Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1960, Side 11

Samvinnan - 01.04.1960, Side 11
yrði blíðkaður með mælgi, hugsaði Anna, þá skyldi hún ekki láta standa npp á sig. En liann greip fram í fyrir henni: — Ert þú komin hingað til að gabba heiðarlegt fólk? Drottinn minn dýri! Anna þegir, og henni líður illa. Hún prjónar eins og hún eigi lífið að leysa, hún veit ekki hvert hún á að horfa — svona voðalega þykir henni fyrir þessu öllu. Og maðurinn færist í aukana, hann er reiður: — Ertu komin hingað á markaðinn til að gabba heiðar- legt fólk, sagði ég. Þá er það, sem Anna gamla hættir að prjóna. Hún lyftir lykkjunni af horni kýrinnar og ljýst til að halda á brott, en hún horfir á manninn á meðan, opnu og biðjandi augnaráði: — Þetta er alveg einstök kýr í sinni röð, segir hún af ein- lægni, þetta er alveg einstök kýr. Ég hef ekki aðra gripi í fjósi, og hún hittir sjaldan aðrar kýr. Við eigum heima á svo afskekktum stað. Svo mér fannst sanngjarnt ég færi einusinni með hana á markaðinn, til þess hún gæti hitt aðra nautgripi og létt sér dálítið upp. Já, mér fannst þetta rétt, og ég gat ekki ímyndað mér það væri neinum til meins, og þessvegna skruppum við hingað á markað- inn. En við erum ekki til sölu, og- nú ætlum við að Iialda heimleiðis. Og afsakið, vildi ég sagt hafa. Og sælir. Og takk fyrir. Bjarnv Benediktsson þýddi. Happdrætti Dvalarheimilis Aldraðra Sjómanna Vinningum fjölgar 50 vinningar í mánuði 2 íbúðir útdregnar mánaðarlega 2 bifreiðir útdregnar mánaðarlega Verð miðans kr. 30.00 í mánuði Aöalstræti 6 6. hæö Sími 17757 Öllum ágóöa variö til byggingar Dvalar- heimilisins SAMVINNAN 11

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.