Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1960, Blaðsíða 29

Samvinnan - 01.03.1960, Blaðsíða 29
Tómas Guðmundsson Framhald af bls. 23. Skáldskapur hans verður upp- gjör, sem er harla persónu- legt, þó að tilefnið sé hildar- leikur styrjaldarinnar, sem skyggir á Fögru veröld og Stjörnur vorsins. Sum ljóðin þessa efnis í Fljótinu helga eru naumast jafn fínofið víravirki formsins og áður var, þegar Tómas gerðist nosturssamastur í skáldskap sínum, alvara hans er ekki alltaf eins vandvirk í orðavali og hnitmiðun og gleðin, en kvæðin meiri. Þau rísa hátt í hugsun og tilfinningu skálds- ins, sem vill ekki láta ólán heimsins vera sér að kenna. Glöggt dæmi þessarar við- leitni er Kvöldljóð um draum, þar sem Tómas yrkir um ævi sína og hlutskipti sitt, gengur alvörunni á hönd, leitar heim og reynir að svara spurningunum, er honum liggja þyngst á hjarta sem rnanni og skáldi. Hann þarf frjálsari hendur en áður í túlkun sinni, svo að hugsunin komist á framfæri. Riddarinn blindi og Vegurinn, vatnið og nóttin minna að formi til á lausrímuðustu ljóðin í Fögru veröld, en standa lesandanum í stóru tákni og verða fagur skáldskapur. Dansinn í Hruna er eitt af tækifæriskvæðunum, sem munu helzt til mörg í Fljótinu helga, en þar yrkir Tómas um sjálfan sig og sam- tíð sína á örlagastund heims- ins og mannkynsins, enda er boðskapur ljóðsins tímabær og ógleymanlegur. Meira að segja fagnaðarkvæðin yfir heimkomunni, endurfundin- um við átthagana og upprun- ann, eru slungin persónulegri alvöru. Heimsborgarinn nýt- ur sín vel í móðurfaðmi nátt- úrunnar, því að moldin grær heit og djúp um rætur skálds- ins. Ljóðræn fegurð er óvíða augljósari í kvæðum Tóm- asar Guðmundssonar en hér. Þrjú ljóð um lítinn fugl, Morgunljóð úr brekku, Fljúgandi blóm, Við strönd- ina og Augun þín eru glöð og blæfríð að yfirbragði, en undirtónn þeirra sú alvara, sem skáldið mundi ekki eða vissi, meðan það naut víns og sólar. Og erindi heimfarar- innar túlkar Tómas eftir- minnilegast í Fljótinu helga, sem er náskylt Kvöldljóði um draum. Iðulega hefur hann ort betur í orðanna hljóðan, en hér er í baksýn ævi hans og aldarfar. Hann kveður um kjör sín og ósköp, og þó líð- ur honum vel af því að hann er kominn heim sáttur við guð og menn og hefur von um heiminn og mannkynið, þrátt fyrir allt. Fljúgandi blóm er í allri sinni ljóðrænu fegurð niðurstaða Tómasar Guðmundssonar, þar sem saman fer barnsleg einlægni og þroskaður per- sónuleiki: Vel sé yður, ó, vængjaða blómskrúð drottins, vinir himins og jarðar, sem einhverju sinni, löngu áður en ártöl og sögur hófust, uxuð til skínandi flugs upp af jörðinni minni. Því fögnuður yðar fann sér ei lengur rætur í faðmi hennar, og þó hafði jörðin borið að sínu leyti umhyggju fyrir yður engu minni en jafnvel sólin og vorið. En þökk sé yður, að hversu hátt sem þér leitið mót himni og sól, þá komið þér ávallt til baka að syngja fyrir þau blómin, sem urðu eftir og enn hafa hvorki lært að fljúga né kvaka. Og seg þú mér, ljóð mitt, hvort er ekki einmitt þetta hin eina gleði, sem sálir og kvæði varðar, að mega í auðmýkt fara að dæmi fuglsins, sem flýgur í erindum guðs milli himins og jarðar? 5 Tómas Guðmundsson er mestur veizluherra íslenzkra skálda og hefur iðulega gert sér glaðan dag með fleirum en höfðingjum, þó að þeim sé ljúft og gjarnt að fá hann til mannfagnaðar. Borgar- skáldið kann vel að meta lystisemdir heimsins og hefur oft gert skáldskap sinn um þær að veruleika. Eigi að síður er hann jafnan sveitadrengurinn úr Grímsnesinu, feiminn og jafnvel hlédrægur í fjölmenni, þangað til hann stígur í ræðu- stólinn eða blandar geði við sessunautana yfir freyðandi skálum. Þá minna orðræður og tilsvör Tómasar Guð- mundssonar á Oscar Wilde. Hann klæðir mál sitt fögrum búningi, en skýtur öðru hvoru beittum örvum af bogastreng andríkrar fyndni og hvassrar ádeilu. Sumir ætla, að honum sé ekki alvara allt það, sem hann segir við slík tækifæri. Satt er það, að skoðanir Tómasar munu of margar og fjölbreyttar til samræmdrar heildar, en ein- stök er íþrótt hans á málþing- um. Hann er víðlesinn fag- urkeri og skemmtilegur lífs- nautnarmaður, ef heilsan leyfir honum umsvifin á góðra vina fundum. Andstæð- ingum gerist hann þungur í skauti, miskunnarlaus í kímni sinni og ályktun, en boga- skyttan mikla velur sér ekki alltaf þau skotmörk, sem hæfa íþróttinni. Ýmsir finna Tóm- asi til foráttu, að hann ætli sér mikinn mála fyrir litla hermennsku. Þeim mönnum er hollt að minnast þess, hvað þessi viðkvæmi fagurkeri er skapmikill og óstýrilátur, ef hann hneykslast eða telur níðst á því, sem honum er heilagt. Bak við leikaraskap gleðinnar er persónuleiki al- vörunnar. Tómasi Guð- mundssyni lætur vel að látast, en hann gleymir aldrei per- sónu sinni eða virðingu. í einrúmi líður honum verr en nokkurn aðdáanda hans myndi gruna á gleðifundi. Tómas er hörundssár og hef- ur ofnæmi fyrir ódyggð þess hégómaskapar, sem hann tek- ur þátt í sér til afþreyingar. Þess vegna neytir hann sterkra lyfja. Og hann er síður en svo vinur allra viðhlæjenda. Þakk- látssemi hans er sjóður í leynihólfi sálarlífsins, en á- vaxtast ekki á banka mann- félagsins, þó að enginn muni trölltryggari þeim, sem hann metur mikils. En þá afstöðu túlkar hann sjaldan mörgum og fögrum orðum. Hún spegl- ast heldur ekki í yndislegri framkomu þessa kurteisa heimsmanns, sem kann flest- um betur að vera í fjölmenni. Hún er einkamál og leyndar- dómur Tómasar Guðmunds- sonar, þegar hann er einn með sjálfum sér og skoðun- um sínum á mönnum og mál- efnum. Vinsældir Tómasar Guð- mundssonar eru ekki að öllu leyti verðskuldaðar. Ódýrustu kvæði sín hefur hann fengið goldin hæstu verði. Leikara- skap framgöngunnar á hann að þakka fylgi og velþóknun drykkjubræðra og mötunauta. En hann er skáld hugkvæmr- ar vandvirkni og vandvirkrar hugkvæmni og maður því- líkra örlaga, að hann fór að heiman og hvarf aftur heim til að túlka líf sitt og um- hverfi, gleðina og tregann, fögnuðinn, vonina og sársauk- ann. Hljóðfæri hans er gott og hörpuslátturinn slíkur, að bráð hefur af mörgum og þeim batnað eins og Sál kon- ungi forðum á tónleikum Davíðs. En sennilega líður Tómasi Guðmundssyni verst, þegar sigurlaun fagnaðarlát- anna standa honum til boða. Þá lætur hann fallast í faðm Grímsnessins og gerir Grafn- inginn að fyrirheiti sínu. Þar greinir hann og skilur ævi sína í stóru tákni sem sér- stætt og listrænt skáld og ein- kennilega gerður maður. Lúpus. SAMVINNAN 29

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.