Samvinnan - 01.01.1952, Side 19
Svipir iamtí&i
armanna.
Robert A. Lovett
Bankastjóri og ftugmaður, sem nú er
hermáiaráðherra Bandaríkjanna
Robert A. Lovett.
SÚ ER REYNSLA lýðræðisþjóða af
langri sögu, að óbreyttir borgarar, en
ekki herforingjar, eigi að fara með
yíirstjórn allra hermála, því að erf-
itt sé að treysta herforingjum til að
ákveða hvar og hvenær beita skuli
vopnum, og hversu mikil ástæða sé til
að vígbúast á hverjum tíma. í sam-
ræmi við þetta er til dæmis Banda-
ríkjaforseti yfirmaður alls herstyrks
síns lands, hann hefur sér til aðstoð-
ar hermálaráðherra, sem einnig er
settur yfir alla her- og flotaforingja
landsins. Að vísu var fyrrverandi her-
foringi, George Marshall, nýlega her-
málaráðherra, en það er hrein und-
antekning, og nú er það bankastjóri
frá New York, sem þá stöðu skipar.
NÚVERANDI HERMÁLARÁÐHERRA
Bandaríkjanna heitir Robert Lovett.
Hann er heldur hlédrægur maður,
hefur engin afskipti haft af stjórn-
málum og ber því minna á honum en
mörgum ómerkari mönnum þar
vestra. En þó er starf Lovetts og mað-
urinn sjálfur hið athyglisverðasta.
LOVETT stjórnar nú mesta vígbún-
aði, sem nokkurt land hefur tekizt
fyrir hendur á friðartímum. Óhemju
upphæðum er nú veitt til þess að
auka varnarstyrk lýðræðisríkjanna og
er þetta starf að mestu leyti í hönd-
um Lovetts. Hann samhæfir átak í
verksmiðjum, við þjálfun og við skip-
an herstyrksins, stjórnar her, flota og
flugher, samræmir störf þessara að-
ila og steypir öllu þessu í eina heild.
LOVETT er af auðugu fólki kom-
inn. Hann fæddist í Texasfylki 1895,
og var faðir hans þar lögfræðingur
fyrir hið volduga Union Pacific járn-
brautarfélag. Hækkaði faðirinn stöð-
ugt í tign, unz hann varð forseti fé-
lagsins og fjölskyldan fluttist til New
York. Robert var einbirni, og var hann
alinn upp við allsnægtir. Hann stund-
aði nám í Yale háskólanum og sýndi
þar mikla námshæfileika. Þegar fyrri
heimsstyrjöldin brauzt út, gerðist
hann flugmaður og tók þátt í loft-
orrustum við Þjóðverja í Frakklandi.
Gat hann sér frægðarorð sem flug-
maður og hlaut mörg heiðursmerki.
EFTIR STRÍÐIÐ settist Lovett aft-
ur á skólabekk um hríð og fullnam
lögfræði. Hann giftist bankastjóra-
dóttur og fékk brátt ábyrgðarstöðu í
fyrirtæki tengdaföður síns. Að vísu
var hann sjálfur svo vel efnaður, að
hann hefði ekki þurft að gera hand-
tak, en hann undi ekki slíku lífi og
var sívinnandi.
TVEIM ÁRUM áður en seinni heims-
styrjöldin brauzt út, byrjaði Lovett
að æfa sig í flugi á nýjan leik. Hann
þóttist þá sjá, hvað var framundan.
Ekki hefur hann gert sér vonir um
að fljúga aftur, en hann komst svo
vel inn í flugvélaframleiðslu, að hann
skrifaði ítarlega ritgerð um það mál.
Þessa ritsmíð sá James Forestall, fyrr-
um landvarnarráðherra, og varð hann
svo hrifinn af Lovett, að hann fékk
hann til að fara til Washington í
striðsbyrjun og takast á hendur starf
aðstoðarhermálaráðherra, er stjórn-
aði flugvélaframleiðslu. í þessu starfi
vann Lovett hrein kraftaverk, enda
veitti Bandaríkjamönnum og banda-
mönnum þeirra ekki af auknum flug-
vélastyrk framan af styrjöldinni. í
þessu starfi kynntist Lovett George
Marshall, sem þá var formaður her-
foringjaráðs Bandaríkjanna og tókst
með þeim mikil vinátta.
ÞEGAR MARSHALL varð utanrík-
isráðherra Trumans eftir styrjöldina,
kallaði hann Lovett sér til aðstoðar,
og enn yfirgaf Lovett rólega hálauna-
stöðu í New York til að ganga í þjón-
ustu hins opinbera. Er það frægt orð-
ið, hvernig þeir störfuðu saman að
utanríkismálunum, Marshall og Lo-
vett, og liggja eftir þá máttarstoðir í
utanríkisstefnu Bandaríkjanna: Mar-
shall-áætlunin, Truman-áætlunin
(aðstoð við Grikki og Tyrki), loftbrú-
in í Berlín á sínum tíma og Atlants-
hafsbandalagið.
LOVETT fékk lausn frá þessu emb-
ætti um leið og Marshall lagði niður
ráðherraembættið. Fór hann þá enn
til New York, tók upp fyrri störf sín
og byrjaði að byggja sér minna íbúð-
arhús og þægilegra en hann áður
hafði, þar sem börn hans tvö voru nú
farin að heiman. En hann fékk ekki
langa hvíld, hversu girnilegt líf, sem
hann gat átt fyrir höndum. Símtal
frá Hvíta húsinu kallaði hann enn til
Washington, og aftur varð hann
hægri hönd Marshalls, nú í hermála-
ráðuneytinu eftir að Kóreustyrjöldin
hófst. Þegar Marshall fékk lausn frá
því embætti, tók Lovett við því.
15