Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1960, Síða 33

Samvinnan - 01.04.1960, Síða 33
Utgefandi: SAMVINNAN Áb.maður: Guðmundur Sveinsson fréttabréf samvmnunnar Reykjavík, apríl 1960. Sú nýbreytni er hér upp tekin, að léta fréttabréf fylaja Samvinnunni. Reynt verSur aö flytja f stuttu mali ýmsar fréttir innlendar og erlendar af samvinnustarfinu, verzlun, iönaöi, félagsmélum og fleiru. Fréttagreinar fré lesendum veröa þegnar meö þökkum, og sömuleiöis umsagnir og ébendingar, þvf tilgangurinn er sé, aö i bréfinu geti allir fundið eitthvað sér til fróðleiks. HRAÐFRYST GRÆNMETI Mikið vantar á, aö hægt sé aö anna eftirspurn landsmanna eftir alls konar grænmeti. Frá aprilmánuði ár hvert og fram 1 september er á boðstólum íslenzkt grænmeti, bæði úr gróðurhúsum og görðum, og selst það að jafnaði mjög vel. En alla haust- og vetrarmánuðina, í skammdeginu, þegar þörfin er mest, er úrvalið mjög lítið. Helzt er þá að fá innflutt hvítkál og gul- rætur svo og íslenzkar réfur. fslenzkum garðyrkjubændum ber að^ athuga, hvort ekki megi fara að frysta grænmeti.fyrir innanlandsmarkaðinn. Yæri þa annað hvort að reisa frystihús í nágrenni gróðurhusanna, eða taka a leigu eitthvert hinna mörgu frystihúsa, sem aðgerðarlaus eru alla sumarmánuðina. Til þess að hægt verði að frysta verulegt magn, þyrfti að auka mjög framleiðsluna, en ekki ætti það að verða mikið vandamál, þar sem sífellt er unnið að frekari virkjun heitra hvera. Ekki verð- ur málum þessum kippt í lag á einni nóttu, en timi er nú kominn til, að viðkomandi aðilar fari að hug'sa sér til hreyfings. Maske verður það þó^ekki fyrr en hafinn^verð- ur innflutningur a hraðfrystu grænmeti frá Danmörku eða Svíþjóð, en ekki er ólíklegt að það verði á næstu árum, ef gjaldeyrismál þjóðarinnar komast 1 lag. HUNDAHALD Undanfarin ár hefir hundahald farið mjög í vöxt í borgum og bæjum landsins. f Reykjavík er að vísu bannað að hafa hunda, en flestir hundaeigendur hafa þann hátt á, að þeir lata skra hunda sma a sveitabæjum í nágrenni borgarinnar. Talið er, að ef hundaeigendur stofnuðu með sér hundavinafélag og berðust fyrir þvi, að hundahaldsbanninu yrði a£- létt, myndu þeir án efa hljóta fullan sigur. f útlöndum, þar sem allt er úandi í hundum, er framleiðsla á alls kyns hundafóðri, svo sem kexi, kássum, gerfibeinum og mjöli, blómstrandi atvinnuvegur. Til dæmis átu bandanskir hundar s. 1. ár um 1. 000. 000 tonn af tilbúnum hundamat, sem eigendur þeirra greiddu $ 350 milljónir fyrir. Þar eru á markaðnum um 3. 000 tegundir af til- búnu hundafóðri (Tölur úr Market News Service, Bureau of Commercial Fisheries, marz '60). MINNKANDI SÆLGÆTISÁT Fullorðna fólkið hefir stórar áhyggjur af sælgætisáti ~ ~~ barna og unglinga. Það er sagt vera að aukast með hverju árinu og eru sjoppurnar taldar eiga sinn ljóta þátt i þessari óheillaþróun. Hér skal því tekin upp nokkur vörn fyrir smáfólkið, og birtar tölur, sem sanna minnkandi sælgætisframleiðslu undanfarandi ára. Tölurnar eru úr Hagtíðindum, okt. '59: Suðu- súkkulaði 1954: 93 tonn, 1956: 83 tonn, 1958: 79 tonn. Átsúkkulaði 1954: 136 tonn, 1956: 106 tonn, 1958: 97 tonn. Konfekt 1954: 112 tonn, 1956: 152 tonn, 1958: 118 tonn. Karamellur 1954: 82 tonn, 1956: 94 tonn, 1958: 55 tonn. k þessu má sjá, að á flestum tegundum er framleiðslan minnkandi. Undantekning er jpó konfektið, og er það kannske engin tilviljun, að það er helzt konfekt, sem fullorðna folkið borðar. VATNSHELDAR BÆKUR Fyrirtæki eitt í Florida í Bandaríkjunum er farið að — ' gefa út bækur, sem prentaðar eru á vatnsheldan papp- ír. Kápur eða spjöld bókanna eru úr gúmmí, örlitið uppblásnu, svo bækurnar fljóta í vatni. Þetta er eitthvað fyrir þá, sem lesa í baðinu (Vár Tidning, nr. 3, 1960).

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.