Samvinnan


Samvinnan - 01.01.1959, Blaðsíða 15

Samvinnan - 01.01.1959, Blaðsíða 15
hverju máli einkennd af vandvirkni og lieiðarleik. Auk blaðagreina skrifaði hann fjölda af sendibréfum. Hann átti vini og sam- herja víða á landinu og við þá voru bréf- in einu tengslin, lengi vel, þar til síminn kom 1906. Öll hin margvíslegu erindi vegna verzlunar, félagsmála og stjórn- mála varð öll að reka bréflega. Bréf voru oft og tíðum eina leiðin til þess að opna vinum sínum hug og hjarta. „Sendi- bréfaöldin“, 19. öldin og fyrstu áratugar 20. aldarinnar, er harla merkilegur þátt- ur íslenzkrar menningar. Mestur trúnaðarvinur Péturs á Gaut- löndum var Jón Jónsson í Múla. Honum skrifaði hann það, sem hann trúði eng- um öðrum fyrir. Til hans leitaði hann ráða og rökræddi við hann félagsmál og stjórnmál, og ósjaldan skáldskap og list- ir. En mörgum öðrum þurfti að skrifa. f bréfi til Jóns 1894 segir hann: „------- Nú er gamlárskvöld, og síðan á þriðja í jólum hef ég jafnframt því að verð- reikna sauði, ull o. fl. (og það Benedikts- laus í þetta sinn) pressað undan mínum blóðugu nöglum 16—18 arkir álíka og þessar þrjár til þín.“ Og þessar 3 arkir eru átakanlegt and- varp ekkjumannsins með móðurlaus börn á knjám og örmum, með velferð heils héraðs á herðum sér og í hjartanu brenn- andi þrá til þess að leysa vanda heillar þjóðar. Og 16. janúar 1908 segir hann í bréfi til sama: „--------En það er dauðinn hvað ég er orðinn seinn að skrifa og ónýtur. Einu sinni skrifaði ég 13 bréf á jóladag- inn og ýms löng.“ Bréf Péturs til Jóns í Múla skiptast að jafnaði í þrennt. Fyrst er kafli um kaup- félagið og verzlunina. Þar er um margt að tala: greinargerð og skýrslur, spurn- ingar og svör, stundum nokkur ágrein- ingur um smærri atriði. ,,-------Því þó ég hugsi mér ekki að verða fljótfærnis- lega firtinn út af því sem á milli ber, hef ég ekki skap til að þola trassaskap og rangindi í neinu,“ segir Pétur. Þá kemur langur kafli um stjórnmál. „— — — Bláber, negatív barátta gegn stjórninni er oss ósamboðin og árangurs- litil.----— Verkefni okkar flokks er ekki stjórnin, heldur hitt, að koma því fram, sem nauðsynlegt er og varna því sem skaðlegt er. -------Þetta á að ráða gerðum flokksins." Síðast er svo kafli um einkamál, bú- skapinn á Gautlöndum, börnin, áhyggjur og þrár hjartans. Hann finnur á stundum sárt til þess, „— — að hafa lagt út í þetta allt með tvær hendur tómar hvað þekking og almenna menntun snertir.“ „-------Nú hef ég varla litið í uppbyggi- lega bók í 2—3 ár og það fyrir annríki, spenningi og þreytu. Ein vika, áhyggju- laus, í góðu næði og ein bók verulega góð getur gert mér mikið gagn, einkum ef ég hef góðan mann að spjalla við. Nú er svo komið, að við Benedikt höfum ekki tíma til að tala saman. Af öllu þessu sérðu minn andlega „status“.“ Pétur Jónsson hafði yndi af söng og hafði laglega söngrödd. Hann var smekk- maður á skáldskap og fagrar listir. Á efri árum minnist hann með söknuði þeirra nótta, er hann átti með góðum vin- um og rætt var um andlegar íþróttir. Eina slíka átti hann með Þorsteini Erlings- syni skáldi, vini sínum, sem hann dáði mjög. Þorsteinn sendi honum eintak af Eiðnum, er hann kom út, með áletaðri vísu: „Fáum við aftur, forni vin, friðarnótt og ljóða? Nú er hún átján ára hin okkar fyrsta góða.“ Fyrstum manna trúði Jón Stefánsson (Þorgils gjallandi) Pétri fyrir skáldskap sínum og hlaut frá honum hvatningu og sjálfstraust í staðinn. Þrátt fyrir annir húsbóndans á Gaut- löndum og langar fjarvistir, hélt heimili hans áfram að vera rausnarsetur og menningarsetur eins og íslenzk heimili bezt hafa verið. Skáldið og spekingurinn, Stefán G., segir í bréfi til Jóns frá Sleð- brjót, að hann hafi í íslandsferð sinni ný- afstaðinni komið í Gautlönd og rætt við börn Péturs: „--------Ég sat að samræð- um við þau fram undir morgun. Það var unun að tala við þau. Það var eins og þau vissu um alla strauma og stefnur í heim- inum. Við megum lengi leita, Jón, hér í Ameríku, til þess að finna slíkan áhuga og þekkingu.“ Pétur var þá ekki heima, en um hann segir Stefán í sama bréfi: „---------svo yfirlætislaus, búandlegur, en þó kurt- eis.“ Yfirlætislaus var Pétur af eðli sínu öllu. „Búandlegur“ var honum stolt og hug- sjón. Hann unni heitt og virti íslenzka bændastétt. Það var stolt hans að heyra henni til. í „kurteisi“ hans kom fram arf- ur frá menningu íslenzkrar bænda- stéttar. XII Mjög er nú ólíkt um að litast á ævislóð- um Péturs á Gautlöndum, því sem var á hans dögum. Reisulegar byggingar og blómleg akurlönd prýða nú hverja sveit. Glæsilegir skólar hafa tekið við mennt- un og uppfræðslu fólksins. Leystur hefur verið sá vaður, er fjötraði þjóðina og batt við húsbóndavald í öðru landi. Litlu hús- in, sem byggð voru á fyrstu áratugum Kaupfélags Þingeyinga, standa að vísu enn, en hallir hafa risið við hlið þeirra í samræmi við vöxt og viðgang félagsins og gengi fólksins í byggðarlaginu. Félags- mönnum í Sambandi íslenzkra sam- vinnufélaga hefur fjölgað úr nl. 5 þús- und, við lát Péturs á Gautlöndum, í meir en 30 þúsund. Tveir þriðju hlutar þjóð- arinnar eiga aðild að samtökunum. Kyn- slóðirnar fyrir og um aldamótin sáðu vel, nútíma íslendingar safna uppskerunni í kornhlöður. Hófför gæðinganna frá Gautlöndum eru horfin úr heiðagötun- um og fjalldrapinn hefur fest þar rætur, en sagan er og verður, öld eftir öld. Pétur á Gautlöndum geystist ekki fram í fylkingarbrjósti með sverð og skjöld. Hann vóg ekki andstæðinga sína. Hann brauzt aldrei til valda. Hann sótti fram, á sínum hvíta góðhesti, með tigin- mannlegri hógværð og prúðmennsku í skjóli mannbætandi hugsjóna. Páll H. Jónsson. Málverk af stofnfundi Sambands íslenzkra samvinnufélaga hinn 2. febrúar 1902. Pétur Jónsson er fundarstjóri og stendur fyrir miðju borðinu með blað í hendi. SAMVINNAN H

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.