Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1960, Side 22

Samvinnan - 01.04.1960, Side 22
Sveinn Víkirigur Krotað á spássíu TÓMSTUNDIR Það er ekki langt síðan, að þjóðin þekkti varla þetta orð, tómstundir, nema þá a£ afspurn. Ef vinnukona í sveit hefði fyrir svo sem 30 árum sagt við húsbændurna, að auðvitað ætlaði hún ekki að snerta handarvik um helgar og vildi auk þess hafa einn dag fi'ían í miðri vikunni, þá hefði liðið fyrst yfir liúsfreyjuna og síðan yfir húsbóndann líka. Og höfðu menn þó sterk- ari taugar í þá daga en nú. Sannleikurinn er sá, að þjóðin hefur um aldir orðið að vinna baki brotnu myrkranna á milli og meira en það alla daga ársins og þó varla haft til hnífs og skeiðar. Svo harðbýlt var þetta harðbýla land, svo vægðarlausar kröfur gerði það til barna sinna frá því þau komust fyrst á legg og fram í gráa elli. Og þó „á landið ærinn auð, ef menn kunna að nota hann“. Það hefur sýnt sig á hinum síðustu áratugum. Þjóðin hefur lært að liagnýta sér auð hafs og lands. Hún hefur margfaldað afl sitt og æsku við tilkomu véla og rafmagns og hún er á fáum árum orðin tiltölulega auðug þjóð. Áður notuðu menn hinar fáu og stopulu tómstundir til þess að halla sér út af og hvíla sig. Og veitti ekki af því. Nú hefur allur fjöldinn aftur á móti svo miklar og margar tómstundir, að hann veit bókstaflega ekkert hvað hann á við þær að gera. Áður var stritið og þreytan aðal áhyggjuefnið. Nú eru það tómstundirnar, sem menn eru í ráðaleysi með. Og það eru þær, sem nú eru að verða alþjóðlegt áhyggjuefni og eiga eftir að verða það í enn ríkara mæli í náinni framtíð. „Guði sé lof, að nú veit ég þó, hvar hann er á nóttunni", sagði sorgbitin ekkja, sem oft hafði verið hrædd um manninn sinn, þegar hann var einhversstaðar úti í bæ fram eftir öllum kvöldum. Og eru þeir foreldrar ekki orðnir harla margir nú, ekki sízt í bæjum og kaupstöðum, sem hafa þungar áhyggjur út af börnum sínum, sem þau vita ekkert um, hvar niður eru komin og ekki koma heim fyrr en einhvern tima seint á nóttu? Það er sagt, að þroska þjóðar megi allmjög marka á því, hvernig hún ver tómstundum sínum. Þá er hver sinn eiginn húsbóndi og ver tíma sínum eins og hann sjálfur girnist. Ég er, því miður, hræddur um, að við mund- um ekki fá mjög háa þroskaeinkunn eða glæsilegan vitnisburð, ef fram færi nákvæm rannsókn á því, hvernig við verjum tómstundunum svona yfirleitt. Við kunnum ekki ennþá með þær að fara, og það er varla von. Það er svo skammt síðan að við fórum að eignast þær að nokkru ráði. Hins vegar hafa séðir fésýslumenn og jafnvel ríkið sjálft, haft bæði hug og vilja á að notfæra sér frístundir annarra í gróðaskyni. Ríkið býður fram brennivínið til þess að fylla bæði tómstundirnar og fólkið með þeim ár- angri að raka saman rúmlega 100 milljónum króna árlega í hreinan ágóða. Aðrir freista tómstundafólksins með skröllum og kaffihúsalífi og næla af því aðrar 100 milljónirnar að minnsta kosti í hreinan gróða. Enn eru til þeir, sem sóa tómstundum sínum í klára iðjuleysi og slæping, sem enginn hefur nokkurn skapaðan hlut upp úr, heldur miklu fremur hið gagnstæða. Frístundirnar eru að verða alvarlegt vandamál, sem hlýtur að fara vaxandi um víða veröld á næstu árum, eftir því, sem tæknin vex og vinnutíminn styttist. Þess vegna er það orðið fyllilega tímabært að hugleiða þessi mál og freista að finna Iiagkvæmar og æskilegar leiðir til þess, að kenna fólkinu að nota frístundir sínar sér til gagns, þroska, og hollra skemmtana og hjálpa mönnum til þess að finna og rækja tómstundaiðju, sem er þeim allt í senn, Iioll, gagnleg og skemmtileg. Ég held að ríkisstjórnin hafi oft skipað óþarfari nefndir en þó hún tæki nú rögg á sig og skipaði nú einu sinni ópólitíska úrvalsnefnd til þess að athuga og gera tillögur til úrbóta um þessi mál. 22 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.