Samvinnan


Samvinnan - 01.01.1952, Síða 15

Samvinnan - 01.01.1952, Síða 15
Vetrarólympíu lei ka rni r í Oslo í næsta mánuði IslendLngar taka í annab sinn ípátt i lelkunum Sjöttn ólympísku vetrarleikarnir fara fram í Osló 14. til 25. næsta mán- aðar, og munu allmargir Islendingar verða meðal þátttakenda og væntan- lega einmg meðal áhorfenda. Hafa Norðmenn lagt á það mikið kapp að undirbúa þennan stórviðburð í heimi vetraríþrótta sem bezt, enda standa fáar þjóðir þeim framar í þeim leikj- um. Búast Norðmenn jafnframt við miklum ferðamannastraum í sam- bandi við leikana og mikilli landkynn- ingu, og er ólíklegt, að þær vonir þeirra bregðist. Hafa þeir, eins- og raunar fleiri þjóðir, skilið hversu mik- ið gildi íþróttanna er til að efla kynn- ingu og vináttu þjóða í milli, auk þess hve hollar þær eru æsku hverrar þjóð- ar um sig. Viðbúnaður Norðmanna hefur ver- ið margvíslegur. Þeir hafa reist nýtt og glæsilegt gistihús í Osló, Hotel Vik- ing, og munu blaðamenn frá öllum heimsálfum hafa þar aðsetur á leik- unum. Þá hefur verið gerður nýr leik- vangur fyrir íshockey og margvíslegar endurbætur gerðar á Bislet vellinum, þar sem aðalhátíðin fer fram, svo og á skíðabrekkunum utan við borgina. A Bislet, sem einnig er vettvangur sumaríþrótta, og íslendingar minnast af mörgum frækilegum sigrum í frjáls- íþróttum, munu allar hátíðlegar at- hafnir í sambandi við leikana fara fram, og þar verða einnig skautahlaup, skautadans og úrslit íshockeykeppn- innar. Svig og brun munu verða háð í Rödkleiva og Norefjell, en skíða- stökkið að sjálfsögðu í hinni frægu Holmenkollenbrekku. Þar munu skíðagöngur einnig hefjast og þær enda. Loks er íssleðabraut (bobsleða- braut öðru nafni), sem gerð hefur ver- ið við Frognerseteren. ÞÁTTAKA ÍSLENDINGA. Akveðið hefur verið, að Islending- ar sendi þátttakendur á þessa vetrar- ólympíuleika, og verður það þá í ann- að sinn, sem þeir taka þátt í slíkum leikum. Fyrst var það í St. Moritz í Sviss fyrir fjórum árum, er fjórir ís- lenzkir skíðamenn kepptu. Voru þeir nr. 64, 98 og 100 í bruni, nr. 48, 65 og 67 í tvíkeppni (bruni og svigi) og nr. 37 í skíðastökki. Að þessu sinni verða þátttakendur frá íslandi ellefu að tölu, og verður gaman að sjá, hvernig þeim gengur, en ferðin verð- ur nú styttri en síðast, loftslagsbreyt- ingin minni og vonandi aðstæður betri. Það mun sennilega verða nær ein- göngu í skíðaíþróttinni, sem Islend- ingar keppa, enda er sjaldan svo mik- ið staðviðri á íslandi, að skautaís haldist til lengdar, og hefur skauta- íþróttin því ekki komizt á sama stig og skíðaíþróttin. Skíðaíþróttin er gömul á íslandi og munu skíði hafa verið notuð til ferða- laga um vetur frá öndverðu. Það er þó ekki fyrr en um síðustu aldamót, sem almennur áhugi á íþrótt þessari vaknaði á Norðurlöndum, og átti ferð Friðþjófs Nansen á skíðum yfir Grænlandsjökul mikinn þátt í þeirri vakmngu. Barst þessi áhugi hingað til lands og áttu hin nýstofn- uðu ungmennafélög drjúgan þátt í út- breiðslu hans. Voru þá skíðamót hald- in víðs vegar um landið, en áhuginn dofnaði aftur, er dró fram að fyrri heimsstyrjöldinni. Norðmenn, sem búsettir voru hér á Iandi, áttu mikinn þátt í að efla áhuga á skíðaíþróttinni. Má nefna skíðaferð L. H. Miiller kaupmanns yfir Sprengisand 1925 sem dæmi þess. Eftir 1930 vaknar aftur mikill áhugi á þessari fögru íþrótt, og er þá byrj- að að byggja skíðaskála. Mun hinn fyrsti hafa verið Skíðheimar á Selja- landsdal við ísafjörð og sumarið 1931 reistu Akureyringar Skíðastaði. Revk- víkingar byggðu skíðaskálann í Hveradölum 1935 og var þá áhugi 11

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.