Samvinnan


Samvinnan - 01.01.1952, Qupperneq 21

Samvinnan - 01.01.1952, Qupperneq 21
f'á land mitt. . . Þú land mitt, með háfjöllin hvít- púðruð snjó og heilmikinn, lillaðan plastiksjó og póleruð svell og penan mó og praktískan gljúfrafoss. Með Iogandi sætar silungsár og sallafín blóm og daggartár og agaleg hraun og glannagjár og gírastirð jeppahross. A hrottaspani um húmsins ós taka hott og jitterbug norðursins ljós, en ungi bóndinn fer út í fjós og æfir sinn þýzka ræl. I snarkreisý geimi fer rokið á rúss með rigningarkokkteil og slyddusjúss og kraphn'ðarsnapsa og kornélasjúss; o-key, — það er allt í stæl. Ælövjú, ælövjú, Ijósa vor, með lindaslagara í hlíðarskor og blíðvindajass og spóaspor og spinngalar ástarþrár. Er kvöldroðans smarta geislaglit grísar út skýin með varalit og öldurnar glápa alveg bit á ólifðra drauma sár . . . Siíj-ur Lajóit óinó Um hafdjúpin sveimar hin silfraða mergð, enginn veit og enginn veit hvað ákveður hennar ferð. Enginn veit hver þylur það álagsorð, sem hausnum snýr í öfuga átt við sporð. Hitt vita allir að í því býr heill vorrar þjóðar hvert hausinn snýr . . . Ocle (jjloriviÁ CjrcíóÍc epporum Ode Glorius Gráslepporum Saltgrásleppa hefur verið breidd til þurrkunar á klappirnar fyrir ofan Selsvör . . . Sjmgja síkvikar silfurbárur hafgúfuslagara hvítum sandi; klappar selgæi á klett brimsorfinn hrynjönd seiðmjúka hrcifum stinnum. Þenur marbendill þrútnum vörum kvein trombónu úr kufungsnefi, knýr bláhveli kontrabassa þarastrengjuðum þöngulboga. Skekur gaddskata skráphala og börð, kjálkum japlandi í jitterbuggi. Hamast hámerar í hröðum polka; gapa golþorskar í girndarsamba . . . Hauslaus og flött á hörðu grjóti sefur þú heldúr, saltgrásleppa; móktir þú áður á mjúkum þangbeði; dreymandi fyrir dag- látum í djúpi bláu. Ropa rauðmagar í röl við sprökur, en slompaðir hákarlar slást um ástir feitra, fjöllyndra flyðrudrósa . . . Sefur þú og sefur, saltgrásleppa. Sefur þú og sefur svefninum langa, glaumi hafbúa glejundi og fjarri, þvegin af hveljunnar hviku girndum friðarins salti á fiskinn stráð. Sefur þú sæl, er Sdfurskarti, sá, er ást þína unga ginnti, iðar kambi við öfugkjöftu í sama þangrunni og sáuzt þið fyrst . . . Dimmt er í djúpum, dylja þau margt. Senn þér í potti suðan vaggar; dýrð mun þér búin á diski rósgullnum, unaður algleymis innan vara. 17

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.