Fréttablaðið - 14.08.2009, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 14.08.2009, Blaðsíða 12
12 14. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR P IP A S ÍA 9 1 2 6 5 Nýr matseðill á Ruby Tuesday Höfðabakka 9 & Skipholti 19 Sími 577-1300 17 nýir réttir til að gæða sér á Komdu í heimsókn IÐNAÐUR Verðið á áli hefur hækkað um 59 prósent frá því í mars og kostaði tonnið 1.997 dali í gær. „Þetta er mikið ánægju- efni fyrir orkufyrirtækin og hefur jákvæð áhrif á tekjurnar,“ segir Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármála- sviðs Landsvirkjunar. Lánshæfismat Landsvirkjunar lækk- aði nýlega og er í neikvæðu horfi inn- anlands. Stefán segir hækkandi álverð ekki hafa áhrif á lánshæfismatið til skemmri tíma en geti gert það yfir lengri tíma. Stóra málið varðandi lánshæfis- mat Landsvirkjunar er hins vegar það að lánshæfismat ríkisins er mjög lágt, að sögn Stefáns. Hæst hefur álið verið í 3.263 dölum á tonnið og var það í júlí í fyrra. Eftir heimskreppuna síðasta haust tók álið mikla dýfu og var tonnið í 1.473 dölum um áramótin. Álið var í sögulegu lág- marki í mars, í 1.257 dölum á tonnið, en fór stigvaxandi og var í 2.006 dölum á mánudaginn. Ágúst F. Hafberg, framkvæmda- stjóri viðskiptaþróunar og samskipta hjá Norður áli, segir hækkandi álverð ekki hafa mikil áhrif á daglega starfsemi félagsins en auki hins vegar tekjurnar og það sé gott. „Sveiflur í álverði eru alþekktar og menn eru undirbúnir fyrir þær,“ segir Ágúst. Ágúst segir hækkun álverðs geta hækkað lánshæfismat Norðuráls en matið sé nú þegar sterkt, því fyrirtækið sé skuldlaust. - vsp Álverð hefur hækkað um 59 prósent frá því í mars og 36 prósent frá áramótum: Mikið ánægjuefni fyrir orkufyrirtækin í landinu HELGUVÍK Hækkun álverðs hefur ekki mikil áhrif á daglega starfsemi Norðuráls en gæti hækkað lánshæfismatið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA NEYTENDAMÁL Búast má við rösk- un á afgreiðslu og dreifingu á mjólk í dag þar sem bilun kom upp í stjórnbúnaði sem stýrir framleiðslu á mjólk hjá Mjólkur- samsölunni í Reykjavík í gær. Mjólkurdreifingu var lokið í gær áður en bilunin kom upp, að því er segir í tilkynningu frá MS. Viðgerð stóð yfir í gærdag og átti að hraða henni sem auðið var. Mjólkin var framleidd í nótt hjá MS Selfossi og Akureyri og flutt til Reykjavíkur til dreifingar í morgun. - kh Bilun hjá Mjólkursamsölunni: Mjólkurdreif- ing gæti raskast SJÁVARÚTVEGSMÁL Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum júlí- mánuði var 160.152 tonn saman- borið við 153.463 tonn í sama mánuði árið áður. Botnfiskafli jókst um sextán þúsund tonn frá júlí 2008 og nam rúmum 33 þús- und tonnum. Þar af var þorskafl- inn rúm níu þúsund tonn. Afli af uppsjávartegundum nam tæpum 123.000 tonnum sem er um fjögur þúsund tonnum meiri afli en í júlí 2008. Síldarafl- inn jókst milli ára og um 59 þús- und tonn veiddust af makríl. - shá Afli íslenskra skipa í júlí: Ágæt aflabrögð á miðunum Á VEIÐUM Íslensk fiskiskip veiddu ríflega 160 þúsund tonn í júlí. UNDIR REGNHLÍF MYNDASTYTTUNNAR Það rigndi svolítið í Sjanghaí á mánu- daginn. Einn vegfarenda fann sér skjól undir regnhlíf myndastyttu nokkurrar og kveikti sér í sígarettu. NORDICPHOTOS/AFP FJÖLMIÐLAR „Þetta er auðvitað mikið fagnaðarefni fyrir knattspyrnu- áhugamenn hér landi, en ekki síður viðurkenning fyrir fyrirtækið. Það hefur komið skýrt fram hjá sölu- aðilum þessa efnis að þeir telja að við höfum verið að þjóna markaðn- um mjög vel og séum besti sam- starfsaðilinn á markaðnum. Þeir líta á það sem sína hagsmuni að við komumst í gegnum þetta,“ segir Ari Edwald, forstjóri 365 miðla. Gengið hefur verið frá samn- ingum þess efnis að Stöð 2 Sport sýni frá Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu næstu þrjú árin, eða til loka tímabilsins 2011 til 2012. ýmsar breytingar á fyrirkomulagi keppninnar verða kynntar á næsta tímabili. Þá hefur einnig verið gengið frá samningum um sýn- ingarréttinn frá leikjum í ensku úrvalsdeildinni á Stöð 2 Sport 2 til næstu fjögurra ára. Það þýðir að enska úrvalsdeildin verður á Stöð 2 Sport 2 að minnsta kosti út tíma- bilið 2012 til 2013. Ari segist ánægður með þessa samninga. „Sá hljómgrunnur sem við fengum hjá ensku úrvalsdeild- inni varðandi það að geta endur- samið og fengið verðið lækkað í erlendri mynt var gríðarlega mikil- vægur. Auðvitað er þetta dýrt efni áfram, enda gríðarlega gott og vin- sælt efni,“ segir Ari. Að sögn Ara hafa skipuleggjend- ur og söluaðilar Meistaradeildar- innar haft mikið nef fyrir því að byggja upp spennandi viðburða- sjónvarp og meðal annars styrkt UEFA-keppnina mjög, en þar keppa þau lið sem rétt misstu af sæti í Meistaradeildinni. Breytingar á sýningum á Meistaradeild- inni fela meðal annars í sér að fleiri leikir úr úrslitaumferð í forkeppninni verða sýndir bei nt , end a mörg sterk lið sem þar mæt- ast. Þá fara sex- tán liða úrslit keppninnar fram á fjórum vikum í stað tveggja áður og verða leikdagar átta í stað fjög- urra. Þessar breytingar þýða að leikdögum fjölgar úr 26 í 34 að meðtöldu umspili Meistaradeildar- innar. Úrslitaleikur Meistaradeildar- innar, sem fram fer í Madríd, höfuð borg Spánar, verður leikinn á laugar degi í stað miðvikudags eins og verið hefur. „Allt er þetta miðað að því að bæta keppnina og gera hana aðgengilegri fyrir sjón- varpsáhorfendur,“ segir Ari. Spurður um verðskrá Stöðvar 2 Sport segir Ari að áskriftar- gjald hafi ekki hækkað í haust. Hann gerir ekki ráð fyrir að verð- ið hækki út tímabilið, í það minnsta ekki hjá núverandi áskrifendum. kjartan@frettabladid.is Leikdögum fjölgar í Meistaradeildinni Meistaradeildin verður á Stöð 2 Sport næstu þrjú árin og enski boltinn út tíma bilið 2013. Forstjóri 365 miðla segir fyrirtækið hafa fengið mikinn hljómgrunn fyrir verðlækkun á sýningarréttinum. Breytingar verða á tilhögun Meistaradeildar. ARI EDWALD SIGURVEGARAR Barcelona bar sigurorð af Manchester United í úrslitaleik Meistara- deildarinnar í Róm í maí síðastliðnum. Næsti úrslitaleikur fer fram laugardaginn 22. maí 2010 í Madríd. MENNTAMÁL Ráðstefna um velferð íslenskra barna – „Sóknarfæri á umbrotatímum“, verður haldin 17. ágúst í sal Íslenskrar erfðagrein- ingar. Dagskráin hefst klukkan 9 og stendur til 16.30. Á ráðstefnunni verða meðal annars fyrirlestrar um áhrif efnahagsþrenginganna á heilsu og líðan Íslendinga, um stöðu barna á umbrotatímum og vel- ferð íslenskra unglinga. Að ráð- stefnunni stendur Lýðheilsu- stöð í samvinnu við heilbrigðis-, menntamála- og félags- og trygg- ingamálaráðuneytið ásamt Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og Velferðarsjóði barna. Ráðstefnugjald er 2.500 kr. - vsp Ráðstefna um velferð barna: Fjallar um börn í kreppuástandi BJÖRGUN Björgunarsveitin Dag- renning á Hvolsvelli var kölluð út til aðstoðar erlendum ferða- mönnum í Vonarskarði á miðviku- dag. Um var að ræða ítölsk hjón sem voru ein á ferð á óbreyttum jeppa. Framdrif bílsins brotnaði og treystu þau sér ekki til þess að komast á einu drifi til baka yfir árnar. Fólkinu var fylgt suður á Sprengisand og skildi leiðir við Skrokköldu þar sem fólkið hélt för sinni um landið áfram. Sjálfboða- liðar björgunarsveitarinnar fóru frá Hvolsvelli og lögðu á sig um um 500 kílómetra akstur út af drif- skaftinu. - shá Ferðamenn í vanda: 500 kílómetrar fyrir drifskaft Dreginn vélarvana í land Vélarbilun varð í strandveiðibáti sem var 50 sjómílur norður af Rifi í fyrra- kvöld. Nálægur bátur kom til aðstoðar og dró bátinn til Rifs. Engin hætta var á ferðum. ÖRYGGISMÁL

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.