Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1960, Side 16

Samvinnan - 01.04.1960, Side 16
Greinargerð frá ritstjóra. Hreinskilni Hollast verður hverjum manni að horfa framan i sannlevkann. Samvinnumenn eru einlægir og hreinskilnir. Þeir dylja ekki hug sinn. Þeim er tamt að segja sem er, hvort sem um lof eða last er að ræða. Þetta hefur allt frá upphafi verið íslenzku samvinnuhreyfing- unni mikill styrkur. Hafi vel tekizt til um málefni eða verkefni, hefur hrós og upp- örfun ekki skort og orðið til hvatningar og eggjunar. Hafi miður farið, hefur á hinn bóg- inn verið spyrnt við fótum að hverfa skyldi frá hinni lakari leið og reyna nýja. Undirritaður hefur af eigin reynslu kynnzt báðum þessum viðbrögðum. Hann hefur hlotið uppörvun og einstæð- an stuðning og skilning við mótun menntastofnunar sam- vinnumanna að Bifröst, svo mikinn fórnarvilja og fram- farahug, að slíkum hefur hann aldrei kynnzt fyrr. En hann hefur mætt jafn hik- lausri andspyrnu sem meðlæti áður, er hann að beiðni for- ráðamanna samvinnuhreyf- ingarinnar tók að sér að um- skapa rit samtakanna, Sam- vinnuna, og gera tilraun til að vinna því nýjan markað með því að sveigja efni þess og búning annan veg en fyrr. — Þau viðbrögð hafa verið skýlaus yfirlýsing um það, að svo skyldi ekki unnið. Undir- ritaður kann vel að meta þá hreinskilni, sem þannig vill standa vörð um merki sam- vinnuhreyfingarinnar. Hitt má vera öllum samvinnu- mönnum augljóst, að þessi nýja tilraun með ritið var ekki gerð að ófyrirsynju. Til þess lágu þrjár veigamiklar á- stæður að hafizt var handa um nýtt átak í þessu efni: 1) Fráþví 1950 hefur kaupend- um ritsins farið sífækkandi. Árið 1950 voru greidd kaup- endagjöld fyrir 8808 fasta meðlimi, en árið 1958 tæp 6000. Þannig höfðu tekjur minnkað um i/s á tæpum ára- tug og að því er ætla má les- endahópurinn sömuleiðis. 2) Ritið hefur sáralítilli út- breiðslu náð í kaupstöðum landsins, alveg sér í lagi þó í Reykjavík. 3) Samvinnumenn erlendis hafa meir og meir horfið frá beinum áróðri í tímaritum þeim, sem almenningi eru ætluð, en helgað þau almenn- um menningarmálum og fræðslu í trausti þess, að sam- vinnustefnunni er ekkert ó- viðkomandi, sem til menning- ar og mannbóta horfir. — Þessar staðreyndir sýndust mæla með því, að lagt væri inn á nýjar leiðir Forráða- menn samvinnuhreyfingar- innar vildu ekkert til spara og lögðu í mikinn kostnað að gera mætti ritið sem bezt og glæstast úr garði. Blað skyldi brotið í íslenzkri tímaritaút- gáfu og samvinnumenn eign- ast fjölbreyttasta og fegursta menningarrit á íslandi. Þótti því meiri nauðsyn á útgáfu þess konar rits sem nú er hellt yfir þjóðina slíkum sæg glæpa- og kynórarita að vera mun heimsmet ef svo fámenn þjóð fær melt allt, sem að henni er rétt. Blöð hennar og tímarit önnur leiðast meir og meir í þá freistni að gæla við lægstu hvatir og kenndir. — Þannig var hugsað og þannig skyldi að unnið. En eitt er áform — annað er framkvæmd. Og hér urðu augljós skil milli þess sem ætl- að var og hins sem varð. Rit- ið í búningnum nýja vann ekki markaði. Kaupendum fjölgaði dræmt í kaupstöðum og Reykjavík. Einlægir sam- vinnumenn voru óánægðir með stefnubreytinguna, sér í lagi þá hugmynd að breyta samvinnuefninu og dulbúa. Túlkun dagblaðanna og út- varpsins á þessum áformum vakti gremju, enda ekki að ó- fyrirsynju. Voru það mistök, að ekki var leiðrétt þegar í upphafi, er haldið var fram að ritið skyldi ekkert sam- vinnuefni birta. Það var aldrei ætlunin. En þar um nóg. Hin nýja tilraun fylkti ekki sam- vinnumönnum til sóknar, heldur leysti ttr læðingi óá- nægju og sundrun. Hér hafði því verið haldið inn í blind- götu. í stað aukningar á út- breiðslu og sölu, hefur hin fyrri þróun haldið áfram. Það, sem enn er dapurlegra, vel- viljaðir stuðningsmenn sam- vinnuhreyfingarinnar hafa gerzt ritinu fráhverfir. Það boðar að vísu engan heimsendi, þótt tilraun mis- takist. Það er lögmál lífsins, að sumt heppnast, annað ekki. Hér hefur það einfaldlega gerzt, sem Hegelslögmál segir fyrir um, að hugmynd kalli fram andstæðu sína, tesa sína antiteus. Það er svo verkefni framtíðarinnar að skapa æðri einingu hinna ólíku sjónar- miða, þar sem hið bezta úr þeim báðum fái notið sín. Vandinn er ekki leystur, þótt nú sé sveigt frá hugmynd, sem ekki fékk hljómgrunn. Ástæð- urnar, sem leiddu til hinnar nýju tilraunar, eru enn fyrir hendi. Aðeins y5 af meðlim- um samvinnuhreyfingarinnar fær ritið og les og út fyrir rað- ir samvinnumanna nær ritið ekki til að auka hugsjónum okkar fylgi. Á Norðurlöndun- um hinum er þessu öðruvísi farið. Þar eru nær allir með- limir áskrifendur samvinnu- tímarita sem þessa. íslenzkir samvinnumenn eiga hér verk að vinna. í sam- vinnustarfi liggur engin leið til baka heldur er ætíð sótt fram á veg. Eins verður hér. Reynslunni ríkari mótum við rit okkar, að það nái því tak- marki, sem allir samvinnu- menn óska heils hugar: verði kyndilberi hárra hugsjóna. Guðmundur Sveinsson. 16 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.