Samvinnan - 01.04.1960, Page 36
RÚSSAR KAUPA MEÐ AFBORGUNUM Árið 1959 var russneskum verzlun-
um leyft að taka upp sölu á ymsum
varningi með afborgunarskilmálum. Mest eru það alls kyns heimilistæki,
sem þannig eru seld líkt og í öðrum löndum. Deildaverzlunin G. U. M. í
Moskvu jók veltu sína um 7 milljónir dollara á síðasta ári og þakkar það
afborgunarkerfinu (International Business Contacts, marz 1960).
SLÆM HIRÐING VÉLA Bændur landsins sæta oft gagnrýni fyrir það, að þeir láti
hin dýru landbúnaðartæki sín liggja úti í öllum veðrum og
fari margir hverjir hörmulega með hin dýru tæki. Dæmi hafa verið nefnd og mynd-
ir birtar af rakstrarvelum liggjandi niður í túnfæti, þar sem skilið hefir verið við
þær um sumarið, en þær svo látnar liggja allan veturinn. Þvi miður eru mörg af
þessum dæmum sönn, og bændum til skammar. En við svo búið má ekki lengur
standa. Bændur eiga að beita áhrifum sínum í búnaðarfélögum og á hóraðsfundum
til þess að ráða bót á þessu. Viða mun vera skortur á geymslum fyrir verkfærin,
en strax myndi það vera bót, ef hægt væri að fá passandi seglábreiður til að breiða
yfir verkfæri þau, sem úti verða að standa allan veturinn. Búnaðarfélögin gætu seð
um, að slíkar ábreiður verði framleiddar.
FRÍMERKI OG ÞJÓÐSÖNGUR í umræðum í sænska þinginu nýlega, lýsti
einn þingmanna yfir því, að sér fyndust
sænsku frímerkin ekki nógu falleg og litauðug. Hann vildi fá á merkin
myndir úr náttúrunni og stakk upp á miðnætursól yfir fjalli. Annar þing-
maður fetti fingur út í sænska þjóðsönginn og fann honum ýmislegt til
foráttu. Hér á landi hafa jú orðið deilur um þjóðsönginn, en óhætt að
segja, að náttúrumyndir séu algengar á frímerkjunum (Nordisk Kontakt,
2, 1960).