Samvinnan


Samvinnan - 01.01.1952, Qupperneq 18

Samvinnan - 01.01.1952, Qupperneq 18
um byggðum lifði ekki lengi eftir dauða leiðtogans. Byggðir umbótamannanna reistu á hugsjón frekar en trú, og höf- undur bugsjónarinnar varð því leið- togi — ef ein undantekning er frá skilin, Fourier, en kenningar hans voru ekki framkvæmdar fyrr en eft- ir dauða hans. Owen og Cabot tóku sjálfir þátt í stofnun byggðarlaga, svo að nefndir séu hinir kunnustu þess- ara hugsuða. Urðu þeir oft að koma á sættum, þegar deilur risu milli fylg- ismanna þeirra. Enda þótt mjög skorti á skipulagð- an undirbúning, verður það að við- urkennast, að þessar byggðir komust langt í því að koma á víðtækari sam- vinnu, sérstaklega hin trúarlegu. Meg- inhugmynd þeirra var ekki fjarri hug- sjóninni um að frá hverjum komi eft- ir getu hans og til hvers renni eftir þörfum. Svona var þetta einnig hjá umbótamönnunum, enda þótt þar kenndi og ýmissa grasa í þessum efn- um. Fourier-byggðirnar höfðu til dæmis eingöngu samvinnu um fram- leiðsluna, og voru því að vissu leyti ekki annað en hlutafélög. Þær höfðu sameiginleg eldhús fyrir alla byggð- ina, en að öðru leyti var fylgt lög- málum eignarréttarins. Hver meðlim- ur fékk arð eftir fjölda hluta, sem hann átti. Þess hefur þegar verið getið, að mikill meirihluti þessara samvinnu- byggða lagðist niður. Samt sem áður eru flestir sammála um það, að svo fór sjaldnast af efnahagslegum ástæð- um. Enda þótt landskostir þessara byggða væru ekki alltaf miklir og lít- ið um stofnfé, voru slíkir erfiðleikar yfirstígnir með nýju landnámi og mikilli atorku. Það verður því að at- huga önnur atriði en efnahagsmál til að finna orsök þess, að þessum byggð- um varð ekki lengri lífdaga auðið. Ralph Albertsson, sem athugað hef- ur allmargar slíkar byggðir, segir: „Fáar eða engar þessar byggðir lögð- ust niður af því að þær gætu ekki tryggt lífskjör meðlimanna . . . sem samfélög til sjálfsbjargar unnu þær veruleg afrek.“ Charles Gide fer eftirfarandi orð- um um eignir Shakaranna: „Auður þessara byggða var áætlaður 10 til 12 milljónir dala, eða 1000 á hvern mann, sem er mjög mikið, því að meðalauður á hvern Frakka er 300 dalir . . . .“ Orsakir þess, að hætt var við sam- vinnubyggðirnar, munu hins vegar öllu frekar vera léleg staðsetning og loftslag, skortur á samgöngum. Þær leystust svo upp vegna deilna milli meðlimanna eða þeirra og stjórnend- endanna eða af því að meðlimirnir höfðu ekki næga reynslu í búnaðar- málum. Þrátt fyrir allt eru enn til margar samvinnubyggðir og enn er verið að koma þeim á fót. Hutteritarnir eru enn við lýði, og af byggðum, sem ekki h}^ggjast á trúarlegum grundvelli, eru í Bandaríkjunum til t. d. New Llano og Gyðingabyggðin Sunrise Colony. Af öðrum slíkum byggðum má nefna Kolkhozbýlin í Sovétríkjunum og Kvutzabverfin í Palestínu. Kaupfélag Hafnfirðinga (Frh. af bls. 7) af skóm, sem fyrirliggjandi eru. I þeim enda búðarinnar, sem hefur karlmannafatnað ýmis konar, er meðal annars klefi til að máta föt og sérstök innrétting til geymslu á karlmannafötum. Veiðarfæraverzlunin er í þeim enda hússins, sem að höfninni snýr. Er þar hafður frammi vinnufatnað- ur, sjófatnaður, verkfæri ýmiskonar, málning og lökk og margt fleira, en mikið af veiðarfærunum sjálfum er eðlilega ekki þannig, að þau liggi frammi á búðardiski. Rúmgóðar gejrmslur eru því aftan við verzlun- ina, og má þar sjá uppsettar línur og margt þvílíkt. Hefur kaupfélagið haft mikla veiðarfæraverzlun beint af lager undanfarin ár, og má nefna það dæmi, að í fyrra seldi það 12— 1300 reknetaslöngur. Deildarstjóri í veiðarfæraverzluninni er Kjartan Olafsson. Samkeppni er mjög hörð í verzlun- inni í Hafnarfirði, og er því ánægju- legra að sjá hið unga kaupfélag vaxa og færa út kvíarnar. Félagið nýtur dugandi forustu ungs kaupfélags- stjóra, og vonandi ber framsýni hans þann ávöxt, að Hafnfirðingar snúi í æ ríkara mæli viðskiptum sínum til þess. Athyglisvert lán Samband sænsku samvinnufélag- anna, Kooperativa Förbundet, hefur nýlega boðið út 40—100 milljón króna láni, og er hærra takmarkið sett sökum þess, að þeim sem eiga eldri skuldabréf KF mun gefast kostur á að breyta þeim í hin nýju, sem vafalaust verða hagstæðari. Það er sérstaklega athyglisvert við þetta nýja lán, að KF lofar að bæla lánveitendum rýrnun á verðgildi peninganna. Lánið verður til tuttugu ára, eða til 1972, og rýrni verðgildi sænsku krónunnar á þessu tímabili, mun KF endurgreiða lánið 1972 að viðbættri uppbót fyrir þeirri rýrnun, en þó ekki meira en 50%. Reglur eru settar um það, hvernig ákvarða skuli gildi sænsku krónunnar, þegar lánið verður greitt, en lánveitendur fá ekki rýrnunaruppbót, ef þeir inn- leysa bréfin fyrir 1972. Vextir af láni þessu verða 3%. Þau hin eldri lán, sem KF hugsar sér að fella inn í þetta lán (og að sjálfsögðu hafa ekki haft rýrnunar- ákvæðið, sem er nýtt af nálinni), eru áburðarverksmiðjulán frá 1943, 9,9 milljónir króna sænskar, og iðn- aðarlán frá 1947, sem nam 51,5 milljónum sænskum. Hin nýju skuldabréf verða að gildi frá 100 krónum sænskum upp í 5000 kr. Kaupfélag Stokkhólmsborgar, sem er hið stærsta í Svíþjóð, hafði á síð- astliðnu ári 145 000 meðlimi og 285 milljón króna veltu. Félagið hafði 822 verzlanir, þar af 141 kjötverzlun, 38 fiskbúðir, 337 búðir fyrir brauð, mjólk og sælgæti og 11 sjálfafgreiðslubúðir. Félagið á 10 veitingahús og 9 minni greiðasölustaði. Enda þótt félagið kaupi mikinn hluta af vörum sínum af KF, rekur það sína eigin heildsölu, sem seldi fyrir 90 milljónir sænskra króna í fyrra. Félagið rekur brauð- verksmiðju, þar sem 550 manns vinna, kjötmiðstöð og kaffibrennslu. 14

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.