverju þurfi að breyta í
regluverki Evrópusambands-
ins varðandi innlánstryggingu
sparifjáreigenda og eftirlit með
fjármálastofnunum og fram-
kvæmd þess. Sérstaklega verði
kannað, hverju þurfi að breyta
í lögum og reglum ESB til að
tryggja framtíðarhagsmuni smá-
ríkja innan Evrópusambands-
ins, þar sem fjármálastofnanir
starfa á fjölþjóðlegum mörkuð-
um. Sérstaklega verði kannað,
hvort efnisrök standi til þess,
að Evrópusambandið auðveldi
íslenskum stjórnvöldum að
standa undir þeim ábyrgðum,
sem þau hafa undirgengist, í
nafni íslenskra skattgreiðenda,
til að tryggja inneignir spari-
fjáreigenda í útibúum íslenskra
banka annars staðar á evrópska
efnahagssvæðinu.
(2) Evrópusambandið taki að
sér að aðstoða íslensk stjórnvöld
við öflun upplýsinga um banka-
innistæður íslenskra ríkisborg-
ara í Lúxemborg, Bretlandi,
Hollandi, á Kýpur og í skatta-
paradísum á Bretlandseyjum
eða undir breskri forsjá annars
staðar í heiminum, þar sem rök-
studdur grunur leikur á, að um sé
að ræða skattsvikið fé eða aðrar
ólögmætar tilfærslur úr íslensk-
um fyrirtækjum, sem nú sæta
þrotabúsmeðferð eftir hrun.
(3) Í framhaldi af aðildar-
umsókn Íslands verði sérstak-
lega efnt til tvíhliða viðræðna
milli fulltrúa ríkisstjórnar
Íslands og Framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins um skulda-
stöðu Íslands í kjölfar kerfis-
hruns og, hvort efni standi til
að Evrópusambandið grípi til
ráðstafana til að forða því að
greiðslugetu íslensks þjóðarbús
verði ofboðið; og til þess að koma
í veg fyrir að óbærilegar skuld-
ir torveldi eða komi í veg fyrir
endurreisn Íslands. Sérstakar
ráðstafanir verði gerðar til að
tryggja Íslandi eðlilegan aðgang
að erlendu fjármagni í uppbygg-
ingarstarfi. Jákvæð niðurstaða
úr þessum viðræðum gæti skipt
sköpum fyrir framtíð Íslands,
þótt þeir fjármunir, sem hér um
ræðir, þyki vart mælanlegir á
kvarða Evrópusambandsins.
Í fyrri grein minni um sama
efni (sjá: www.jbh.is) var að því
vikið, hvort Evrópusamband-
ið eða einstakar aðildarþjóðir
þess, kynnu að eiga einhverra
hagsmuna að gæta á Norður-
slóðum, sem gætu réttlætt, að
Evrópusambandið legði fram fé
og fyrirhöfn til að hjálpa Íslandi
til sjálfshjálpar á ný. Niðurstaða
mín er sú sama og Evu Joly, að
fyrir því kunni að finnast hald-
bær rök. Hitt skiptir þó meira
máli, nefnilega að almenningur
á Íslandi, sem nú er orðið
umsóknaraðili að Evrópusam-
bandinu, upplifi það af eigin
reynslu, að forystumenn sam-
bandsins og einstakra aðildar-
þjóða hugsi ekki um það eitt, að
gæta hagsmuna lánardrottna og
fjármagnseigenda, heldur ekki
síður, að þeir láti sér annt um
hagsmuni almennings í aðildar-
ríkjunum. Sjá nánari umfjöllun:
www.jbh.is
Höfundur gegndi embættum
fjármálaráðherra, utanríkisráð-
herra og ráðherra utanríkisvið-
skipta í ríkisstjórn Íslands 1987-
95 og leiddi, fyrir Íslands hönd,
samningana við Evrópusam-
bandið um myndun evrópska
efnahagssvæðisins á árunum
1989-93.
JÓN BALDVIN
HANNIBALSSON