Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1960, Side 12

Samvinnan - 01.04.1960, Side 12
Ólafur ólafsson Súdan Þeim, sem fylgjast eilítið með í alþjóðamálum, mun nú þykja meiri ástæða til þess en áður, að kynnast Súdan og kynna það land öðrum — eftir að það komst í tölu sjálfstæðra ríkja heims fyrir rúmlega tveim árum. Súdan liggur til austurs að Rauðahafi og Eþíópíu, til vesturs að Libýu eða Sahara og frönsku Mið-Afríku, til norðurs að Egyptalandi á 22. baug norðlægrar breiddar og til suðurs að hitabeltislönd- unum Kongó, Úganda og Kenya, á 4. breiddarbaug norðan miðjarðarlínu. Súdan er landflæmi 25 falt stærra en Island, eða hálf þriðja millj. ferkm. Landið er strjálbýlt, eru þó íbúar 9 eða 10 millj. og fæstir bú- settir í borgum. Þetta mikla land sætti þeim óvenjulegu örlögum, að lúta stjórnum tveggja erlendra ríkja samtímis um hálfrar ald- ar skeið. Samstjórn — con- dóminium — Breta og Egypta, er hugðust hvorir um sig hagnast á því. En áður höfðu Arabar rekið þar um aldarað- ir arðvænlegustu atvinnu, sem sögur fara af í Afríku, þræla- veiðar og fílabeinssöfnun. Súdannegrar eru háir menn og hraustlegir og þóttu bera af öðrum þrælum. Fílstennur frá Súdan vógu allt að því 50 kíló. Enn eru í Suður-Súdan dekstu og hæstu menn jarðar. Og enn leika þar lausum hala 18 þúsundir villtra fíla. Bretar og Egyptar eiga í sameiningu heiðurinn af að hafa komið í veg fyrir þrælaveiðar í Súdan. En fílabein þaðan er enn eftirsótt verzlunarvara. Nílfljót rennur gegnum Sú- dan frá suðri til norðurs, 2400 km spotta, og er lífæð megin- hluta landsins eigi síður en Egyptalands. Hefðu Súdanir bolmagn til þess, væri þeim í lófa lagið að tempra árstraum- inn til Egyptalands, hleypa ekki framhjá sér meiru vatni en því, sem afgangs yrði eftir að hafa séð fyrir eigin þörf- um til ræktunar og rafvæð- ingar. í þeim löndum báðum er yfirgnæfanlegur hiti og þurrkar svo miklir, að vatn er þeim ómetanleg náttúru- auðævi, óviðjafnanlega miklu dýrmætari en heita vatnið er okkur íslendingum. Nasser mundi vafalítið sjá sér hagnað að því, að láta af hendi Súezskurð og æðsta embætti arabíska sambands- lýðveldisins, fengi hann í staðinn — Súdan. Hann dreymir vafalaust ekki um annað fremur en meira land- rými, aukinn herstyrk og yfir- ráð Nílar — í Súdan. Annars er ekki ólíklegt að hann geri sér vonir um að sá draumur kunni að rætast án þess að miklu sé til kostað. A V Það var í nóvembermánuði 1957, að ég kom við í Súdan að aflokinni heimsókn til ís- lenzku kristniboðsstöðvarinn- ar í Suður-Eþíópíu. Flugleiðin milli höfuðstaða þeirra landa, Addis Abeba og Khartúm, liggur yfir hálendi Norður-Eþíópi'u, þar sem Tanavatn er. En í því vatni eru upptök Bláu-Nílar. Áin er önnur aðalkvísl Nílfljóts og fellur þaðan um djúp gljúfur í feiknmiklum boga, fyrst til suðausturs og síðan til norðvesturs, unz hún sam- einast Hvítu-Níl hjá Khartúm. Negrakona frá Suður-Súdan ásamt börnum sínum. Við hliðina á mér sat danskur verkfræðingur, Pedersen að nafni. Hann kvaðst vera kvæntur norskri konu, bú- settur í Sviss, en alveg ný- kominn frá Reykjavík. Hann flutti mér því nýjustu fréttir að heiman. — Mér skildist að hann hefði gert sér vonir um að fá að reisa útvarpshöll fyr- ir íslendinga. Hitamóðan færðist í aukana á hálendinu með hækkandi sól og skyggði mjög fyrir stór- fenglegt og nýstárlegt útsýni. Frjósamasta og bezt ræktaða akurlendi Eþíópíu er á norð- urhálendinu, þar sem er næg úrkoma, 2 til 3 þúsund metra yfir sjávarmál. Eþíópar eru tortryggnir og þóttafullir menn. Þeir hafa því ekki vilj- að hleypa erlendu fjármagni inn í landið og hafa fyrir bragðið ekki getað stofnað til áveituræktunar í stórum stíl á lægri, heitari og miklu frjósamari stöðum. Samræður hljóðnuðu ósjálf- rátt er við komum auga á Tanavatn og frárennslið úr því, efstu gljúfur Bláti-Nílar. Áin hefur grafið svo mikil gljúfur í gosbergslög hálend- isins, að þau eru á mörg- hundruð km kafla mesta tor- færa Norður-Eþíópíu. Úr þessum gljúfrum og hálend- inu beggja vegna þeirra er að langmestu leyti framburður- inn, dökkbrún leðja, sem lit- ar vötn Nílar alla leið til ósa við Miðjarðarhaf og við- heldur frjósemi Egyptalands. Tanavatn er í skál með aðlíð- andi halla á alla vegu. Að- stæður eru því hinar ákjósan- legustu til að byggja fyrir- hleðslu og gera þarna gífur- lega mikið uppistöðuvatn. Það er því ekki ofmælt, að fjöregg Egypta og norður- hluta Súdans sé í hendi Eþí- ópa. Flóðin í Níl stafa fyrst og fremst frá vatnavöxtum í Bláu-Níl, eða nánar til tekið um 82 hundraðshlutar. Á há- lendinu norður og austur af Tanavatni eru feiknmikil fjöll með 4 til 5 þúsund metra háum tindum. Myndast þar miklar fannir á vetrum. Þeg- ar sumarúrkomur byrja í maí- mánuði og snjóa tekur að 12 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.