Samvinnan - 01.03.1954, Qupperneq 22
= iimiim miiimiimiiimiiiiiiimimm iii iiimmiiiiiimi iii i m ii ii nt ■■ iiiiiiiniiii m iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuii iii iin ii iiiiiiiii|iii||||||miiiiiii||||||imi, ||
Sænsku kaupfélögin hefja mikla
verðlækkunarherferð á nauðsynjum
Samvinnufélögin í Svíþjóð hófu á
síðasta hausti mikla verðlækkunar-
herferð, sem hefur leitt til þess, að
neytendum landsins hafa sparazt
milljónir króna. Var herferð þessari
einkum beint gegn þeim vörutegund-
um, þar sem framleiðendur eða kaup-
menn höfðu gert samkomulag um
fast verð — venjulega ríflegt fyrir
sjólfa sig.
Herferð þessi byrjaði um svipað
leyti í Stokkhólmi og utan höfuðborg-
arinnar. Smám saman birtust til-
kynningar um lækkanir á fleiri og
fleiri vörutegundum, unz það varð
öllum landslýð ljóst, að hér var um
víðtæka, skipulega herferð sam-
vinnufélaganna að ræða.
A nokkrum vikum lækkuðu lcaup-
félögin verð á eftirtöldum vörum:
eggjum, kaffi, salti, mjölvöru, sáp-
um, ryksugum, sykri, perum, niður-
soðnum fiski, þurrkuðum og nýjum
ávöxtum, kjöti og niðursoðnum
kjötvörum. Verð á smjörlíki var
lækkað um 4% og einkafyrirtæki
urðu að fylgjast með. Var þessi
lækkun ein gífurlegur sparnaður
fyrir sænsk heimili.
Smám saman var sóknin gerð á
breiðari grundvelli. Einkafyrirtæki
tilkynntu, að álagning á brauðum
væri svo lág, að ógerningur væri að
lækka verðið. Sænska Sambandið
svaraði með verðlækkun bæði á
brauði og mjölvöru.
Margar þeirra vörutegunda, sem
samvinnumenn lækkuðu verðið á, eru
framleiddar í þeirra eigin verksmiðj-
um, til dæmis EVE smjörlíkið, Persil
þvottaduftið, Liima perur o. fl.
Jafnvel á sviði olíu- og benzín-
verzlunar var verð lækkað, og höfðu
samvinnufyrirtæki þar forustuna.
Samtals mun lœkkunin á þeim
vörutegundum, sem lcekkaðar voru,
hafa verið að meðaltali 6%.
Ein afleiðing þessarar herferðar
hinna sænsku samvinnumanna er sú.
að neytendur hafa veitt verðlagi
meiri athygli en áður og fylgjast bet-
ur með því, hvað þeir greiða fyrir
vörurnar.
Ástæðan til þess, að sænsku kaup-
félögin gátu gert slíkt átak, er m. a.
sú, að verð á hráefnum hefur lækk-
að nokkuð og létt hefur verið á
hömlum á innkaupum þeirra. En
höfuðástæðan er þó sú, að samvinnu-
menn í Svíþjóð hafa lengi barizt gegn
einokunarhringum og samningum
framleiðenda um fast markaðsverð.
Iðnaður sænska sambandsins hefur
að verulegu leyti verið við það mið-
aður að brjóta slíka einokunarmúra
— og sú viðleitni ber góðan árangur.
m i n iiiiiiiiiiiiiiini Mimimimiiiiii
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimniiii
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiniiiiiiniunnH
FLÓRU
LYFTIDUFT
er ómissandi
Þetta er fyrsta flokks lyftiduft, fæst bæði
í dósum og lausri vigt og er sérlega ódýrt
•BYÐJIÐ UM FLÓRU-LYFTIDUFT •
Efnagerðin FLÓRA
AKUREYRI
............""""............»»»»»».............................................................................»»,»..................■■„„....„„
22