Samvinnan


Samvinnan - 01.01.1952, Blaðsíða 17

Samvinnan - 01.01.1952, Blaðsíða 17
Tilraun með samvinnubyggðir Samvinnuhugsjónin hefur komið fram á mörgum sviðum og verið notuð til lausnar á margvíslegum vandamálum. Lengst hefur þó fólk gengið, er það hefur rifið sig upp frá rótum og setzt að í byggðarlögum, sem rekin hafa verið meira eða minna á samvinnugrundvelli. Þessar tilraunir til „samvinnu- byggða“ má rekja■ langt aftur í tímann, og koma hinar „trúarlegu“ ekki beint við sögu samvinnuhreyfingarinnar, en menn eins og Owen eru meðal frum- herja hugsjónarinnar, sem samvinnuhreyfing nútímans byggist á, Er fróð- legt að kynnast samvinnubyggðunum, og er þessi grein endursagður og nokk- uð styttur fyrsti kaflinn í bókinni „Cooperative Communities at Work“ eftir Henrik F. Infield. I Bandaríkjunum er vitað um, að stofnuð hafi verið 262 samvinnu- byggðarlög, en nokkur þeirra munu þó aðeins vera hreppar í samvinnu- sveitum. Svipaðar byggðir hafa ver- ið settar á stofn í Evrópu, þótt þær hafi verið færri. Yfirleitt stóðu þess- ar tilraunir stuttan tíma, hvort sem var í Evrópu eða Ameríku. Sam- kvæmt upplýsingum, sem Lee Emer- son Deets hefur tekið saman um 130 byggðir, voru 91 við lýði minna en áratug, 59 minna en fimm ár og 32 aðeins eitt ár. Nokkrar þessara byggða hafa samt orðið meira en aldargamlar. Þrem þeirra hefur nú verið hætt: Ephrata Cloister í Pennsylvaníufylki, sem varð 173 ára (1732 til 1905), Shaker- byggðunum, sem voru á ýmsum stöð- um í Bandaríkjunum (1778 til ca. 1940) og Harmónistum, öðru nafni Rappistum, sem reistu bt^ggðir í Pennsylvaníu og Indíanafylkjum, er héldu saman í hundrað ár (1805— 1905). Þrjár aðrar byggðir, sem rekja sögu sína aftur á 18. öld, og ein alla leið aftur á 16. öld, eru enn til. Þetta eru Amanabyggð í Iowa, stofnsett í Evrópu 1714, en fluttist til Banda- ríkjanna 1842; Doukhoborar, sem bundust samtökunr í Rússlandi á miðri 18. öld, fluttust til Kanada unr 1879 og búa þar enn'í nokkrum sam- vinnubyggðum. Loks eru Hutterít- arnir, sem stofnuðu félagsskap sinn í Móravíu 1528. Þeir fluttust til Banda- ríkjanna 1874 og búa í fimmtíu byggð- um í Suður-Dakota, Montana og í tveim fylkjum Kanada, Manitoba og Alberta. TILGANGUR BYGGÐANNA. Skipta má öllum samvinnubyggð- um í tvo flokka eftir megintilgangi þeirra. Eru það trúarlegar samvinnu- byggðir annars vegar, og byggðir til félagslegra umbóta hins vegar, og hafa hinar trúarlegu byggðir reynzt langlífari. Aðaltilgangur þeirra, sem af trúar- legum orsökum bundust samtökum um samvinnubyggðir, var að snúa aftur til uppruna kristindómsins og lifa á líkan hátt og Jesú gerði með Iærisveinum sínum. Menn, senr helg- uðu sig þessari hugsjón, voru hvergi nærri ánægðir með siðabótina, og voru þeir tíðum sjálfir taldir trúvill- ingar og gerðir brottrækir úr heim- kynnum sínum. Var þá Iandnám í nýjum heimi eina úrræðið og fluttust þannig heilir trúarflokkar til Ameríku og settust þar að í samvinnubyggð- unr. Þjóðfélagslegar umbætur voru hins vegar aðaltilgangur þeirra hreyfinga, sem kenndar eru við Fourier, Owen og Icaríu Etiennes Cabot, og annara svipaðra byggða. Stofnendur þessara byggða voru á marga lund ólíkir, en þeir áttu það sameiginlegt að vera ntjög óánægðir með lífskjör þjóða sinna, sérstaklega hinna „lægri stétta“. Þá dreymdi um að finna eina lausn, er leyst gæti öll vandamál þjóðfélagsins, og þeir töldu sig hafa Þannig hugsaði Owen sér, að samvinnubyggðin œtti að lita út. fundið slíka lausn í hugnryndinni um samvinnubyggðir. REYNSLAN AF BYGGÐUNUM. Ef litið er yfir þá reynslu, sem feng- izt hefur af byggðum þessum, kemur fyrst til hugar, hversu mjög skorti á skipulagðan undirbúning. Hvort sem byggðirnar lifðu nokkur ár eða nokkra mannsaldra, hefur þessi skort- ur á skipulögðum undirbúningi orð- ið til þess, að lítið er hægt að styðj- ast við þessa reynslu í sanrbandi við stofnun byggða nú á dögum. Þetta kemur til dænris fram í vandamálinu um val meðlima, senr virðist hafa verið algerlega vanrækt. I trúarbyggðunum var yfirlýsing um „rétta“ trú hið eina, sem krafizt var til inngöngu. Hefur þetta vafa- laust reynzt nægilegt í mörgum sam- tökum, en aðeins vegna þess, hvernig aðstæður þá voru, og verður slíkt varla endurtekið nú á dögum. I byggðum unrbótamannanna voru skilyrði til inngöngu enn ófullkomn- ari, enda hugðust stofnendur þeirra leysa öll vandamál mannlegs þjóðfé- lags og áttu því erfitt með að útiloka nokkurn mann. Eitt rnesta vandamál þessara byggða var forustan. í trúarbyggð- unum var stjórnin svo til ávallt fal- in hinum andlega leiðtoga eða stofn- anda. Þetta hafði þá kosti, að stjórn- in var sterk og óskipt, en örlög byggð- arinnar voru þá algerlega háð hæfni og duttlungum eins manns. Reynslan varð því sú, að fjöldinn allur af þess- 13

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.