Samvinnan


Samvinnan - 01.01.1952, Síða 16

Samvinnan - 01.01.1952, Síða 16
Hcr sést liin jrœga Holmenkollenbraul skammt ulan við Osló, þar sem hluti af vetrarleikunum verður haldinn i nœsta mánuði. meSal höfuðstaðarbúa á skíðaferðum mjög að aukast. Erlendir skíðakennarar hafa átt mjög mikinn þátt í þróun skíðaíþrótt- arinnar hér á landi síðustu árin. A Siglufirði var Norðmaðurinn Helge Torvö nokkur ár og á Isafirði Svíinn Georg Tufvesson, og munu þeir (ásamt hentugum náttúruskilyrðum) hafa átt verulegan þátt í því, hve margir góðir skíðamenn hafa komið frá þessum stöðum. Fyrsta skíðalandsmót Islands var háð í marz 1937 í Hveradölum, og voru keppendur 41. Markar mót þetta tímamót í sögu íþróttarinnar hér á landi, og hafa verið haldin landsmót æ síðan, áhuginn farið vaxandi, er- lendir skíðakappar komið til lands- ins og íslenzkir farið utan. Vonandi verður ferð sveitarinnar á vetrar- leikana ólympísku í Osló enn til þess að auka áhuga Islendinga á þessari hollu og fögru íþrótt. ÍSLENZKU KEPPENDURNIR í OSLÓ. Lað hefur nú verið ákveðið, hverj- ír taka þátt í keppni fyrir Islands hönd á ólympísku leikunum í Osló. Munu eftirtaldir menn keppa í skíða- göngu, 17 km., 50 km. og 4x10 km. boðgöngu, en óákveðið er, hverjir keppa í hvaða grein: Ebenezar Þórarinsson, Iþróttafélag- inu Armanni, Skutulsfirði. Gunnar Pétursson, sama félagi. Ivar Stefánsson, Ungmennafélaginu Mývetning. Jón Kristjánsson, sama félagi. Mattbías Kristjánsson, sama félagi. Oddur Pétursson, Iþróttafélaginu Ármanni, Skutulsfirði. Þá hefur verið ákveðið, að einn maður keppi í skíðastökki, en það er Ari Guðmundsson, Skíðafélagi Siglu- fjarðar. I svigi, bruni og stórsvigi keppa þessir menn: Haukur Ó. Sigurðsson, Knatt- spyrnufélaginu Herði, ísafirði. Magnús Brynjólfsson, Knattsp.fél. Akureyrar. Stefán Kristjánsson, Glímufélaginu Ármanni, Reykjavík. Ásgeir Eyjólfsson, sama félagi. Vonandi verður tíðarfar hagstætt fyrir leikana í Osló, en það hefur kom- ið fyrir, að veðrið hefur gereyðilagt vetrarólympíuleika. Var það í St. Mo- ritz í Sviss 1928, og urðu þeir leikar mörgum, ekki sízt Svisslendingum sjálfum, mikil vonbrigði. En við það verður ekki ráðið. Brezku samvinnufélögin opnuðu 1946 ferðaskrifstofu samvinnumanna, og hefur hún starfað æ síðan með hraðvaxandi árangri, og er nú ein af stærstu slíkum stofnunum í Bretlandi. Hefur skrifstofan reynt að skipu- leggja hópferðir, meðal annars til meginlandsins, og gera þær ódýrari en áður hefur tíðkazt. Samvinnuhre}4ingin í Japan hefur risið fljótt úr rústum styrjaldarinn- ar, og eru nú 8 000 000 meðlimir í samvinnufélögum ýmis konar í sveit- um landsins. Eru að vísu ekki nema 6 000 000 býli í landinu, en margir bændur eru í mörgum félögum. Olíudeilan ... (Frh. af bls. 5) Enn er því miður ekki svo að sjá, sem tillögum samvinnumanna bafi verið veittur sá gaumur, að vænta megi framkvæmda á grundvelli þeirra, enda mun vafalaust þörf á að vinna almenningsálit til fylgis við þær frekar en enn hefur tekizt. En hver hugsandi maður getur við lestur á hinum tíu atriðum í tillögum Cow- dens séð, að þær eru raunhæfar og framkvæmanlegar, og báðir aðilar ættu að geta vel við þær unað. En það mun enn þurfa hugarfarsbreyt- mgu bjá mörgum leiðtogum á sviði framleiðslu, viðskipta og stjórnmála, áður en samvinnuhugsjónin fær tæki- færi til að sýna gildi sitt í lausn stór- felldra vandamála í viðskiptum þjóða, eins og hún hefur þegar gerbreytt viðhorfum í viðskiptamálum ein- staklinga og héraða, þar sem hún hef- ur fest rætur. 12

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.