Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1978, Síða 14

Samvinnan - 01.03.1978, Síða 14
beggja handa. Hver framtiS hennar verður vitum við ekki, þvi okkur er ekki gefið að sjá inn i ókominn tíma. Og hvað um Pál Jónsson? Víst er ekki bjart um að litast, þegar hann fellir frásögn sína að bókarlokum. Henni lýkur daginn sem kj arnorkusprengj - unni var varpað á Hirósíma í Japan. „Þrátt fyrir fávizku mina, varð mér ljóst, eins og raunar flestum, að nú höfðu orðið þáttaskil í sögu mann- kyns. Hvað verður um jörðina, hugsaði ég, þetta rykkorn í óendanlegum geimi? Hvað verður um þjóðir heims á kjarnorkuöld, og hvað verður um okkur? Hvað verður um mig?“ Á þessum orðum endar bók- in. Vonandi verður þess ekki langt að bíða, að við fáum að fylgja Páli Jónssyni lengra á lífsgöngu hans. Enn er mörg- um spurningum ósvarað, og Páll hefur verið duglegur við það i Seiði og hélogum að vekja áhuga og forvitni lesenda sinna. Það væri fáránlegt, ef vesa- lingur minn færi að rausa hér um mál og stíl þessarar bókar. Allir, sem fylgjast eitthvað að ráði með íslenzkum bók- menntum, vita, að Ólafur Jó- hann Sigurðsson er einhver mesti stílsnillingur, sem nú er uppi í landinu, og á máli hans er hvorki blettur né hrukka. Endurtekin orð og orðasam- bönd verða eins og viðlag eða stef, og til þess að gæða stíl- inn enn meira lífi, grípur höf- undur iðulega til málshátta: „Bili öngull, skal beita nýj- an ...“ (Bls. 173). „Glögg er granna sjón.“ (Bls. 262) o. fl. Hið íslenzka þjóðfélag hefur umturnazt svo gersamlega á síðustu fjörutíu árum, að nú má það heita óþekkjanlegt með öllu, ef borið er saman við það sem var fyrir fimmtíu árum eða svo. Enn eigum við þó ým- islegt i fórum okkar, sem vel má verða okkur til bjargar, ef við kunnum með að fara: Til- tölulega óspillta nátúru, víð- áttur landsins, lindir þess og gróður. Og við eigum glæstan menningararf, sem forfeður okkar létu okkur í té, og hefur borið ríkulegan ávöxt á vorum tímum. Okkur ætti því ekki að vera svo mjög mikil hætta bú- in í framtíðinni, ef við höfum manndóm til þess að fara að dæmi Páls Jónssonar blaða- manns: Varðveita hið bezta í sjálfum okkur, — sál okkar og samvizku, — en látum ekki hrævarelda og hélog teyma okkur út i ófæru. 4 Við geymum það sem ætla má að hafi sögulegt gildi Örstutt spjall við Gunnar Grímsson um Skjalasafn Sambandsins Skjalasafn Sambandsins hef- ur aðsetur sitt í norðurenda Holtagarða, nýbyggingar Sam- bandsins við Sundin blá. Þar sem hér er um nýja stofnun að ræða, er ekki úr vegi að kynna hana með fáeinum orðum og spjalla lítillega við forstöðu- mann safnsins, Gunnar Grims- son. Gunnar er fæddur 9. febrúar 1907 í Húsavík, Kirkjubóls- hreppi í Strandasýslu. Foreldr- ar hans eru Grimur Stefáns- son bóndi þar og kona hans Ragnheiður Jónsdóttir. Hann lauk prófi frá búnaðarskólan- um á Hvanneyri 1927, en aflaði sér auk þess með sjálfsnámi og einkatímum góðrar þekkingar í bókfærslu og verzlunargrein- um. Hann stundaði fyrst barnakennslu í heimabyggð sinni, var sýsluskrifari á Borð- eyri i eitt ár og bankaritari á Eskifirði um þriggja ára skeið. Þá gerðist hann kaupfélags- stjóri i Höfðakaupstað og gegndi því starfi i næstum tvo áratugi eða frá 1937—1955. Næstu sjö árin er hann kenn- ari við Samvinnuskólann að Bifröst, en gerist að því búnu starfsmaður Sambandsins í Reykjavík, fyrst sem bókari en síðast starfsmannastjóri. Gunnar Grímsson hóf snemma afskipti af félagsmál- um og hefur gegnt fjölmörg- um trúnaðarstörfum fyrir sam- vinnuhreyfinguna um sína daga. Hann hefur til dæmis verið ritari á fundum sam- vinnumanna og ekki ósjaldan stungið niður penna, þegar málefni hreyfingarinnar hef- ur borið á góma á opinberum vettvangi. — Á sjötíu ára starfsferli hafa að sjálfsögðu hlaðizt upp mikil gögn af bókhaldi og skjölum, sem ekki hafa verið eyðilögð, sagði Gunnar i ör- stuttu spjalli við Samvinnuna. — Þetta hefur verið geymt á ýmsum stöðum, oft í lélegri að- stöðu, án flokkunar eða á- kvörðunar um, hvað af þessu skuli hljóta endanlega varð- veizlu. — Hvenær gerðist þú fastur starfsmaður við safnið? — Ég hef nú verið að snúast í kringum þetta ásamt fleiru, síðan ég hætti sem starfs- mannastjóri eða rúm tvö ár að mig minnir. • Bókhaldsgögn og bækur — Hvaða skjöl og bækur er ætlunin að varðveita í safninu? — í lögum um bókhald er svo mælt fyrir, að öll gögn þar að lútandi skuli geymd i sjö ár, en voru tíu ár áður. í því mikla pappirsflóði, sem orðið er i nú- tíma bókhaldi, held ég það væri óðs manns æði að ætla sér að geyma allt sem til fell- ur. Hugmyndin er að geyma það, sem ætla má að hafi sögu- legt gildi, en eyðileggja hitt, eftir að hafa geymt það um sjö ára skeið. Nú má að vísu segja, að öll gögn hafi sögulegt gildi í strangasta skilningi sem stað- festing á því, að þessi atburð- ur hafi gerzt sem skráður er. Nákvæmara orðalag væri því að segja, að við stefnum að því að geyma þá hluti, sem telja má líklegt að hafi það mikið sögulegt gildi, að fórnandi sé fjármunum og fyrirhöfn i geymslu þeirra. Sem dæmi má nefna, að við geymum allar bókhaldsbækur, sem tíðkaðist að færa hér áður fyrr og allar reikningsniðurstöður ásamt meginþorra allra bréfa og gerninga. Allar fundargerða- bækur geymum við einnig og önnur álíka gögn. Þess má að lokum geta, að margir sér- fræðingar á þessu sviði telja við hæfi, að tekin séu sýnis- horn til geymslu af mörgu af því, sem dæmt er til eyði- leggingar. Þá er ætlunin að koma hér upp vísi að bókasafni. Sá stofn sem til er grípur einkum yfir rit um samvinnumál, bæði er- 14

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.