Samvinnan


Samvinnan - 01.01.1952, Síða 10

Samvinnan - 01.01.1952, Síða 10
^Sm ct íci cL renc^ur Smámyndir frá aldamótaánmum I. Þokan grúfði yfir dalnum, blýþung og úrsvöl, seig niður að hafinu, huldi eyrarnar, og sendi að öðru liverju hregggráar úðagusur suður yfir byggðina. Uðahjúpurinn lá eins og grár möttull yfir gróinni jörð, beygði niður puntföxin og blómleggina og draup af stráunum. Heima á Grund var óvenjulega dauflegt umhorfs. Kringum bæinn var dálítill blettur sleginn, hirtur og gróinn aftur þéttum þela. Annars var taðan í sæti um allan völlinn, og sát- urnar orðnar hvítgular utan, lágar, signar og afmyndaðar af þunga margra súldardaga. Niður á bæjar- grund var heyið í reglulegum drílu- flekkjum, og dríluraðir flekkjanna beinar, gulnað beyið skar glöggt af við slegna jörð. Yfir bænum sjálfum sást ekki ann- að lífsmark en reykurinn, sem lippað- ist í þéttum hnoðrum upp úr strompn- um, leitaði óðar niður á þekjurnar og læddist með jörðu, suður brekkuræt- urnar. Húsfreyjan var ein heima við búseldinn. Jafnvel hundarnir voru á engjum. Fólkið var að heyja suður í Grænamó. Piltarnir slógu á skyrtunni, blautir þó á öxlunr og lendum, hálf- loppnir með blauta vettlinga, allir nema jón bóndi. Hann sló berhentur og funheitur, vissi sjaldan til veðurs „sá gamli“ fyrir ákafa og hamförum að verki, sögðu piltar hans. Stúlkurn- ar voru að rakstri. „Alltaf megum við kássa þessari dellu,“ sagði Rúna kaupakona. „Það væri betra að fá hressilega rigningu, svo að gamli maðurinn færi að athuga rakstrar- veðrið.“ En engin þeirra vildi verða fyrst til að kvarta við húsbóndann. II. Siggi smali kúrði undir Stórasteini fram á Grundardal. Fyrstu vikumar eftir fráfærurnar hafði hann setið yf- ir uppi á heiði. Þá liðu dagarnir, hver af öðrum, bjartir og hlýir, með sól- skim og sunnanvindi. Þar voru ærn- ar dauðspakar, á beit í gróandi mýr- arflám, sem seint hafði leyst undan klaka, eða í víðinum og sandtöðunni á börðum. Hann hafði haft nóg af bókum, er húsfreyjan lánaði. Oft skapaði hann sér draumsýnir úr bók- anna heimi. Hann flutti hin fjarlægu undralönd bókanna heim til sín og setti þau niður á víðáttu heiðarinn- ar, klæddi söguhetjurnar eigin holdi og blóði, var þessi í dag, en önnur á morgun. En oftar lifði hann þó í veru- leika umhverfisins, og starfsþráin tók hugann fastan. Hann átti sér bólstað sunnan í Skollhólnum. Hóllinn var óreglulegt brúgald af hellugrjóti og mold, og gróður milli steinanna. Þar hafði Rebbi einu sinni átt greni. En bj^ggingar smalans skyldu nú ekki verða neitt „greni“. Hver hella í vegg- ina var valin af nákvæmni, felld með umhyggju við hina næstu, lag á lag ofan. Hér átti að koma smámynd af bænum hans heima, eins og hann yrði þegar hann reisti allt við. En vegg- irnir voru ekki nema hnéháir, þegar þokurnar komu og hröktu hann nið- ur af heiðinni með hjásetuna og ofan á dalinn. III. Gamla, þykka hríðarúlpan hans Jóns bónda var skjólfat hans og ábreiða undir steininum. Hún var græn af elli, grá af dögg. En hlýhugur búsfreyjunnar fylgdi henni. Ekki mundi mörgum konum hafa hug- kvæmst að láta hann hafa með sér slíkt höfuðþing. En bækurnar sínar lánaði hún ekki, þegar úrkomu var von. Hér var allt ömurlegt, einkum í dag. Inn í þrengslum afdalsins var þokan síðari, úðaskúrirnar langærri. Hér var ekki hægt að byggja, ekki að lesa, og ærnar miklu óspakari, sóttu upp í þokuna, leituðu heiðar- innar. Þó mátti treysta á fastar venj- ur þeirra. Þegar þær lögðust úr nón- inu, lágu þær oftast 1—2 stundir. Þann tíma var ekki annað að gera en liggja undir úlpunni, nasla í nestið og láta sér leiðast. I dag sem oftar reikaði hugurinn yfir liðna æfi. IV. Ut með firðinum rís hamrafjall, ógengt með sjó, nema með háfjöru. Utan við hamrana var láglendi. Þar stóð bærinn hans, Brimnes. Pabbi •lians var þar fæddur og uppalinn. Þar höfðu þau pabbi hans og mamma byrjað búskap fyrir 15 árum. Hann var elztur barnanna. Umhverfið þar var jafnan í huga hans á daginn og draumum hans um nætur. Víðsýni um, en endalaust haf norður. Sólin hvarf ekki á vorin og reis aldrei í 18 vikur á vetrum. I austn og vestri fjöll í fjarska, handan fjarða og nesja. I suðri reis Múlinn, með græn- um hlíðum að bænum. Þarna var kóngsríkið þeirra, sérstætt, afskorið frá öllum öðrum mannabyggðum, auðugt af gæðum lands og sjávar. Rekaviðurinn lá í röstum í fjörunni; þar mátti vænta margrar nýlundu, stundum óvæntra bappa. Eggver var þar, selveiði og allskonar fugl. Fjöru- beitin óbrigðul og kjarninn í landinu, svo að þeirra fé var fallegra og vænna en annara. Og svo var nú bærinn hans. Hver veggur var hlaðinn úr köntuðu grjóti, upp í gegn, allir hlaðnir af pabba eða afa. Ekki var eymt í viðina, hvorki máttarviði eða þiljum. Hann sá fyrir sér marga fjöl- ína, breiðar, þykkar, úr hörðum rauðaviði. Allt var smíðað og reist af þeim feðgum, föður hans og afa. Blessun hafði vaxið með barni hverju í því búi. Hann var elztur, 14 ára, fernrdur í vor, vanur því seinustu 4 árin að vera bóndinn, ef faðirinn var að heiman. Lágur vexti, en hraustur, traustur, þrekinn, kunni hann að standa undir ábyrgð fullorðins. Það mun hafa verið um þetta leyti í fyrra, að þeir feðgar voru að slá sílgrænt töðugresið suður í hvömmunum, ræktað af foki úr fjöru og framburði úr fjallinu. Pabbi settist á stall í (Frh. á bls. 8) 6

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.