Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1978, Blaðsíða 9

Samvinnan - 01.03.1978, Blaðsíða 9
Árni Tómasson. Jóhanna Jónsdóttir. Séð yfir fjárhúsin. Húsin til vinstri eru byggð skömmu eftir aldamót. meðan hann væri á þinginu. Þorgerði fæddist fríður sveinn, gjörvilegur, en þó að hún væri systir Þorgeirs á Ljósavatni þorði hún ekki annað en hlýða eiginmanninum. Vasklegi drengurinn var bor- inn út, að fornum en miður drengilegum sið, og lagður í urðina i Eyrarfjalli. En gamli Gestur og Syrpa bjuggu sem kunnugt er í Tóftum og Gestur heyrði skælurnar í hvitvoð- ungnum enda undir tók í Eyr- arfjalli og heiðinni og hann bar drenginn i fangið á Syrpu í Tóftum. Þar ólst hann upp og var skírður Urðarköttur. Þegar hér var komið var barnshugur minn vakinn fyrir söguefninu og ég kemst ekki hjá að rifja örlitið meira upp. Urðarköttur varð óvenjulegur atgervismaður og áður en hann er fullvaxinn bjargar hann skipshöfn af logandi skipi á Skjálfanda. Aðeins einn maður lifði af þær raunir, sá hét Finnbogi og var víkverskur. Urðarköttur hinn ungi full- hugi og Finnbogi urðu nú svo miklir vinir að eftir þetta skildu þeir aldrei. En þegar hækkar svo mjög gengi stráks- ins frá Tóftum heimtar stór- bóndinn á Eyri að gangast við stráknum og tekur hann heim, en gamla Syrpa tárfellir. Þeg- ar faðernið er komið í lag heimsækja þeir Urðarköttur og Finnbogi Þorgeir á Ljósavatni °g síðan fara þeir til bróður Þorgeirs, Drauma-Finna í Fremstafelli. Þaðan héldu þeir yfir Kinnarfell og ætluðu að Finnsstöðum en á þeirri stuttu leið gerðust þau tíðindi að Finnbogi andaðist þar á Fell- inu undir steini þeim sem nú heitir Finnbogasteinn. Áður en hann skyldi við gaf hann Urðarketti það eina sem hann átti, nafnið sitt. Upp frá því var hann nefndur Finn- bogi rammi. Nú gerist ekki þörf að rifja upp meira úr þessari scgu en áhugi minn var vakinn fyrir Eyri á Flat- eyjardal og urðinni þar sem sveinninn, systursonur Þor- geirs á Ljósavatni, skældi á milli grárra steina. Og af hlað- inu heima á Halldórsstöðum sá ég Finnbogastein bera við himin, svartan, kollóttan. Hann hafði stækkað við lestur sög- unnar og bar eins og hærra en áður. Svo kom vorið, sauðburður, rúningur og ég var smalinn. Eftir þetta var miklu skemmtilegra að vera smali. Kinnarfell hafði lifnað dálítið við og ég átti nú alltaf nokk- urt erindi að Finnbogasteini, hoppaði upp á hann, stóð þar góða stund, þaðan sást betur til fjárins. Steinninn var eins og traust undirstaða lifandi sögu og svo ef maður hóaði mikið og hátt og reisti sig dá- lítið og var heppinn gátu ýms- ir á bæjunum séð strákinn bera við loft á steininum. Svo gerð- ist ýmislegt á næstunni, sem varðveitti þráðinn til Eyrar. Ég frétti að afi minn, Sigurður á Draflastöðum, hefði átt Knarrareyri. Afi keypti hana einu sinni þegar hann var upp á sitt besta af Stefáni Stefáns- syni í Fagraskógi, ásamt Ðraflastöðum, Melum og Vé- geirsstöðum i Fnjóskadal. Svo að það munaði bara ekki hárs- breidd að foreldrar minir hefðu ef til vill búið á Eyri. En móðir mín átti aldrei þá jörð. Eyri kom i hlut bróður hennar, Sigurðar búnaðar- málastjóra. Sigurður var mik- ill fjörmaður eins og ýmsum, sem þekktu hann, er kunnugt. Oftast kom hann heim einu sinni á ári og fór í leiki við okkur krakkana, aðallega skollablindu og papparaleik. Hann var mjög hrifinn af því að eiga Knarrareyri og talaði mikið um það. Eitt sinn sagðist hann vera ákveðinn í að flytja búferlum að Eyri og hafa þar stórbúskap, 500 sauði. Það eina, aðeins það eina sem vantaði, væri sauða- maðurinn. Og það stóð ekki á að velja sauðamanninn en það var ógæfan fyrir mig. Hann sagði að ég ætti að vera sauða- maður hjá sér. Ég væri svo fljótur að hlaupa en ég þyrfti að ganga á mannbroddum allt árið því að Eyrarfjall væri svo snarbratt og sauðirnir allir kollóttir, háfættir og vitlausir í óþægð. Þetta voru ljótar fréttir fyrir mig, ég leit niður á fætur mér, hreinlega tapaði gleði minni, þorði þó ekkert að Leyniþráður- inn til Eyrar, sem spunninn var í bað- stofu frammi í sveit fyrir mörgum árum, hefur aldrei slitnað. 9

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.