Samvinnan - 01.04.1960, Qupperneq 18
Samvinna
á
breiðum
grundvelli
Flestir þekkja samvinnuhreyfinguna og starfsemi
hennar hér heima. Þeir eru færri, sem vita hve ná-
ið samstarf er einatt milli íslenzkra og erlendra
samvinnufélaga og samvinnusamtaka. Þetta sam-
starf hefur þróazt um langan aldur og nær yfir
flest það, sem varðar samskipti þjóða, svo sem
vörukaup og sölu, fyrirgreiðslur og upplýsingar,
fræðslu og félagsmál, o. s. frv.
Samvinnan mun nú og á næstunni kynna lesend-
um sínum nokkuð starfsemi þessa.
Lammstehen t-itt pásti tagnr vi pá islUndskt Inmm. Det ár
uv en myckvt Jtög kvalité, viört och fint í smaken och
Við skulum byrja á kjöt-
sölu okkar til tveggja
landa og fyrirgreiðslunni
þar. Kjötsalan nú er aftur
á byrjunarstigi eftir stríðs-
ár og fjárpestir. Allstaðar,
þar sem við reynum að selja
afurðir okkar, eru að sjálf-
sögðu aðrir aðilar á mark-
aðnum fyrir. Ástralíu-
menn og Nýsjálendingar
eru langfyrirferðarmestir
á dilkakjötsmarkaðnum,
enda verið oft og tíðum
einráðir að kalla undan-
farin ár og njóta þess í
hvívetna.
í Svíþjóð hafa sænsku sam-
vinnufélögin haft forgöngu
um kynningu og sölu ís-
lenzka dilkakjötsins. Fyrst
\oru sendú hingað inenn
til að kynna sér sláturað-
18 SAMVINNAN
stæður, því að ekki er leyfð-
ur innflutningur á kjöti til
Svíþjóðar, nema lieilbrigð-
isfulltrúar sænskir hafi áð-
ur skoðað sláturliús þeirra
landa, er flutt er inn frá,
kynnt sér þar aðstæður all-
ar og veitt þeim viðuikenn-
ingu sína.
Sænsku samvinnufélögin
hófu svo auglýsingaherferð
til þess að vekja athýgli á
þessari framleiðslu íslend-
inga, sem nú hóf sam-
keppni á markaðnum við
Ástralíumenn og Nýsjá-
Iendinga. Eytt var miklu
fé í auglýsingar tímarita og
dagblaða, svo og í vöru-
kynningarvikur í búðum
kaupfélaganna.
Hér birtum við til garnans
hluta af grein og mynd úr
blaðinu HEM TIPS, sem
kemur út í 2,5 millj. upp-
lagi. Fyrirsögn greinarinn-
ar er: „Islandskt lamm en
delikatess.“
Og liver er svo árangurinn
af samstarfi þessu? mun svo
margur spyrja. Kjötút-
flutningurinn til Svíþjóðar
undanfarin ár hefur verið:
1956 .... 104.4 tonn
1957 .... 283.8 -
1958 .... 459.4 -
1959 .... 494.0 -
Þetta er árangur sölustarfs
Sambandsins í Svíþjóð og
samvinnu þess við sænsku
samvinnufélögin, og ef að-
alkeppinautar okkar lækka
ekki verð sitt til muna og
reyna á þann hátt að bola
okkur af markaðnum, get-
um við gert okkur vonir
um jafna og áframhaldandi
sölu, því íslenzkt kjöt hefur
hlotið mjög miklar vinsæld-
ir og mun, ef vel gengur,
vinna sér fastan markað hjá
hinum ágætu frændum
okkar.
Þá væri ekki úr vegi að
bregða okkur í hina áttina
yfir hafið, sem umlykur
okkar ágæta land, og líta
til Bandaríkjanna, þar sem
hinir margþráðu dollarar
blakta í hvers manns hendi.
í janúar síðastliðnum var
hér á ferð Samuel Asliel-
man, kaupfélagsstjóri frá
Greenbelt-kaupfélaginu í
Washington og framámað-
ur í kaupfélagasamsteypu
Washingtonborgar. Þóti
I