Samvinnan - 01.08.1973, Blaðsíða 36
á meðan bankar meta lánshæfni fyrir-
tækja eftir eiginfjárstöðu er góð eigin-
fjárstaða nauðsynleg, þegar það fylgist
að eiginfjárstaða batnar en greiðslufjár-
staða versnar, þvi að þá verður jafnan
að leita til banka um aukið rekstrarfé.
Það verður að nota hugtakið eiginfjár-
staða með mjög mikilli varfærni, því að
annars gæti svo farið að fyrirtæki legðu
of mikið kapp á að bæta eiginfjárstöðuna
á kostnað annarra og mikilvægari þátta.
Mikilvægasti þáttur i starfsemi banka er
t. d. að ávaxta fé í atvinnurekstri, en til
þess að bæta eiginfjárstöðuna myndi
banki aftur á móti hætta útlánastarf-
semi og fjárfesta sjálfur í steini. Þegar
allt þetta er haft í huga, er næsta hæpið
að nota orðið eiginfjárstaða um þetta
hugtak; nær lagi væri að nota orðið
gervifjárstaða.
Samkvæmt skýrslu viðskiptafræðinem-
anna telur Jónas H. Haralz bankastjóri
Landsbankans, að bankar hér telji 33%
hlutfall eigin fjár vera þokkalega stöðu
fyrirtækja. Landsbanki íslands, sem er
traustasta bankafyrirtæki hérlendis og
það virtasta bæði utanlands og innan,
hefur 9% eiginfjárstöðu, aðrir bankar að
meðaltali 3%. Þetta sýnir að ekki er hægt
með nokkurri sanngimi að ákveða neitt
allsherjar hlutfall eiginfjárstöðu; eðli
starfseminnar og notkun fastafjármagns
eru afgerandi þættir.
Eiginfjárstaða Sambands ísl. samvinnu-
félaga er í árslok 1971 24%. Marktækt úr-
tak heildverzlana sýnir 33% eiginfjár-
stöðu þeirra. Viðskiptafræðinemar viður-
kenna að þessi samanburður sé ekki
fyllilega réttmætur gagnvart Samband-
inu, vegna þeirra annarra þátta í starf-
semi Sambandsins, sem ekki tíðkast að
jafnaði hjá heildverzlunum. En í fram-
haldi af því undrast þeir engu að síður
lánstraust Sambandsins og telja það ó-
eðlilegt: hreppapólitík, pólitísk að-
staða o. fl.
Um þessar mundir er mikið um að vera
hjá heildverzlunum i fjárfestingu, m. a.
Klettagarðar. Við það lækkar eiginfjár-
staða heildverzlana nokkuð. Ekki veit ég
hvaða fjármagn er í heildverzlunum á ís-
landi, né hve mikið viðbótarlánsfé þær
þurfa vegna yfirstandandi fjárfestinga,
en væntanlega fer eiginfiárstaða þeirra
niður fyrir 30%, ef til vill niður í 24%.
Færi svo, telja viðskiptafræðinemarnir
væntanlega að heildverzlanirnar þyrftu
að láta af úreltri bændapólitík og opna
sig fyrir nútímanum. Þannig færi nú um
þessa fjárfestingu heildverzlananna, sem
vissulega er gerð til þess að fylgjast með
tímanum og bæta reksturinn, og levfist
mér enn að vara við ofmati á eiginfjár-
stöðuhugtakinu.
Eiginfjárstaða fyrirtækis getur verið
mjög breytileg frá einum tíma til annars.
Ég hef hér fyrir framan mig ársreikn-
inga saltfiskverkunarstöðvar frá síðustu
áramótum og sýna þeir 41% eiginfjár-
stöðu og er það gott hlutfall að mati
banka. Uppgjör sama fyrirtækis pr. 15.
mai sl. sýnir eiginfjárstöðuna 17% og
myndu bankamenn þurfa nokkurrar um-
hugsunar við áður en þeir teldu það góða
eiginfjárstöðu. Þó er um nokkurn hagnað
að ræða á tímabilinu. Eiginfjárstaða
fiskverkunarfyrirtækja er venjulegast
verst á vorin en bezt einhvers staðar ná-
lægt áramótum, eða um það leyti sem
uppgjör eru gerð. Hjá fjölmörgum verzl-
unarfyrirtækjum er eiginfjárstaðan allt
önnur og miklu verri þann 30. nóv. hvers
árs heldur en 31. des. Þvi valda birgðir
jólavarnings. Stór þáttur í starfsemi
samvinnufélaganna er slátrun og sölu-
meðferð sláturafurða. Nú hagar þannig
til í náttúrunni að slátrun fer fram á
haustin og mestur hluti sláturfjárafurða
er óuppgerður um áramót. Þetta veldur
því að við áramótauppgjör er eiginfjár-
staða samvinnufélaganna mun lakari en
meðaltal ársins.
Þá er þess að geta að verksmiðjubrun-
inn á Akureyri varð Sambandinu mikið
áfall og hafði það afgerandi áhrif á eig-
infj árstöðuna i árslokin 1971. Nú vill svo
til að einmitt þessi sami bruni verður til
þess að bæta eiginfjárstöðu Sambandsins
að nokkrum árum liðnum og finnst mér
nú aftur rétt að grípa til orðsins gervi-
fjárstaða.
Innlánsdeildir kaupfélaga voru nauð-
synlegur þáttur í starfsemi þeirra í eina
tíð á meðan skorti mestalla bankastarf-
semi úti á landsbyggðinni. Lánastarfsemi
innlánsdeildanna er nú ekki eins nauð-
synleg og áður var, og eru kaupfélögin nú
vitandi vits að draga úr þeirri starfsemi.
Það er nefnilega misskilningur hjá við-
skiptafræðinemum að samvinnumenn séu
forpokaðir í aldamótahugmyndum. Enn-
þá eru innlánsdeildirnar með allmiklu
fjármagni og lækkar það eiginfjármagns-
stöðu kaupfélaganna um 3%.
VI
Á einum stað í skýrslu viðskiptafræði-
nemanna stendur: „Pólitísk öfl ráða
miklu i bankakerfinu, þar sem alþingi
kýs bankaráðin og þau velja bankastjór-
ana. Og væntaniega efast enginn um, að
sterk pólitisk öfl standi með samvinnu-
hreyfingunni. — En hvað varir þetta
lengi? Pólitískt vald er b-eytilegt. Ríkis-
stjórnir korna og fara. Ekki verður treyst
á forréttindi í öruggri vissu til lengdar."
Það er næsta furðulegt að rekast á
slíkar setningar í skýrslu nemenda við-
skiptadeildar við háskóla þar sem vísindi
eiga að vera í heiðri höfð. Þarna er ótví-
rætt sagt að samvinnuhreyfingin njóti
forréttinda í skjóli pólitísks valds. Reynt
hefur verið i marga áratugi að halda
þessari þjóðsögu við lýði af ómerkari að-
ilum en háskóli ætti að vera, og hefur
það sjaldnast þótt svaravert, í trausti
þess að almenningur á íslandi sé skyn-
samari en svo að það þýði að bjóða hon-
um upp á slíkan málflutning.
Beiti bankarnir pólitísku valdi, sem ég
leyfi mér að ætla að þeir geri ekki, að
minnsta kosti veit ég fyrir vist að þeir
gera það ekki samvinnuhreyfingunni til
þægðar, hljóta þeir fyrst og fremst að
beita því eftir pólitísku afli. Ste-kasta
pólitíska aflið á íslandi er Sjálfstæðis-
flokkurinn, sem styður einkaframtak
skilyrðislaust, og hefur að jafnaði nálægt
40% kjörfylgis. Dylgjur um misbeitingu
pólitísks valds bankanna eru því dylgjur
um misbeitingu þess í þágu einkafram-
taksins. Sósíalísku flokkarnir sem að
jafnaði hafa yfir 30% kjörfylgis telja op-
inberan rekstur æskilegasta form at-
vinnurekstrar. Framsóknarflokkurinn,
með yfir 25% kjörfylgis, styður og ver
samvinnuhreyfinguna en telur jafnframt
að einkaframtak eigi fyllsta rétt á sér
og einnig opinber rekstur þar sem
það á við, eins og t. d. í stærri verkefn-
um, sem hvorki einkaframtak eða sam-
vinnuhreyfingin ræður við. í þessu er
fólginn pólitískur styrkur á íslandi til
þess að koma fram forréttindum fyrir
ákveðin rekstrarform:
Einkaframtak nálægt 40%
Opinber rekstur yfir 30%
Samvinnurekstur yfir 25%
Sá pólitíski styrkur, sem kemur í veg
fyrir að hægt sé að misbeita valdi gagn-
vart einstökum rekstrarformum, er ann-
ar og meiri, einkareksturs 65—70% og
samvinnuhreyfingar um 60%.
VII
Viðskiptafræðinemarnir ásaka sam-
vinnuhreyfinguna fyrir það að hún sé
ekki opin fyrir fjárframlögum fólksins
í von um ríflegan arð. Nú var þeirn mæta-
vel kunnugt um að innan samvinnuhreyf-
ingarinnar eru uppi hugmyndir um að
fá fjármagn beint inn í fyrirtækin og
stendur ekki á samvinnuhreyfingunni í
þeim efnum. En fjármagn fæst aldrei
beint inn í fyrirtækin fyrr en löggjafinn
hefur gert áhættufjármagn jafnrétthátt
og sparifé, og á því löggjafarvaldið næsta
leik. Hlutafélögin eru i flestum tilfellum
lokaðri fyrir fjárframlögum fólksins en
samvinnufélögin og þau þarf einnig að
opna, en þar hygg ég að í mörgum til-
fellum mundi verða meiri andstaða, og
væri því réttara af viðskiptafræðinemum
að snúa geiri sínum þangað.
VIII
Þetta er orðið allmiklu lengra mál en
ég ætlaði í upphafi og er mál að linni.
Samvinnuhreyfingin varð í upphafi til
í því skyni að verða fólkinu í landinu að
gagni á annan hátt en í beinum hagnaði
fyrirtækja þess, þó að alltaf verði að
hafa í huga að afkoma þeirra sé trygg.
Og samvinnuh-eyfingin hefur haldið á-
fram starfi sínu á þessum sama grund-
velli, og ég held að um langa framtíð
verði þörf á þeim hugsunarhætti, sem á
bak við starf samvinnuhreyfingannnar
liggur. Og ég held að samvinnumenn
megi sæmilega við una hvernig tekizt
hefur til.
Ég vona að eftirleikurinn að ráðstefnu
viðskiptafræðinema um samvinnuhrevf-
inguna verði ekki sá, að slíkar ráðstefnur
leggist niður, þar sem þær ættu tvímæla-
laust að geta orðið til góðs, en aftur á
móti er nokkur hætta á að aðrir aðilar,
sem þeir kynnu að leita til í framtíð-
inni um upplýsingar, verði tregari til þess
að hleypa þeim inn á gafl hjá sér, eins og
samvinnuhreyfingin vissulega gerði. Að
lokum óska ég viðskiptafræðinemum við
Háskóla íslands alls góðs og vona að
húmanísk viðhorf fái að vaxa með þeim
og dafna. 4
36