Fréttablaðið - 14.08.2009, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 14.08.2009, Blaðsíða 46
34 14. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÁRÉTT 2. dýrka, 6. ryk, 8. kvikmyndahús, 9. þunnur vökvi, 11. tvö þúsund, 12. hroki, 14. vinna, 16. átt, 17. sérstak- lega, 18. tæfa, 20. hljóta, 21. truflun. LÓÐRÉTT 1. vilji, 3. í röð, 4. fax, 5. auð, 7. nag- grís, 10. fálm, 13. blaður, 15. skjótur, 16. arinn, 19. bókstafur. LAUSN LÁRÉTT: 2. dást, 6. im, 8. bíó, 9. lap, 11. mm, 12. dramb, 14. starf, 16. sv, 17. sér, 18. tík, 20. fá, 21. ónáð. LÓÐRÉTT: 1. vild, 3. áb, 4. símbréf, 5. tóm, 7. marsvín, 10. pat, 13. mas, 15. frár, 16. stó, 19. ká. VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8. 1 Mika. 2 Um 23 þúsund manns. 3 Kristján Örn Sigurðsson. Tónleikaröðin Réttir verður hald- in í Reykjavíkurborg 23. til 26. september, á sama tíma og tónlist- arráðstefnan You Are In Control og kvikmyndahátíðirnar Reykja- vik International Film Festival og Nordisk Panorama verða haldn- ar. Á meðal hljómsveita sem koma fram verða Hjálmar og Retro Stefson. Einnig er hugsanlegt að erlendir tónlistarmenn stígi á svið. „Við vissum að það væri fullt af hljómsveitum að fara að gera eitt- hvað á þessum tíma. Prógrammið heitir Réttir af því að það er það sem við ætlum að gera; að smala öllum saman,“ segir Steinþór Helgi Arnsteinsson, einn af skipu- leggjendum Rétta. „Við ákváðum að vinna þetta saman í staðinn fyrir að hver sé í sínu horni. Það hefur sannast að þegar íslenska tónlistar senan tekur sig saman verður hún mjög sterk.“ Dagskráin verður á Nasa, Sódómu, Batteríinu og hugsanlega fleiri stöðum og verður stærri en Innipúkinn, sem var einmitt hald- in á Sódómu og Batteríinu um verslunarmannahelgina. Miðaverði á tónleikaröðina verð- ur stillt í hóf og er stefnt að því að allir þeir sem komi að henni fái greitt. Margir erlendir blaðamenn og fólk úr afþreyingargeiranum verður í borginni þegar hátíðin verður haldin og því gætu tæki- færi skapast fyrir hljómsveitirn- ar í framhaldinu. „Þetta er mjög skemmtilegur vettvangur til að koma sér á framfæri en er þó ekki hugsað þannig. Það er fyrst og fremst verið að stíla á íslensk- an markað,“ segir Steinþór. - fb Réttir í Reykjavík í september RETRO STEFSON Hljómsveitin Retro Stefson stígur á svið á tónleikaröðinni Réttum í september. „Við höfum fengið leyfi fangelsis- yfirvalda. Þeir Geirfuglar verða fyrst eins og Bítlarnir, snúa sér þá við og breytast í Johnny Cash,“ segir Skjöldur Sigurjónsson, veit- ingamaður á Ölstofunni. Menn eru nú í óðaönn að undir- búa Menningarnótt sem verður aðra helgi í Reykjavík. Misfrum- leg atriði eru á teikniborðinu en eitt hið úthugsaðasta hlýtur að teljast það sem Skjöldur stendur að ásamt hinni elskuðu hljómsveit Geirfuglum – sem nú ætla heldur betur að bæta einni rós í hnappa- gatið. Hljómsveitin mun halda tón- leika á þaki Ölstofunnar. Svo hátt- ar til að þaðan er gott útsýni yfir í garð fangelsins við Skólavörðu- stíg. „Spilað fyrir fanga og fylli- byttur,“ segir Freyr Eyjólfsson í Geirfuglunum og lýsir atrið- inu, líkt og Skjöldur, með vísan til frægra tónleika Bítlanna af þaki Apple-byggingarinnar og því þegar Johnny Cash lék fyrir fanga í Folsom-fangelsinu. Hann slær ekki loku fyrir að lögin Fol- som Prison Blues og jafnvel Elvis- slagarinn Jailhouse Rock verði á efnisskránni. „Bubbi Morthens fer alltaf á Litla-Hraun á aðfangadag. Við ætlum að spila fyrir íbúa að Skóla- vörðustíg 9 á Menningarnótt. Þeir eru þarna í hringiðunni en finna aðeins reykinn af réttunum. Svo nálægt en samt svo fjarri. Heyra óminn af gleðinni en sjá ekki,“ segir Freyr og boðar að nú horfi til breytinga hvað það varðar. En það eru ekki einungis fangar sem njóta tónlistar Ölstofunnar heldur einnig gestir Ölstofunnar og þeir sem safnast saman á torginu sem liggur milli hennar og Vegamóta. „Já, sko … fyllsta jafnræðis verð- ur gætt. Við erum sex í hljómsveit- inni og líklega verður þetta þannig að þrír snúa að fyllibyttunum og þrír að íbúum við Skólavörðustíg,“ segir Freyr. Atriðið er enn í mótun og Freyr hugsar upphátt í sam- tali við blaðamann Fréttablaðs- ins. Segir að vel megi vera að þeir fái gesti á borð við Árna Johnsen og Kalla Bjarna til að taka með sér lagið. Jafnvel að endurvekja Rimlabandið með Rúnari Þór. „En það er fyrir öllu að íbúar að Skóla- vörðustíg 9 fái notið þess sem er í boði á Menningarnótt sem og aðrir landsmenn.“ jakob@frettabladid.is SKJÖLDUR SIGURJÓNSSON: LEYFI FANGELSISYFIRVALDA FYRIRLIGGJANDI Fyrir fanga og fyllibyttur GEIRFUGLARNIR SETJA SIG Í STELLINGAR Ætla að spila fyrir gesti Ölstofunnar sem og fyrir fanga sem safnast fyrir í garði fangelsins við Skólavörðustíg. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Brotist var inn í æfingahúsnæði hljómsveitanna Ingós og Veðurguðanna og Benny Crespo´s Gang í Tónlistarþróunarmiðstöðinni fyrir skömmu. Þjófurinn eða þjófarnir höfðu á brott með sér hljóðfæri og verðmætan tækjabúnað frá síðarnefndu sveitinni. Tilkynning um þjófnaðinn hefur farið eins og eldur í sinu um Facebook-síð- una að undanförnu í von um að málið verði upplýst. „Þetta var allt dót frá Benny Crespo´s Gang en það er samt leiðinlegt að það sé brotist inn í okkar húsnæði,“ segir Ingó. „Ég á ekki neitt af þessu dóti og hinir strákarnir í hljómsveitinni eiga kannski magnara í mesta lagi. En það var stolið miklu af flottu og rándýru dóti frá þeim. Þeir eru rosalega pirraðir enda græju- nördar sem grúska lengi til að finna svona græjur.“ Þetta er ekki í fyrsta sinn sem brotist er inn hjá Veður- guðunum því 17. júní í fyrra var hljóðfærum stolið úr sendiferðabíl þeirra sem hafði verið lagt fyrir utan Reykjavíkurflugvöll. „Bílinn var tæmdur en það tjón var örugglega minna en þetta tjón,“ segir Ingó. „Þá var stolið dóti upp í kannski hálfa milljón en við fundum eitthvað af því aftur.“ Þrátt fyrir innbrotið býst Ingó við því að Veðurguðirnir haldi áfram að æfa í Tónlistarþróunarmiðstöð- inni, sem er úti á Granda. „Ég veit að strákarnir í minni hljómsveit eru allir tryggðir fyrir þessu tjóni. Þetta er auðvitað persónulegt en ég hugsa að við verðum þarna áfram.“ - fb Brotist inn í æfingahúsnæði Ingós og Bennys INGÓ Brotist var inn í æfinga- húsnæði hljómsveitarinnar Ingós og Veðurguðanna á dögunum. LAY LOW Lay Low og félagar í Benny Crespo´s Gang tilkynntu þjófnaðinn á Facebook. MORGUNMATURINN „Ég fer oft niður á Te og kaffi á Laugaveginum og fæ mér Trópí og croissant. Annars er það bara drykkjarjógúrt eða eitthvað fljótlegt.“ Anna Svava Knútsdóttir leikkona. w w w .t h is .i s /k ro s s g a tu r w w w .t h is .i s /k ro s s g a tu r 250 ÓKEYPIS KROSSGÁTUR NÝ GÁTA Í HVERRI VIKU Hvort sem það tengist aukinni samkeppni á sviði útvarpsmála eða ekki fagna margir því að ein helsta stjarnan í útvarpi fyrir um kvart- öld, helsta útspil Jóns&Gulla eða útvarpsþáttarins „Tveir með öllu” í brandara- málum, sem margir töldu útbrunninn með öllu, Jóhannes á Fóður- bílnum, er skyndi- lega farinn að heyrast í útvarpi á nýjan leik. Í gærmorgun hlógu þeir innilega saman á Bylgjunni þeir Ívar Guðmundsson og Jóhannes og Ívar bauð svo Jóhannesi að skemmta sér með Bylgjufólki á bökkum Rangár þar sem verður mikil fjölskylduskemmtun um næstu helgi. Annars leikur allt í lyndi hjá Ívari Guðmundssyni og þá ekki síður félaga hans í próteinvörusölunni og líkamsræktinni – Arnari Grant. Þrátt fyrir að 2007 sé að baki og ekki ódýrt að hafa einkaþjálfara á sínum snærum er Arnar svo eftirsótt- ur að hjá honum er biðlisti eftir að komast að. Enn einn sem tengist Bylgjunni er Jón Ólafsson, stundum kallaður „Jón vondi“ til aðgreiningar frá al nafna sínum í tónlistargeiranum – sem einhverra hluta vegna er kallaður „góði“. Athafnamaðurinn átti á árum áður undir högg að sækja hjá almenningsálitinu og var meðal annars núið því um nasir að vera á vinnukonuútsvari. En Jón virðist nú dýrlingur miðað við útrásarvíkinga og viðskiptavinir N1 á Njarðargötu fengu einmitt innsýn í hvernig lifa má spart þegar þeir sáu Jón blaða vel og lengi í tekjublaði Mannlífs og setja það svo aftur í hilluna. - jbg FRÉTTIR AF FÓLKI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.