Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1978, Side 12

Samvinnan - 01.03.1978, Side 12
Valgeir Sigurðsson skrifar um skáldsögu Ólafs Jóhanns Sigurðssonar, Seið og Hélog A VIÐSJALUM TÍMUM Hér er verið að færa okkur stórbrotið og mikils háttar skáldverk, sem gerist á einhverjum afdrifa- ríkustu breytingatímum, sem nokkru sinni hafa gengið yfir þessa þjóð. Árið 1955 kom út skáldsagan Gangvirkið eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson. Söguna segir ung- ur maður, Páll Jónsson, sem hefur alizt upp hjá ömmu sinni á Djúpafirði, en flutzt til Reykjavikur og orðið blaða- maður þar, enda er undirtitill bókarinnar: „Ævintýri blaða- manns." Gangvirkið er fram úr skarandi vel skrifuð bók og hollur lestur, ekki siður nú en fyrir röskum tuttugu árum, þegar bókin kom út, en lítil ástæða er til þess að skrifa langt mál um hana hér, því að hún mun vera flestum lesend- um þessarar greinar í fersku minni síðan Þorsteinn Gunn- arsson leikari las hana í út- varp fyrir fáum misserum við miklar vinsældir hlustenda. Svo urðu þau ánægjulegu tíðindi á síðastliðnu hausti, að Ólafur Jóhann sendi frá sér framhald skáldverksins um Pál Jónsson blaðamann og það sem á daga hans drífur í Reykjavík. Sagan er beint framhald Gangvirkisins, bæði hvað snertir persónur og tíma- tal. Við hittum aftur fólkið sem við kynntumst i Gang- virkinu, þótt hér, eins og í líf- inu sjálfu, eigi sér stað endur- nýjun og breytingar. Nýjar persónur stíga fram á sviðið, en aðrar víkja þaðan fyrir fullt og allt. Valþór, stofnandi og ritstjóri Blysfara, er enn sjálfum sér líkur. Einar Pétursson, öðru nafni Sókron reykvíkingur, heldur áfram að vera blaða- maður við Blysfara, en honum fer ekki agnarögn fram, þótt starfsárum hans við blaðið fjölgi. Hann heldur enn að hann viti og geti alla skapaða hluti, en gutlar alltaf í yfir- borðinu og er gersamlega ófær um að tala móðurmál sitt svo í lagi sé, hvað þá að skrifa bitastæða blaðagrein. Þegar starfsbróðir hans spyr hann spurningar, sem hann getur ekki svarað, segist hann hugsa „að fáir séu sjúrir á þessu spursmáli." Hann ruglar sam- an orðatiltækjum og skrifar meðal annars í blað sitt, að: „Við þurfum ekki að sigla milli steins og sleggju..— og annað er eftir þessu. Og Páll Jónsson sjálfur, sá er söguna segir, hann er enn blaðamað- ur við Blysfara, þýðir fram- haldssögur úr ensku eða dönsku, smalar saman skrýtl- um í blaðið og les prófarkir. En þótt starfsmenn Blysfara haldi háttum sínum verður það ekki sagt um alla, enda eru nú þeir tímar í landi, að flest er á hverfanda hveli. Gangvirk- inu lýkur morguninn sem Bretar hernema ísland vorið 1940, Seiður og hélog gerist á þeim tíma sem eftir er til stríðsloka. Erient herlið hafði ekki verið lengi í landinu, þeg- ar mörgum íslendingum varð Ijóst, að græða mætti peninga á veru þess hér, og margir urðu til þess að falla fyrir þeirri freistingu. Ragnheiður mat- sölukona, sem undan farin ár hefur selt Páli Jónssyni og mörgum fleiri íslendingum fæði, er fljót að sjá, að tilvalið muni vera fyrir hana að selja Bretum steiktan fisk og kart- öflur, ásamt rabarbaragraut, enda líður ekki á löngu unz matstofan hennar er orðin hermannabæli. Og meira að segja frú Kamilla, — frúin í húsinu, þar sem Páll Jónsson hafði herbergi á leigu um ára- bil, — meira að segja hún tek- ur til í óða önn að fram- leiða silkiklúta, „nokkurskonar minjagripi“ handa hernum, og þegar sú fj áröflunarleið er úti, snýr hún sér að því að „steikja þesskonar kleinur, sem banda- ríkjamenn kalla doughnuts,“ — auðvitað handa erlendum hermönnum. Með henni í þess- um athöfnum er vinkona hennar og gömul skólasystir, og er þó sannast að segja, að hvorug þessara kvenna virðist þurfa að grípa til slíkra gróða- bragða, báðar vel stæðar mið- stéttarfrúr i Reykjavík. Af þessum sjónarhóli er gott að líta yfir sviðið. Við erum stödd í Reykjavík stríðsáranna, þegar næstum allir, háir sem lágir, reyna með margvíslegu móti að notfæra sér rikjandi ástand og græða fé með nýjum og áður óþekktum hætti. En hér er reyndar annað og miklu meira á ferðinni. Gangvirkið og Seiður og hélog eru að vísu ekki nema tvö bindi af þrem (eða öllu heldur: þriðja bindið mun vera fyrir hugað), en þó getur það varla dulizt neinum, að hér er verið að færa okkur stórbrotið og mikils háttar skáldverk, sem gerist á ein- hverjum afdrifarikustu breyt- ingatímum, sem nokkru sinni hafa gengið yfir þessa þjóð. Það er því auðvitað meiri háttar bókmenntaviðburður, þegar slíkt verk kemur frá 12

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.