Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1941, Side 4

Samvinnan - 01.03.1941, Side 4
SAMVINNAN 3. HEFTI Frá Kaupfélögunum Kaupfélag Þingeyinga Húsavík. Rekstur kaupfélagsins gekk mjög vel síðastliðið ár. Vörusala félags- ins nam kr. 1.286.000, og er það 238 þús. krónum meiri vörusala en næsta ár á undan. Hve miklu sala innlendra vara hefur numið, er ennþá ekki kunnugt. Kaupfélagið tók á móti fiski til hraðfrystingar meira en nokkru sinni fyrr, og voru frystar þar 365 smálestir. Allur þessi fiskur var seldur út fyrir ágætt verð. Það eitt skorti á, að nægilega margir bátar væru til, er gætu stundað fiskveiðar, því vel hefði mátt anna meiri frystingu í húsinu. Félagið hafði nokkra síldarsöltun, og keypti það 1040 tn. síldar, og er sú síld öll seld. Mesta áhyggjuefni fólks á félagssvæðinu er fjárpestin, sem breiðist þar all- ört út og veldur miklum búsifjum. Kaupfélag Norður-Þingeyinga. Viðskiptaaukning hefur orðið allmikil hjá félaginu á síðastliðnu ári. Sala aðkeyptra vara hefur aukizt um 120 þús. eða úr 400 þús. kr. 1939 í 520 þús. kr. 1940, eða sem næst 23% aukning. Sala inn- lendra vara er óuppgerð ennþá, svo ekkert er hægt að segja um, hve miklu hún hefur numið. Nýjar framkvæmdir voru engar hjá fé- laginu annað en bryggja, sem fé- lagið er að láta byggja, var lengd nokkuð. — Fyrir tveim árum stofn- aði félagið menningarsjóð, er hefur það hlutverk, meðal annars, að kynna starfsemi félagsins. Félagið gekkst fyrir almennri skemmtun í fyrra, til kynningar félaginu. Voru þar fluttar ræður, lesið upp og síðan dansað. Var skemmtun þessi fjölmenn og jafnt félagsmönnum sem utanfélagsmönnum leyfður að- gangur. Menningarsjóður kostaði skemmtunina. Slíkar samkomur auka án efa á vinsældir félaganna og kynna starf þeirra og stefnu um leið. Væri það æskilegt, að fleiri félög gengust fyrir slíkum sam- komum. Það er alveg nauðsynlegt, að félagsmenn kaupfélaga, eins og félagsmenn annarra félaga, hittist öðru hvoru, treysti félagsböndin og auki félagsandann. Það er alltof algengt, að félagsmenn kaupfélaga hafi engin samskipti eða kjmni hver af öðrum. Þeir koma aðeins í búðina og kaupa og hafa ekki á til- finningunni að þetta sé þeirra búð og þeirra eigið félag, sem rekur hana, ef ekkert er gert til þess að viðhalda hinum sanna félagsanda, sem öll samvinna byggist raunar á. Meira félagslegt samstarf er því nauðsynlegt í kaupfélögunum. K. E. A. Sú meinlega villa hafði slæðst inn í frásögn af Kaupfélagi Ey- firðinga í 1. hefti Samvinnunnar, að félagið hefði látið flytja frysti- húsið frá Ólafsfirði til Akureyrar. En það var austur á Langanesi, sem félagið hafði keypt hús og flutt til Ólafsfjarðar, og þar var það síðan reist aftur og settar í það nýjar hraðfrystivélar, með einu 72 pakka tæki. Gert er ráð fyrir, að bæta öðru frystitæki við innan skamms. — Frystihús þetta mun taka til starfa um mánaðamótin marz og apríl. Þá reisti félagið eitt hraðfrystihús í Hrísey með tveim 72 pakka hrað- frystitækjum, og er það tekið til starfa. í frystihúsið á Akureyri, sem er eitt elzta hraðfrystihús landsins, hefur verið bætt nýjum hraðfrysti- tækjum, og eru afköst þess nú 50% meiri en áður. Á Dalvík voru sett upp ný hraðfrystitæki og frysti- vélar. Félagið hefur þannig byggt 3 hraðfrystihús á síðastliðnu ári, og eins og gefur að skilja, hefur slíkt ákaflega mikla þýðingu fyrir afkomu fólks á félagssvæðinu. Kaupfélag Súgfirðinga. Félagið var stofnað síðastl. haust, eins og áður hefur verið sagt frá. Þann 6. des. síðastl. opnaði félagið hina nýju sölubúð, sem byggð var í haust. Þetta litla félag hefur haf- ið starf sitt með myndarskap. Það hefur byggt litla, snotra sölubúð og selt vörur fyrir kr. 8200,00, þann stutta tíma, sem það hefur starfað. Þótt félagsmenn séu ekki nema 27, mun félagið geta greitt 5% tekju- afgang. Félagssvæðið er lítið og fá- mennt, svo ekki má búast við stór- fenglegri verzlun, því aðstaða er þar ekki til þess. En þess má fylli- lega vænta, að þetta litla félag verði til verulegra hagsbóta fyrir Súgfirðinga, enda munu þeir menn, sem að stofnun félagsins standa og stjóma því, hafa fullan vilja á því að auka félagið og efla, en gæta þó fyllstu varfærni. Stefán á Múnkaþverá 75 ára. Stefán Jónsson bóndi á Múnka- þverá í Eyjafirði varð 75 ára 19. marz síðastliðinn. Stefán hefur alið allan aldur sinn á Múnkaþverá, nema nokkur ár, sem hann var í Ameríku. Stefán er mikill sam- vinnumaður og hefur hann verið í stjórn K. E. A. óslitið frá 1905—1937 að hann baðst undan endurkosn- ingu. Hefur hann notið mikils trausts félaga sinna,sem hinn langi starfstími hans ber með sér. Og fyrir nokkrum árum var Stefán gerður að heiðursfélaga í K. E. A. KRON hefur nýlega gefið út ársskýrslu fyrir 1940. Ber skýrslan það með sér að starfsemi félagsins hefur gengið vel síðastliðið ár.Aðalfundur mun verða síðast í apríl. í næsta hefti mun nánar verða sagt frá starfsemi Kron á síðastliðnu ári. Gl. R. 36

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.