Samvinnan - 01.04.1960, Blaðsíða 34
ÆTISVEPPARÆKT Ætisveppir þykja herramannsmatur víða um heim, og ræktun
þeirra og sala abatasöm. Her á landi er neyzla þeirra stöðugt
að aukast og hefir jafnvel verið gerð tilraun til að rækta þá, þott ekki yrði sú starf-
semi langlif. í heiminum eru nú árlega ræktuð 100. 000 tonn af ætisveppum, sem eru
um 2. 750 milljona krona virði a markaðsverði. Danir eru miklar sveppaætur, enda
standa þeir framarlega í ræktun þeirra. f Kaupmannahöfn einni voru s. 1. ár seld
1. 450 tonn, og var smásöluverð frá 3-5 kr. danskar pr. kg., en verðið er jfirleitt
lægra f Danmörku en í öðrum löndum. Til samanburðar má geta þess, að íslenzku
sveppirnir voru seldir á 50 kr. pr. kg. fslendingar eiga að geta ræktað sjálfir alla
þá sveppi, sem þeir þurfa að nota, og jafnvel hafið útflutning. Er hér um verkefni að
ræða, sem forystumenn landbúnaðar ættu að athuga (Uppl. úr Nederland- Noord-
Europa, XIII, nr. 1, '60).
fSLENZKT KJÖT f USA Útflutningur á íslenzku dilkakjöti til Bandari kjanna
hefir farið vaxandi undanfarin ár. Fiskvinnsluverk-
smiðja SÍS í Steelton í Pennsylvaníuriki hefir nú hafizt handa um að selja kjöt-
ið niðursagað og pakkað í mjög smekklegar umbúðir. Er þetta þó enn á
byrjunarstigi, en væntanlega verður hægt að greina frá árangri bráðlega.
FJÖLBREYTTARI MJÓLKURAFURÐIR Mjólkurbú f Bay City í Michigan í Banda-
rikjunum er farið að hraðfrysta mjólk og
selja. Hefir þetta likað svo vel, að einnig er nú farið að frysta undanrennu og vita-
mxnbætta mjólk. Höfuðkosturinn við frystu mjólkina er sá, að hana má geyma lengi
í frystigeymslum, en þfða svo upp og nota, þegar verkast vill, og er hxm þá sögð jafn-
góð og ny. Að sjalfsögðu eru notaðar pappaumbúðir fyrir þessa framleiðslu...
Bragðbætt mjólk ryður sér nú til rúms f Evrópu, en f Bandaríkjunum hefir hún verið á
boðstolum í mörg ar. Algengasta bragðið er sukkulaðibragð, en einnig er alls konar
ávaxtabragð mjög vinsælt (Food Manufacture, marz 1960).
DANSKT SMJÖR OG fSLENZKT NÚ hafa verið flutt inn 100 tonn af dönsku
smjöri, og er framleiðsla íslenzka smjörs-
ins komin f það horf, að frekari innflutningur mun óþarfur. DÓmar almennings
um danska smjörið hafa verið mjög misjafnir og sfzt betri en um það fslenzka.
Þvf var jafnvel haldið fram f blöðum, að hér væri um annars flokks smjör að
ræða. Upplýst var þó, að aðeins fyrsta flokks smjör er flutt út frá Danmörku,
svo ef dæma ma af þessum umkvörtunum, er smekkur landsmanna á smjör
orðinn kannske helzt til góður. Hvað sem öðru lfður, þá er það nú samt stað-
reynd, að fslenzka smjörið, sem nú er aftur komið f búðirnar, selzt betur en
það, sem eftir er af þvf danska.
BELGGEYMAR í Bandarfkjunum er nú mjög mikið byrjað að nota belggeyma
(collapsible rubber containers) til flutninga á alls konar vökvum,
jafnt flugvélabenzfni sem lýsi. Er nú svo komið, að eigendur tankbfla eru orðnir ugg-
andi um hag sinn vegna hinnar hörðu samkeppni. Yenjulegir vörubflar geta nú flutt
vökva, sem aðeins tankbflar fluttu áður. Þegar belggeymir hefir verið tæmdur, er
honum rúllað saman og fer þá lítið fyrir honum. Þegar t. d. senda þarf bflfarm af olfu
um langan veg, getur bfllinn hlaðið stykkjavöru til baka, og verða þannig flutningarnir
hagkvæmari, þvf tankbílar verða ávallt að fara tómir aðra leiðina. Belggeymarnir eru
framleiddir minnstir fyrir 1. 500 lftra, en stærstir fyrir 14. 000 lítra, og eru sagðir
þola mjög vel bæði mikinn hita og mikið frost (International Management Digest, marz,
1960).