Samvinnan - 01.03.1954, Síða 21
Viðskiptadeild Háskólans heimsækir SÍS
í viðskiptadeild Háskóla íslands
situr hálft hundrað ungra manna,
sem flestir eiga eftir að fylla ábyrgð-
arstöður í atvinnu- og viðskiptalífi
þjóðarinnar. Þessir ungu menn komu
þeim boðum til SIS, að þá langaði til
að kynnast stofnuninni og starfsemi
hennar og var þeim að sjálfsögðu
boðið að gera það. Komu þeir í skrif-
stofubyggingar Sambandsins einn
morgunn, og voru þar fram yfir há-
degi. Bauð Vilhjálmur Þór þá vel-
komna og skýrði fyrir þeim stofnun,
tilgang, þróun og núverandi skipulag
Sambandsins. Nokkrum dögum síð-
ar fór allur hópurinn í boði Sam-
bandsins flugleiðis til Akureyrar til að
skoða verksmiðjur þess þar. Hinum
verðandi viðskiptafræðingum þótti
mikið til koma margs þess, er þeir
sáu, hins fullkomna skipulags og
hinna margþættu bókhalds- og skrif-
stofuvéla, sem SÍS notar, hins mynd-
arlega verksmiðjuiðnaðar á Akureyri
og margs fleira. Voru hvorir tveggja
ánægðir með þessa nýbreytni, stúd-
entarnir vegna þess fróðleiks, er þeir
öfluðu sér, og samvinnumenn vegna
þessa tækifæris til að kynna þessum
framtíðar viðskiptaleiðtogum starf-
:semi sína.
Myndin til vinstri var tekin i kaffistofu SÍS, þar sem Vilhjálmur Þór ávarþaði gestina. Ragnar
Borg, form. félags viðskiptafrceðinema, þakkar fyrir þeirra hönd, en frá vinstri sjálst Gylgi Þ.
Gislason þrófessor og forstjóri. — A efstu myndinni sjást nokkrir gestanna sltoða faktúruvél t. v.)
og útskýrir Leifur Þórhallsson forstöðumaður vélina. A neðrj myndinni sýnir Harry Frederiksen
framkvæmdastjóri, iðnaðarvörur og heldur á Grilon-Gefjunargarni.
21