Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1960, Qupperneq 4

Samvinnan - 01.04.1960, Qupperneq 4
SUGÞURRKUN RÆNDUR: Verið óháSir veðr- áttunni við heyöflun. Setjið súgþurrkunar- tæki í hlöður yðar. Þér getið valið um 3 gerðiraf blásurum, S-ll, H-ll og H-12. Ennfrem- ur getið þér valið um 2 tegundir dieselvéla, HATZ, sem er vestur- þýzk, og ARMSTRONG SIDDELEY, sem er ensk. Meginkostur H blásar- anna er, að þeir skila miklu meiri blæstri við sömu orku, en eldri gerðir af blásurum. LANDSSMIÐJAN REYKJAVlK. Til lesenda Mörg erlend tímarit hafa sérstakan dálk í blöðunr sínum, þar sem lesendur geta komið á framfæri áliti sínu á einstökum greinum eða efni, er í blaðinu birtast — með eða móti. Eru þetta stuttar athugasemdir, oft hnyttilega orðaðar, og gefa blaðstjórninni tíðum góðar vísbendingar um hug lesenda til efnis og blaðsins í heild. Samvinnan mun nú taka upp þennan hátt, ef lesendur hafa áhuga og vilja til að notfæra sér rúmið. Tilvonandi bréfriturum til skýringar skulu hér birt nokkur bréf úr amerísku tímariti. Blaðið hafði í þetta skipti birt m. a. grein er hét — Hið erfiða líf sovétzku konunnar —. Höf- undur lýsir rússnesku konunni sem feitlaginni, sterkbyggðri konu, er vinni erfiðisvinnu jafnt og karlmennirnir. Föt henn- ar eru ljót og fara illa (vegna þess að hún á hvorki lífstykki né brjóstahaldara). Heimilislíf er lítið sem ekkert vegna vinn- unnar, og án vinnu konunnar (45% af vinnukrafti Sovétríkj- anna) kæmist 7 ára áætlunin ekki í framkvæmd. Vinnu kon- unnar telur höfundur lykilinn að framþróun Sovétríkjanna á sviði iðnaðar og uppbyggingar o. s. frv., o. s. frv. Greinin var í heild heldur léleg, eins og lesendur láta óspart í ljós. Athugasemdir lesenda voru og á einn veg. Hér konra nokkrar: — Þessi grein er samnefnari fyrir svo marga bandaríska grein- arhöfunda, sem deila á Rússa þessa dagana. Vegna þess að við getum ekki komið flugskeytum okkar og gerfihnöttum frá jörðu, vegna þess að við erum ekki fi-emstir alstaðar, leggjum við okkur niður við að finna að öllu sem Rússar gera. — Reynum að fá okkur til þess að trúa því að allt sé í himna lagi á okkar bæ. — Capt. Harrison. — Það næsta sem við verðum að gera, er að auka ríkisút- gjöld okkar og útvega sovétzku konunni það, sem greinarhöf- undur telur hana vanhaga mest — lífstykki og brjóstahald- ara. — J. F. Mahong. — Hvernig konur heldur þú að formæður okkar hafi verið? Það voru konur, sem gerðu Ameríku að því sem hún nú er. Þær höfðu ekki tíma til að hugsa aðeins um kvenleikann. í hreinskilni sagt, ég held að dálítil erfiðisvinna sé það, sem við öll þörfnumst. — Annabel Beck Miller. P.S. — Ég skal veðja við þig uin það, að Eisenhower væri ekki sá maður, sem hann er í dag, ef móðir hans hefði verið Par- ísarmodel. — Fyrir 40 árum gat konan hér í Ameríku drepið skröltorm, ltjúkrað sjúku barni til heilsu — og matreitt kóngafæðu. Og sæi hún prestinn koma gangandi eftir veginum gat itún hlaup- ið út, handsamað kjúkling í garðinum, hálshöggvið hann, plokkað og matreitt á stuttum tíma. Útvegaðu mér svona konu. — Raymond Reading. — Ráðgáta gengis sovétzka kerfisins hefur verið ráðin. Látið konuna vinna verkin. — Arthur D. Miles. Og nú lesendur góðir. — Gerið svo vel. — Dálkurinn er ykkur til reiðu. 4 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.