Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1978, Page 7

Samvinnan - 01.03.1978, Page 7
TVÖ LJÓÐ ÚR SUMARAUKA EFTIR BRAGA SIGURJÓNSSON Ein í förum Af bláu hafi í bjarta höfn fór bátur með seglum þöndum, og þau voru felld og fest við rá af fumlausum, styrkum höndum. Sólskinið flóði um fjarðargólf, svo fjallskugginn þokaðist innar, á bryggjuna siglarinn brá sér létt, þar beið hann móttöku þinnar. Upp var runnin ársól Tæplega seytján þú varst þá, og það var gaman að lifa. Forlögin tóku í óðaönn upphafskaflann að skrifa að sögunni þinni: söng um vor og sóldýrð á bláum vogum. En langt í hafi fór sorgin seint á sóknvissum áratogum. Gekk ég út í gullregn, gaukur þaut við háloft, sat í grasi sóldögg, sindur féll af grein. Reistu hnjúkar rauð þök, ríslaði hljótt í blæösp, varla bærði svefnsæ við sand eða hlein. Gekk ég ofar grænskóg, gaukur hvarf við bláloft, sté til himins heiðdögg, hvarf í geislareyk. Störðu opnar steindyr, stóðu hlustnæm bergþil: úti voru álfbörn öll í blómaleik. Og þér hún náði og þar með lauk þínu fagnaðarvori. Hafið sem gaf, varð haf, sem tók, þá hvarf þér leikur úr spori. Þitt auga varð sljótt, því að eldurinn dó, sem ástin og vonin kveikti. Þú upp frá því varðst sem visnað blað, sem vindurinn með sér feykti. Gekk ég út í gullregn, gaukur þuldi spásöng, sat í blómi sóldögg, silfri sló á hlöð. Glumdi yfir glitskóg glaðra þrasta samkór, lindin flutti léttstíg Ijóð sín morgunglöð. Sat ég undir sólvegg, svalg af tærri ilmskál, helg og þögul hlýjörð, hvíld og sæld mér gaf. Gengin var mér glaumþröng, gleymdur var mér dynbær: Upp var runnin ársól yfir land og haf. Um kjallaraholur í heimabæ hraktist þú árum saman, að gera að þér hróp og hrekkjast við þig höfðum við strákar gaman. En söguna þína ég þekki nú fyrst, þegar þú liggur á börum og sýnir mér burtkölluð sannleika þann, hve sál manns er ein í förum. Bragi Sigurjónsson.

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.