Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1960, Qupperneq 10

Samvinnan - 01.04.1960, Qupperneq 10
Johannes V. Jensen Anna og kýrin Uppá gripasvæðinu hjá markaðstorginu í Hvalpsund stóð gömul kona með kúna sína. Hún stóð dálítið afsíðis með jæssa einu kú sína, livort sem liún gerði það fyrir lítil- lætis sakir ellegar til að vekja meiri efthtekt. Hún stóð þar fjarska róleg og lét höfuðklútinn slúta ögn fram yfir ennið vegna sólskinsins og prjónaði sokk, sem var orðinn æði langur og hún vafði jafnóðum upp í þykkan vafning. Hún var búin uppá snyrtilegan gamlan móð, í heiðbláu pilsi sem ilmaði svo lieimilislega úr litunar- pottinum, með brúna, prjónaða þríhyrnu bundna um mittið. Höfuðklúturinn var upplitaður og gæti hafa legið lengi ónotaður; tréklossarnir voru flatbotnaðir, en hún Iiafði burstað þá. Fram úr gráu hárinu gægðist einn auka- prjónn, fyrir utan þessa fjóra sem hún tifaði svo títt með gömlum slitnum höndunum. Hún lagði annað eyrað við tónlistinni frá álnavörumarkaðnum og virti einnig fyrir sér menn og dýr, sent kaupslöguðu og ruddust um allt í kringum hana. Það var hávaði og fyrirgangur nær og fjær — klárarnir hneggjuðu uppá hestamarkaðnum. ára- glamm neðan frá ströndinni, trumbusláttur og skellir og smellir frá trúðleikurum, en hún stóð þar kyrrlát í sól- skininu og prjónaði sokkinn sinn. Og við hlið hennar stóð kýrin kviðsíð og gleiðfætt og jórtraði; höfuð hennar nanr við olnboga gömlu konunn- ar. Það var roskin kýr, en það var góð kýr, heilbrigð í hárafari og prýðilega alin. Hún var að sönnu nokkuð lioldskörp um huppinn og fram eltir hryggnum, en hún var annars ósvikin vara, júfrið þétt í sér og loðið, og það var ekki marga hringi að sjá á svörtum og hvítum horn- um hennar. Hún st<)ð þar voteyg og jórtraði tugguna sína. Neðri kjálkinn gekk stöðugt frá vinstri til hægri; og þegar liún var búin að renna tuggunni niður, sneri hún höfðinu og litaðist um. Síðan flengdist næsta tugga upp vélindað og fram í munninn, og hún tuggði hana með hálsinn í óbifanlegri kyrrstöðu. Það rann geðprúð slefa frá víðum munninum, og það drundi djúpt og fjað- urmagnað í henni þegar hún dró andann, eins og leikið væri á otgel í innýflum hennar. Það var heilbrigð og 1 íf- mikil kýr, komin til ára sinna og hafði lifað það sem kúm getur hlotnazt. Hún hafði borið kálfum sínum, án þess að fá nokkurntíma leyfi til að sjá þá eða kara þá, og síðan hafði hún étið sitt fóður og skilað sinni mjólk í góðri trú. Og nú jórtraði hún hér hjá torginu af jafn- miklu öryggi og hvar sem verið hefði annarsstaðar, og sveiflaði halanum í krappar bugður eftir flugunum. Taumurinn var snyrtilega lykkjaður upp á annað horn- ið, því hún mundi hvergi fara upp á sitt eigið eindæmi; og munnspeldin voru gömul og ávöl af sliti og hvorki slegin járni né göddum, því þessi kýr þurfti ekki ögunar við. Þess má geta, að hún var með nýja múlinn sinn í dag — ekki þann ganrla, mjóa og hnýtta sem hún brúk- aði hversdagslega. Anna gamla vildi að hún, það er að segja kýrin, liti vel út í dag og bæri henni sjálfri gott vitni. Þetta var góð kýr og vel fallin til slátrunar, og þessvegna leið ekki á löngu áður en maður nokkur kom aðvífandi, tók að skoða liana í krók og kring og pota fingrinum nið- ur í bakið á henni. Kýrin svignaði ögn í hryggnum við þessar aðfarir, en lét annars ekki á sig bíta. — Hvað kostar kýrin, gamla mín? spurði maðurinn og beindi föstu augnaráði sínu frá kúnni til Önnu. Anna liélt áfrarn að prjóna. — Það er ekki ætlunin að selja lrana, svaraði hún. Og svo sem til að ljúka þessu samtali með fullri hæversku, tók hún alla prjónana í aðra höndina og sökkti sér niður í að þurrka sér um nel'ið með hinni. Maðurinn hvarflaði brott og gekk út á hlið, því hann gat ekki slitið augun af kúnni alveg fyrirvaralaust. Ekki löngu seinna danglar fínn og nýrakaður slátrari spanskreyrnum sínum í hornin á kúnni og strýkur þrút- inni hendi sinni hratt niður brjóstið. — Hvað kostar kýrin? Anna gamla rennir fyrst augunum til kýrinnar, sem drepur heiðarlega tittlinga framan í spanskreyrinn. Svo snýr hún liöfði og virðist koma auga á eitthvað sem vek- ur athygli hennar, langt í burtu. — Hún er ekki til sölu. Búið. Mangarinn röltir áfram í blóðflekkóttum rykfrakk- anum. En litlu síðar ber enn að nýjan lysthafanda. Anna gamla hristir kollinn. Það er ekki ætlunin að selja kúna. Þegar hún hafði þannig vísað góðurn hópi manna á bug, fór hún að verða þekkt kona á torginu; það var farið að tala um hana. Maður nokkur, sem hafði kornið áður, sneri aftur og vildi fyrir alla muni kaupa kúna, og hann gerði rnjög hagstætt tilboð. Gamla Anna sagði: Nei — dálítið óróleg, en ákveðin. — Er þá búið að selja hana? spurði maðurinn. Nei, það var alls ekki búið að selja hana. — Já en hversvegna í ósköpunum stendurðu þá hér og heldur sýningu á kúnni? Gamla Anna laut höfði, en hélt áfi'am að pi'jóna af þrá- kelkni. — Ha? Hversvegna stendurðu hér með kúna? spurði maðurinn, og það var farið að síga í hann. Átt þú þessa kú? Já, það var alveg víst og áreiðanlegt. Sannarlega átti Anna þessa kú. Hún bætti við hún hefði átt hana síðan hún var kvíga, já, hún hafði átt hana síðan. Ef maðurinn 10 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.