Samvinnan


Samvinnan - 01.01.1952, Qupperneq 8

Samvinnan - 01.01.1952, Qupperneq 8
olíudeiluna í Iran? Þeir hafa lagt fram ítarlegar tillögur um lausn málsins DEILAN UM OLÍUNA í íran er eitt alvarlegasta vandamál, sem nú er óleyst þjóða í milli. Svo mikið er þar í veði, að menn hafa talið deil- una geta leitt til heimsstyrjaldar, þótt svo hafi sem betur fer ekki orðið enn. Deilan er ekki síður örlagarík vegna þess fordæmis, sem hún hefur gefið öðrum þjóðum Austurlanda í við- skiptum sínum við hinar gömlu ný- lenduþjóðir, og nægir að benda á Súezdeiluna sem dærni um fyrstu af- leiðingarnar á því sviði. Það, sem deiluaðilar halda fram, er í stórum dráttum sem hér segir: Persar segjast eiga auðlindir síns lands, vilja tryggja sér allan eða sem mestan afrakstur olíuvinnslunnar og hafa til þess þjóðnýtt eignir og rétt- indi Brezk-íranska olíufélagsins í íran. Bretar segja hins vegar, að hefðu þeir ekki byrjað olíuvinnslu í Iran væri óvíst, hvort þar væri enn unn- inn dropi úr jörðu, því að Persar hafi hvorki kunnáttu né fjármagn til slíkra framkvæmda. Þeir segjast hafa gert ótvíræða samninga við Persa, bjóðast til að endurskoða þá samninga og tryggja Persum meiri arð af olíu- vinnslunni, en telja það beint brot á samningnum að þjóðnýta Brezk- íranska olíufélagið. Það er hverju mannsbarni kunnara en frá þurfi að segja, hvað gerzt hef- ur í deilu þessari: Samningatilraunir Bretans Stokes og Ameríkumannsins Harrimans við Móhammed Mossa- dek, forsætisráðherra í Teheran, sem engan árangur báru að talizt gæti; æsingar í Iran, ekki sízt í olíuvinnslu- borginni Abadan; olíuvinnslan stöðv- uð og olíuskipin miklu sigla tóm til heimahafna sinna; brottflutningur brezkra starfsmanna frá Abadan og brezk heitiskip úti fyrir höfninni. All- ir þessir viðburðir eru í fersku minni. En sú fregn hefur vafalaust farið framhjá öllum þorra lesenda, ef henn- ar hefur nokkru sinni verið getið í blöðum eða útvarpi, að skömmu áð- ur en Averill Harriman, hinn reyndi og kunni sendimaður Trumans Bandaríkjaforseta, lagði af stað til Teheran í sáttaferð sína, kom maður til Washington vestan úr sveitum og bar fram tillögur um lausn hinnar al- varlegu deilu. Maðurinn heitir Ho- ward A. Cozvden og hann lagði fyrir Truman tillögu um lausn olíudeilunn- ar í tíu aðalliðum. Howard A. Cowden er einn af merkustu Ieiðtogum amerískra sam- vinnumanna og framkvæmdastjóri al- þjóða olíusambands samvinnumanna. Þær tillögur, sem hann lagði fram, eru í stuttu máli á þessa leið: 1) Réttur Persa til að þjóðnýta olíu- lindirnar verði viðurkenndur. 2) Brezk-íranska olíufélagið haldi eignarrétti sínum á olíuskipum og dreifingarkerfi olíunnar. 3) Komið verði á fót alþjóðlegu samvinnufyrirtæki til vinnslu^ hreinsunar, flutnings og dreifing- ar olíu, og geri það samninga til langs tíma við Breta og Persa. 4) I stjórn hins nýja samvinnufé- lags verði þrír Persar, þrír Bret- ar og þrír fulltrúar frá notendum olíunnar. 5) Hið nýja samvinnufélag greiði ríflega leigu til íran fyrir lejdi til olíuvinnslu. 6) Hið nýja samvinnufélag greiði ríflega leigu til Breta fyrir not af dreifingarkerfi persnesku olt- unnar. 7) Hvert þeirra ríkja, sem kaupa persneska olíu, skal eftir ákveð- inn tíma fá tækifæri til að kaupa þau mannvirki til dreifingar olíunni, sem eru í landi þess. 8) Hið nýja samvinnufélag endur- greiðir ágóða sinn til Indlands, Pakistan, Ástralíu og annara not- enda olíunnar. 4

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.