Samvinnan - 01.01.1952, Síða 25
Svampþurrka ...
(Frh. af bls. 19)
renna svampinum yfir hana og hann
sýgur hana í sig. Húsmóðirin þarf
ekki einu sinni að beygja sig.
En sagan er ekki þar með á enda.
Nú er eftir að „vinda“ svampinn, ná
úr honum vætunni, svo að hægt sé
að nota hann áfram. Til þess er málm-
plata fest við plötuna, sem svampur-
inn er fastur við, og er þessi plata á
hjörum og með léttu handfangi. Nú
er hægt að taka í handfangið, pressa
svampinn með plötunm og þrýsta
þannig öllu vatni úr honum með einu
handtaki. Þá er bæði búið að þurrka
bleytuna upp án þess að krjúpa eða
beygja bak, og vinda „klútinn“ án
þess að bleyta fingurna. Fyrir utan
þægindin, sem þetta veitir, og erfið-
ið, sem það sparar, verndar þetta við-
kvæmar hendur, og ættu yngri hús-
mæður, sem vilja fara vel með hend-
ur sínar, að kunna að meta það.
Svampþurrkan er mjög hentug til
þess að þurrka úr gluggum. Hún sýg-
ur í sig vatnið og það er síðan pressað
úr henni án þess að hendur húsmóð-
urinnar blotni eða kólni. Ennfremur
er mjög þægilegt að strjúka af gólfi,
til dæmis á göngum, með svamp-
þurrkunni, á milli þess sem gólfin fá
fullkominn þvott, og loks er hægt að
nota svampþurrkuna til að þvo gólf-
in alveg. Svampþurrkur kosta í
Bandaríkjunum 4 dollara í smásölu
eða rúmlega 65 krónur, og mundi það
vafalaust vel þegið af húsmæðrum, ef
þær væru fluttar inn með öllum þeim
aragrúa af heimilistækjum, sem flutt
eru inn tyrir milljónir króna.
Óöldin okkar
(Frh. af bls. 16)
þessi leikrit eru orðin, né hve dulnefnin eru
orðin mörg, enda er hann fyrir löngu tekinn
að gangast við öllu, sem upp á hann er borið
i peim efnum. Auk leikpátla hefur Loftur skrif-
að kynstur af gamanvisum fyrir skopleikara,
ferðabók (Þeir fundu lönd og leiðir) og barna-
bœkur, sem hann myndskrcytir sjálfur. Hann
er einn af leiklistargagnrýnendum höfuðstaðar-
ins, og loks hefur hann birt undir fullu nafni
riokkuð af kvœðum, sem sýna, að hann getur
lagt frá sér hrœrivelina og gert fögur, lýrisk
Ijóð.
IÐUNN AR-SKOR
# * #
Hvers vegna líður öllum bezt í IÐUNNAR-skóm?
Það er fyrst og fremst sökum þess, að allir IÐUNNAR-skór eru
sérstaklega lagaðir fyrir íslenzkt fótlag.
Auk þess eru allir IÐUNNAR-skór smekklegir, vandaðir og ódýrir.
Gangið í IÐUNNAR-skóm, þá líður ykkur vel.
Skinnaverksmiðjan IÐUNN
— Skógerðin —
j Hann er ánægður, honum líð-
j ur vel í GEFJUNAR-fötum,
j innst sem yzt.
j Þau eru smekkleg, skjólgóð og
henta bezt íslenzku veðurfari.
GEFJUN vinnur sífellt að því
að bæta og fullkomna fram-
leiðslu sína, með nýjum og
fullkomnari vélum og með því
að taka í þjónustu sína hvers
konar nýjungar, sem fram
koma á sviði ullariðnaðarins í
heiminum.
I Ullarverksmiðjan
| GEFJUN
Akureyri
i/mum
Áar Sc
ami/uinuna
___l
21