Samvinnan - 01.04.1960, Síða 28
Vanillukaramellur.
1 bolli sykur
1 bolli sýróp
1 bolli rjómi
i/A tsk. salt
2 msk. smjör
6 msk. mjólk
2 tsk. vanilla
Látið sykur, sýróp og rjóma í emeleraðan pott. Sett yfir
vægan hita, þar til sykurinn hefur bráðnað. Soðið í 10
mínútur. Hrært í við og við. Þá er smjörinu, óbræddu,
og mjólkinni bætt í smátt og smátt. Soðið áfram í 15—
20 mínútur, hrært stöðugt í. Er það hefur soðið í 15 mín-
útur, skal ætíð prófa það við og við í köldu vatni. Tekið
af eldinum. Vanillan hrærð saman við. Hellt í smurða
skúffu. Látið renna út af sjálfu sér.
Skorið í ferkantaða bita, þegar það er mátulega volgt.
Sukkulaðikaramellur.
2 dl. rjómi
2 dl. mjólk
4 dl. sykur
2i/4 dl. sýróp
21/2 msk. kakaó
Kakaó og sykri er blandað saman í pott, þar út í er hrært
rjómanum og mjólkinni, hitað. Þegar það sýður, er sýr-
ópið sett út í. Lögurinn soðinn við hægan eld, þar til
ekki ólgar í pottinum. Hræra verður í þessu hér um bil
viðstöðulaust. Það mun þurfa að sjóða í 2—3 stundar-
fjórðunga. Hellt á smurða plötu. Þegar það fer að kólna,
er það skorið í lengjur, því næst þversum á lengjurnar,
svo að myndist ferkantaðir bitar á stærð við karamellur.
Bíði á plötunni, þar til þeir eru alveg kaldir. Vefja má
karamellunum innan í allavega litan cellofanpappír. Sé
karamellulögurinn soðinn lengur og settur á plötuna
kaldur, verður hann harður sem brjóstsykur. Verður þá
að höggva hann sundur. Er það ágætur brjóstsykur á
bragðið, en getur ekki orðið fallegur í laginu.
Páskakonjekt.
Heimatilbúið sælgæti þykir öllum gott og þá
sérstaklega börnunum. Geta þau auðveldlega
hjálpað til með að búa það til eftir þessum
uppskriftum.
Kokoskonfekt.
125 gr flórsykur, 1/ eggjahvíta, 14 msk. rjómi. 10
möndludropar, 25 gr kokosmjöl.
Flórsyi'krinum er sáldrað á borð, vætt í hönum með eggja-
hvítunni, rjómanum og möndludropunum. Hnoðað.
Búnar til lengjur, sem látnar eru bíða um stund. Skorn-
ar í jafna bita, sem rúllaðir eru í aflangar, smáar lengjur.
Lengjunum er velt upp úr kókosmjöli. Settar á kaldan
stað og látnar þorna.
Piparmyntukonfekt.
250 gr flórsykur, 1 eggjahvíta, 1 msk. rjómi, 2 dropar
piparmyntuolía (fæst í lyfjabúðum).
Flórsykrinum er sáldrað á skál og vætt í með eggjahvít-
unni, rjómanum og piparmyntuolíunni. Hnoðað á borði
og rúllað í sívalar lengjur, sem settar eru á sykri stráð
bretti. Skorið í 1 cm. þykkar sneiðar, sem látnar eru
þorna á bakka, en áður en þær eru þurrar, eru þær mál-
aðar með rauðum ávaxtalit, svo að þær verði röndóttar.
Bezt er að gera þetta með eldspýtu.
Saltar möndlur.
100 gr möndlur, 1/ msk. matarolía, borðsalt.
Möncllurnar eru settar í heitt vatn og hýðið tekið af
þeim: Settar á gatasigti og köldu vatni hellt yfir þær.
Látnar á línklút og þerraðar. Settar í skál og olían látin
yfir. Möndlunum velt upp úr fínu borðsalti. Settar á bök-
unarplötu með smjörpappír á inn í lítið heitan ofn og
bakaðar, þar til þær eru ljósbrúnar. Bornar með hana-
stéli.
Snoturt
serviettubrot
Hanakamburinn á vel við á páskunum, hann er bæði hægt að brjóta ein-
faldan og tvöfaldan. Fyrst er serviettan brotin í fernt. Horn B er vikið nið-
ur að 0, mynd 2, síðan er það brotið eins og sýnt er á mynd 3. Nú höfum
við einfaldan hanakamb, ef einhver vill hafa hann tvöfaldan þá heldur hún
áfram og brýtur niður horn D á sama hátt og áður, myncl 4. Brjótið að
síðustu hornið aftur, mynd 5. Serviettuna má leggja þannig á diskinn, eða
festa hornin saman á bakhliðinni svo að hún geti staðið.
28 SAMVINNAN