Fréttablaðið - 14.08.2009, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 14.08.2009, Blaðsíða 2
2 14. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 8 -0 5 2 8 FÓLK Níu ára gamall drengur hefur verið rekinn úr 6. flokki ÍR í fót- bolta vegna hegðunarvandamála. Hann má því ekki mæta á æfing- ar hjá félaginu. Foreldrar hans voru látnir vita af brottrekstrin- um í bréfi. Móðir hans gagnrýn- ir þetta harðlega. Að sögn Hall- dórs Þ. Halldórssonar, yfirþjálfara yngri flokka ÍR, var þetta síðasta úrræði félagsins. „Vegna hegðun- ar á æfingum og í leikjum, þetta er síendurtekin vanvirðing gagn- vart dómurum, forráðamönnum og þjálfurum. Það er búið að reyna til fullnustu að vinna með hann.“ Hann segir félög oft hafa þurft að beita þessu úrræði. Þau hafi ekki jafnmörg úrræði og skólar. „Hann er skapstór ungur drengur – með mikið keppnis- skap,“ segir Agnes Linda Þor- geirsdóttir, móðir drengsins. Hún segir að upp hafi komið atvik þar sem hann hafi rokið upp, bæði á æfingum og þegar hann er að keppa. Hún hafði viðrað þá hug- mynd við þjálfarann í júní að láta drenginn hætta í fótbolta um stund. Þá hafi verið stungið upp á því að frekar ætti að prófa að setja drenginn í eldri flokk, þar sem meiri agi væri. „Ég skil ósköp vel að það er erfitt að vera með drenginn í fótbolta þegar hann er svona skapstór, þetta er hópíþrótt. Mér hefði bara fundist allt í lagi að funda með okkur og reyna alla- vega að finna lausn.“ Þau Halldór hafi talað saman um málið tveimur vikum fyrir Shell-mótið, sem er haldið í Vest- mannaeyjum í lok júní ár hvert. „Meðal annars sagði þjálfarinn við mig að það gæti verið að hann fengi ekki að fara með á mótið út af þessu.“ Að sögn Halldórs var ákveðið að gefa drengnum síðasta tækifær- ið. Hann fékk að fara með á Shell- mótið, en þurfti að vera undir forsjá föður síns allan tímann og gista hvorki né dveljast með hinum drengjunum. „Svo kom upp atvik á mótinu sjálfu, hann skammaðist í einhverjum dóm- ara, svo maður var alveg búinn undir að eitthvað myndi gerast. Hann fór samt og baðst afsökun- ar,“ segir Agnes. Hinn 15. júlí hafi þau svo feng- ið bréf um að barna- og unglinga- ráði knattspyrnudeildar ÍR hafi borist erindi um hegðun hans eftir Shellmótið. Þar hafi þeir aðilar sem komið hafi að málinu verið spurðir álits og farið yfir eldri atvik. Foreldrarnir voru þó ekki boðaðir á þennan fund. Að sögn Halldórs voru það aðrir foreldr- ar sem lögðu fram erindið. Í bréf- inu kemur einnig fram að mögu- legt verði að endurskoða ákvörðun knattspyrnudeildarinnar eftir ára- mót, ef hegðun hans hafi breyst til muna. thorunn@frettabladid.is Níu ára drengur rek- inn úr fótboltaliði Níu ára gamall drengur má ekki lengur æfa fótbolta með sjötta flokki ÍR. Ástæðan er hegðunarvandamál, sem tekin voru fyrir á fundum sem foreldrarn- ir voru ekki boðaðir á. Þjálfari segir brottvikningu sem þessa ekki einsdæmi. ÍR-HEIMILIÐ Drengurinn æfði með sjötta flokki ÍR í fótbolta þar til um miðjan júlí, þegar foreldrum hans barst bréfið um að ekki væri hægt að leyfa honum að æfa eða spila vegna hegðunar hans. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SJÁVARÚTVEGSMÁL „Ekki er enn ljóst hvort Íslandi verður meinuð þátttaka í fundum hinna strand- ríkjanna um stjórnun veiða úr makrílstofninum fyrir árið 2010. Þar til þau viður kenna Ísland sem fullgildan aðila að stjórn veið- anna og réttmæta hlutdeild okkar munum við stunda lögmæt- ar makrílveið- ar á okkar for- sendum,“ segir Friðrik J. Arn- grímsson, fram- kvæmdastjóri LÍÚ, í niðurlagi greinar sem birtist í Fiski- fréttum í gær. Friðrik segir Norðmönnum, Færeyingum og ESB bera skylda til að semja við Íslendinga um stjórn makrílveið- anna samkvæmt Hafréttarsátt- mála Sameinuðu þjóðanna og Úthafsveiðisamningnum. „Norð- menn og ESB hafa með órétti úti- lokað okkur frá þátttöku í stjórn veiða úr makrílstofninum í meira en áratug,“ segir hann í greininni. - shá Kvótaúthlutun á makríl: Samningsstaða Íslands er óljós ATVINNUMÁL Atvinnuleysi mæld- ist átta prósent í júlímánuði, og minnkar því um 2,4 prósentustig frá því í júní. Að jafnaði voru því 13.756 manns atvinnulausir í júlí. Á sama tíma í fyrra var atvinnu- leysið 1,1 prósent. Á höfuðborgarsvæðinu stendur atvinnuleysi að mestu í stað, en minnkar um sex prósentustig á landsbyggðinni. Mest er atvinnu- leysið á Suðurnesjum, tæp tólf pró- sent. Minnst er það á Vestfjörðum, eða 1,3 prósent. Atvinnuleysi jókst um rúm tvö prósentustig meðal kvenna en minnkaði um rúm fimm prósentu- stig meðal karla. - þeb Minnkar á landsbyggðinni: Atvinnuleysi átta prósent FRIÐRIK J. ARNGRÍMSSON Haraldur, er hægt að þvo hendur sínar af flensunni? „Ekki alveg, það þýðir til dæmis ekki að þvo hendurnar og hósta framan í næsta mann. Þá fer allt í handa- skol.“ Skólayfirvöld eru hvött til að brýna fyrir nemendum að þvo hendur sínar vel vegna svínaflensunnar. Haraldur Briem er sóttvarnalæknir. STJÓRNMÁL Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð- herra gagnrýndi bresk stjórnvöld fyrir að beita hryðjuverkalögum gegn Landsbankanum í grein sem birt var á vef Financial Times snemma í gær- kvöldi. Segir hún að aldrei hafi fengist skýringar á því af hverju það var gert. Einnig gagnrýnir hún það framferði Hollend- inga og Breta, gagnvart smáþjóðinni Íslandi, að hafa beitt sér gegn lánveitingum Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins til þess að þrýsta á Icesave-samning- inn. Hafi þeir haft Þjóðverja sem bandamenn. Íslendingum finnst þeir ekki bera ábyrgð á alþjóðlegu bankakreppunni og eru reiðir yfir því að þurfa að taka á sig byrðar vegna innstæðna á Icesave-reikningum Landsbankans, segir í grein Jóhönnu. Landsbankinn hafi verið einkabanki, sem hafi fengið til sín þúsundir viðskiptavina með því að bjóða háa vexti. Upphæðin sem Ísland axlar er mjög há, segir Jóhanna í greininni, eða um 50 prósent af vergri landsframleiðslu, en eignir Landsbankans munu koma á móti og lækka greiðsluna. Íslendingar ætli þó að færa fórnir og ekki skjóta sér undan ábyrgð til þess að tryggja eðlileg samskipti og viðskipti við umheiminn. - vsp Jóhanna Sigurðardóttir gagnrýnir bresk stjórnvöld í grein á vef Financial Times: Íslendingar reiðir en færa fórnir JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR Gagnrýnir framferði breskra og hollenskra stjórnvalda í grein á vef Financial Times. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK BRETLAND Abdelbaset Ali al- Megrahi, Líbíumaður sem dæmd- ur var í lífstíðarfangelsi fyrir aðild sína að Lockerbie-spreng- ingunni svokölluðu, sleppur mögulega úr fangelsi í næstu viku af mannúðarástæðum. Þetta kemur fram í frétt BBC. Líbíumaðurinn var dæmdur fyrir að koma sprengju fyrir um borð í flugvél frá Pan Am sem síðan sprakk yfir skoska þorp- inu Lockerbie árið 1988, með þeim afleiðingum að 270 manns létust. Hann er sagður þjást af ólæknandi krabbameini í blöðru- hálskirtli og því eru líkur á því að hann hljóti náðun og geti því snúið til síns heima í Líbíu. Aðstandendur þeirra sem létust í slysinu hafa mótmælt þessum fyrirætlunum harðlega. - kg Lockerbie-sprengjuvargur: Sleppur mögu- lega úr fangelsi LÖGREGLA Áreiti innan lögreglunnar er óþolandi; óþægindi, óvissa og óánægja eiga ekki að þekkjast en virka eins og krabbamein á lög- regluna. Þetta segir Bylgja H. Baldursdóttir lögreglukona í opnu bréfi til Stefáns Eiríkssonar, lög- reglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, sem birt var á vef lögreglufélags- ins í gær. Bylgja hefur starfað í lögregl- unni í hátt á annan tug ára og segir það ekki launin sem haldi sér í þessu starfi. „ Eru það launin sem hafa haldið mér í þessu starfi? Uhhh leyfðu mér að hugsa......nei, langt því frá. Það sem hefur haldið mér í þessu starfi er hrein og klár væntumþykja um vinnuna mína og mína vinnufélaga sem í raun og veru eru hin fjölskyldan mín,“ segir í bréfinu. Segir Bylgja að Stefán beri ábyrgð á því sem vel er gert og einnig því sem illa er gert. „Lög- reglan saman stendur af lögreglu- mönnum og á meðan þú hefur okkur þá ertu í góðum málum. Án okkar kemur þú til með að standa nakinn fyrir framan alþjóð líkt og keisarinn í sögunni um Nýju fötin keisarans. Ef það er það sem þú vilt.....þá bara gangi þér vel“. Með þeim breytingum sem fram undan eru hjá lögreglunni er verið að búa til aðstæður sem gætu kall- að á sundrungu innan lögreglunn- ar og það er hættulegt, að mati Bylgju. „Þú gætir misst okkur frá þér og ert því miður á góðri leið með það.“ - vsp Lögreglukona segir lögreglustjóra á góðri leið með að missa lögregluna frá sér: Óvissan eins og krabbamein STEFÁN EIRÍKSSON Lögreglukona gagn- rýni Stefán í opnu bréfi og segir að hann sé á góðri leið með að missa lögregluna frá sér. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Unnið við jarðsig á veginum Verktakar á vegum Vegagerðarinnar hafa undanfarið unnið að lagfæring- um á Siglufjarðarvegi. Jarðsig hefur lengi verið vandamál á veginum og er unnið að því að setja klæðingu á þá kafla sem eru ómalbikaðir. SIGLUFJÖRÐUR Klessti á Hamraborg Ökumaður jeppa varð fyrir því að keyra á verslunina Hamraborg á Ísa- firði í gærdag. Ökumaðurinn ætlaði að stíga á bremsuna en steig óvart á bensíngjöfina, með fyrrgreindum afleiðingum. Enginn slasaðist, en tvær rúður brotnuðu auk þess sem jeppinn er eitthvað skemmdur. ÍSAFJÖRÐUR BÚRMA Öryggisráð Sameinuðu þjóð- anna (SÞ) hefur lýst yfir miklum áhyggjum af stofufangelsisdómi Aung San Suu Kyi, stjórnar- andstöðuleiðtoga í Búrma. Ráðið, sem fundaði um málið í tvo daga, hefur einnig kallað eftir lausn allra pólit- ískra fanga í Búrma. Suu Kyi var dæmd í eins og hálfs árs stofu- fangelsi fyrir að leyfa bandarísk- um manni, sem synti yfir síki að heimili hennar, þar sem hún hefur setið í stofufangelsi í sextán ár af síðustu tuttugu, að gista á heimil- inu í tvo daga. - kg Sameinuðu þjóðirnar: Öryggisráðið hefur áhyggjur af dómi Suu Kyi AUNG SAN SUU KYI SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.