Samvinnan - 01.03.1978, Page 6
TVÖ
TONN
AFKEXI
ÁDAG
í öSrum enda salarins
er deigið hraert, og er
það gert í stórri þar til
gerðri hrærivél.
Verksmiðjusalurinn er
86 metra langur, bjart-
ur, rúmgóður og allur
hinn snyrtilegasti.
heggur úr henni hráar kex-
kökur, en það sem afgangs
verður af deiginu rennur til
baka og er nýtt aftur. Kökurn-
ar renna síðan inn í bakarofn-
inn.
í gegnum bakarofninn renna
kökurnar siðan á hægri ferð á
færibandi. Að þvi loknu koma
þær fullbakaðar út úr hinum
endanum á ofninum, og þá er
þeim lyft upp á færiband, þar
sem þær leggjast á hvolf og
renna til baka eftir því, sömu-
leiðis á hægri ferð, og kólna
þá á bakhliðinni. Þaðan fara
þær á annað færiband, þar
sem þeim er aftur snúið við,
og kólnar þá hin hliðin. Sam-
tals eru þessi tvö færibönd
75 metrar að lengd.
Af færiböndunum koma kök-
urnar síðan að pökkunarvél-
inni. Það er eina stigið á fram-
leiðslunni, sem ekki er sjálf-
virkt, allt frá því að deiginu er
hellt inn í vélina. Þar taka
starfsmenn verksmiðjunnar við
kexinu, raða því inn í pökkun-
arvélina, sem siðan vefur selló-
fanbréfi utan um hvern pakka
og lokar honum. Þar með
er framleiðslunni lokið og ekk-
ert eftir annað en að raða
pökkunum niður í pappakassa.
í pappakössunum er kexið síð-
an sent út til verzlana.
• 2400 pakkar á klukkustund
Stjórnandi kexverksmiðj-
unnar er Örnólfur Örnólfsson
bakarameistari. Við hittum
hann að máli og báðum hann
um að segja okkur frá verk-
smiðjunni og starfseminni, sem
þar fer fram.
— Hér vinna nú 12 manns,
segir Örnólfur, — og við erum
sem óðast að ná fullum tökum
á öllum stigum framleiðslunn-
ar, en eins og eðlilegt er höf-
um við orðið að yfirstiga ýmis
byrjunarvandamál og vand-
kvæði, sem alltaf er við að
glíma þegar farið er af stað
með nýja framleiðslu. Við telj-
um okkur núna vera um það
bil að ná fullum afköstum. Það
er sama fólkið sem vinnur hér
við framleiðsluna og þrif á
verksmiðjunni, og miðað við
6—7 stunda vinnudag er áætl-
að að baka hér tvö tonn af kexi
á dag. Bökun í ofninum tekur
hó skemmri tíma, en talsverð
vinna er bæði framan og aftan
við véiarnar, svo sem við að
hræra deig, taka til umbúðir,
búa um kexið og ganga frá
því, svo og við þrif. Pökkunar-
vélin er líka mikilvægur hlekk-
ur í framleiðslukeðjunni í
svona verksmiðju, en vélin hjá
okkur er frönsk og getur af-
kastað 2400 pökkum á klukku-
stund.
— Verksmiðjusalurinn hér er
ákaflega skemmtilegur, og
hann hefur vakið aðdáun allra
sem hafa skoðað hann. Allur
aðbúnaður hér verður að telj-
ast ágætur og vinnuaðstæð-
urnar eru góðar.
• Sex tegundir á þessu ári
— Það er ætlunin hjá okkur
að bæta þremur nýjum teg-
undum við framleiðsluna á
næstunni, eða að koma með
samtals sex tegundir af kexi á
markaðinn á þessu ári. Við er-
um þegar búnir að setja á
markaðinn vanillukex, mjólk-
urkex og kornkex, en fram-
undan er að hefja sölu á krem-
kexi, súkkulaðihúðuðu korn-
kexi og hafrakexi. Allt þetta
kex verður kringlótt og 60
millimetrar i þvermál. Nafn
verksmiðjunnar, Kexverk-
smiðjan Holt, verður stimplað
á sumar tegundirnar, en því
miður leyfir tækjabúnaðurinn
okkur ekki að gera það nema
á minnstu tegundirnar enn
sem komið er.
— Ég tel, að kornkexið frá
okkur ætti að verða mesta nýj-
ungin á markaðnum hér, því
að það er ólíkt þeim tegundum,
sem til þessa hafa verið hér á
boðstólum. Það er bakað úr
fjórum tegundum af grófu
mjöli, sem blandað er saman,
og við gerum okkur vonir um
að það eigi eftir að falla neyt-
endum hér mjög vel i geð. ♦
6