Samvinnan


Samvinnan - 01.01.1952, Side 12

Samvinnan - 01.01.1952, Side 12
Sm ci ía Ji rencýur (Frh. af bls. 6) brekkunm og horfði á kappið í drengnum: „Einhverntíma verður J'iú kóngur hérna í litla ríkinu. Þig skort- ir hvorki elju né áhuga. Ég kvíði þt í ekki, að mig vanti ellistoðina.“ Reiðarslagið mikla kom um síðustu jól. Pabbi hans fór inn á Eyri, um fjörur, með morgunfjörunni á Þor- láksdag. Hann tók kvöldfjöruna til haka. En skömmu eftir för hans af Eyrinni brast á fárviðri. Eyrarmenn töldu víst að hann hefði sloppið norð- ur fyrir. Heima var beðið og vonað alla hríðarhviðuna um jólin. Aldrei kom hann heim. Ur nýárinu gerði stillur og bezta sjóveður. Þá mönnuðu Eyrarmenn stóran bát að sækja reka út á Brimnes. Þá var lnn veika von horfin. Aldrei hefur síðan til hans spurzt. Nú var drengurinn bóndirm til vors. Bjargaði reka og hagnýtti, hirti féð og kom öllu vel fram. I vor var allt selt á uppboði, fénaður og búslóð. Þrjú elztu börnin fóru í dvöl hjá vinum og frændum. Mamma fékk kofa á Eyrinni með tvö þau yngstu. Til hrepps þurfti ekki að leita. Hann sá allt fyrir sér. Bærinn einn og yfirgefinn. Túnið óslegið. Grasið greri yfir gullin þeirra systkina og húsin hans litlu. Selur sefur á steini. Æðarfuglinn „ummar“ á bæjarvíkinni í stórum flotum. Rekinn óhirtur. Skyldi nú ekki eitthvað stórmerkilegt vera að þvælast þar í öldugjálfrinu? Skvldu nú ærnar frá Brimnesi hafa nokkursstaðar tollað í kvíum fram í sveit? Eða sauðirnir þeirra? Skjddi ekki féð þeirra hafa ratað út yfir fjall, út Breiðaskarð, leiðina sem það var rekið suður yfir í vor? Ætli það sé nú ekki allt á gömlu slóðunum? Og Rauð- hjálma og Búkolla hvor á sínum bæ, með ókunnugum kúm, þær sem aldrei máttu hvor af annari sjá. Og mamma mjólkurlaus á Eyrinni. Hver mundi nú gá að Stjána og Stínu, þegar hún var í fiskþvotti? Og hann sjálfur ein- mana, horfinn og hrifinn frá öllu sem hann unni. En hann átti ekki að kvarta. Góðan fékk hann samastað. Hún Björg húsfreyja átti ekkert barn- ið sjálf. Hún var dul, hóglát, en hlý. Ekki vantaði umhyggjuna. Hún kom að rúminu á kvöldin, vafði að hon- um sængina, vakti hann hlýlega að morgni, bjó hann vel að fötum og plöggum og ríkulegu nesti. Nei, ekki að víla eða vola. Hann skyldi verða rnaður. Byggja aftur úti á nesinu sínu, betur og meira en for- feður hans. Hann skyldi læra tækni hins nýja tíma. Ríkið hans skyldi þar aftur rísa, og nú ekki kotríki . . . Val- ur flaug niður úr þokunni. Hópur af spóum hervæddist og brýndi hvella raust. Hann hratt af sér úlpunni. Ærn- ar höfðu gleymst um stund. Allar voru þær risnar á fætur og horfnar. Hann rakti daggslóðirnar inn dalinn. Taldi smáhópa á eyrunum með ánni, gætti sérstaklega að þeim dökkleitu. Loks vantaði aðeins 11. Forubílda er ein þeirra. Hann rakti enn daggslóðir. Það er óbærileg skömm að týna úr hjásetu. Upp með Lambárgili finnur hann þær Ioks, þær voru að hverfa í þokuna. Það er kominn kvíatími. Hann heldur heimleiðis með ærnar. V. Um kvöldið rofnaði þokuhjúpur- inn. Það kyrði. Sumir hnjúkar voru þokulausir. Annars staðar voru kyr- lát þokubelti í miðjum hlíðum. Sól- roða sló á hnjúka í austri, úr skörðum Vesturfjalla. Jón bóndi vissi það óræk- an þurrkboða. Nú fór þurrkdagur í bönd. Það voru nú nokkru meiri von- ir bundnar við uppbirtu á fimmtudag en þriðjudagsglórur. Bóndi vaknaði fyrir sólarupprás, athugaði öll veðurmörk, rölti inn og fram, vakti fólkið, þó að ekkert væri hægt að vinna að heyi fyrir daggar- sjónum á jörðinni. En áður en full þurr var döggin, var tekið að dreifa. Siggi var vakinn. „Er búið að mjólka?“ „Onei, en ánum verður sleppt í dag, Geiri hóar þeim heim í kvöld. Þú kemur í þurrkinn með hinu fólkinu.“ Hann var fljótur á fætur. Piltarn- ír báru sætið sundur, en hann var settur til úrsláttar með kvenfólki. Klukkan 10 var öll taðan flöt. Fólk- inu var skipt til snúnings, tveir og tveir saman. Félagi Sigga var hann Stjáni, strákur af Eyrinni, nýkominn í sumarvist. Fátt áttu þeir sameigin- legt. Stj áni vildi helzt alltaf vera að gera „eitthvert sprell“. Honum fannst Siggi „mesti þumban“. Ekki var kvik á nokkru strái. Tí- bráin titraði, loftið var þrungið af sól- skini, af unaði sumarsins. Blómin breiddu út krónurnar. Laufblöðin teyguðu birtuna, þyrsti í ljósið eftir margra vikna dumbungsveður. Mýið hófst á loft í þéttum hnöppum, iðandi og dansandi. Fiðrildi og hunangsflug- ur svifu milli blómhnappa. Sauðféð leitaði forsælu, lá jórtr- andi undir steinum og börðum. Hest- arnir lágu í grasbollum undir hlíðar- rótum, néru makkanum við jörðina, lömdu af sér flugur með taglinu. Kýrnar leituðu í dýpstu kíla og tjarn- ir, úðuðu stör og fergin, sperrtu hal- ann, slógu honum um hrygg og lend- ar. Hundarnir lágu á varpanum, laf- móðir með lafandi tungu. Fuglarnir voru allir á ferli, sungu nýjum rómi, ljúfar og glaðar en áður. Ár og lækir virtust einnig hafa vakn- að. Það var svo hljóðbært, að niður þeirra heyrðist gleggra en áður. 011 náttúran virtist halda hátíð í dag, Jmingin unaði og algleymi, eins og engin lífvera mundi í dag að þetta land ætti annað að bjóða en sólskin hásumarsdaga. Aðeins mennirnir urðii að erfiða og amstrast, loka augunum fyrir dá- semdum umhverfisins, taka á sig áhyggjur, alls þess glaða lífs, er lifði fyrir líðandi stund. Tveir og tveir fara um flekkina, ekki saman að eigin vali, heldur að skipun húsbóndans. Snúa, snúa, snúa, sömu hreyfingar, langar, nærri endalausar stundir. „Kra, kra, kra,“ sögðu tindarnir við stráin. Svit- inn draup af hverju andliti, leður- skórmr urðu harðir og hálir sem gler, fötin loddu við líkamann. Menn fór fljótt að verkja í kálfana af enda- lausu labbi. Flestir urðu berfættir og svo fáklæddir sern framast mátti, (Frh. d bls. 18) 8

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.