Samvinnan - 01.03.1978, Síða 15
lend og innlend, en er lítill og
sundurleitur. Ætlunin er að
draga hér meira saman af rit-
um um fjármál og efnahags-
mál og innlendum ritum um
samvinnumál.
• Tímabil Hallgríms
— Hafa áður óþekkt gögn
varðandi sögu samvinnuhreyf-
ingarinnar komið i leitirnar,
síðan safnið tók til starfa?
— Mér er nú ekki kunnugt
um það, og ég dreg það i efa.
Hins vegar hafa ýmis atriði frá
upphafsárunum opnazt mér til
skilnings, en þetta er einstakl-
ingsbundið eftir því hve menn
hafa lagt þessa sögu fyrir sér.
í þessu sambandi má benda á,
að engin allsherjar úttekt á
sögu hreyfingarinnar hefur
farið fram, fyrr en nú að Helgi
Skúli Kjartansson sagnfræð-
ingur vinnur að þessu verk-
efni.
— Hvað telurðu verðmætast
af því, sem safnið hefur að
geyma?
— Ég er nú leikmaður á
þessu sviði og því naumast fær
um að svara því. Sjálfum
finnst mér það myndu vera
gögn frá árunum 1915 til 1923,
það er að segja tímabil Hall-
gríms Kristinssonar, fyrsta for-
stjóra Sambandsins. Þar kem-
ur tvennt til: Það tímabil er
komið i hæfilega fjarlægð til
að leggja dóma á það, og enn-
fremur vegna þess að Hall-
grimur var einstakur sökum
lýðhylli sinnar. Ég minnist
þess til dæmis, að þegar dán-
arfregn hans barst óvænt á
mínu heimili, þar sem enginn
var honum persónulega kunn-
ugur og enginn hafði heyrt
hann eða séð að þvi er ég bezt
veit, — þá sló slíkri þögn og
hugblæ yfir alla viðstadda, að
líkja mátti við að fregnin
væri um einhvern úr fjöl-
skyldunni. Ég var sextán ára
unglingur, þegar þetta bar til,
og mér er það enn minnis-
stætt.
• 900 metra hillulengd
— Er þetta nýja húsnæði hér
i Holtagörðum ætlað til fram-
búðar, eða áttu von á að það
verði fyrr en varði orðið of
lítið?
— Það á nú eftir að skýrast
næstu mánuðina eftir þvi sem
flutningum miðar áfram. Hillu-
lengd hjá okkur er um 900
metrar, og ég býst við að það
nægi ekki svo lengi sem skyldi.
Þó er það mikilvægt atriði, að
ætlunin er að hingað komi að-
eins gögn, sem ætlað er að
geymist lengi.
— Er nokkuð, sem þú vildir
segja að lokum?
— Ég vil aðeins geta þess, að
þetta húsnæði hér i Holtagörð-
um var ekki til reiðu fyrr en
upp úr síðustu áramótum.
Flutningar standa yfir í smá
lotum og standa vafalaust
nokkra mánuði til viðbótar,
því að ég er einn um þetta.
Mikil vinna er þá framundan
við nánari uppröðun og skipu-
lagningu. Ef til vill má því
segja, að Samvinnan sé einu
ári of fljót með þetta viðtal,
enda er það í stíl við blaða-
mannastéttina, sem gjarnan
vill fá fréttirnar áður en at-
burðirnir gerast. +
Gunnar Grímsson: — Ýmis
atriði frá upphafsárunum
hafa opnazt mér til skiln-
ings.
Á sjötíu ára
starfsferli hafa
hlaðist upp
mikil gögn af bók-
haldi og skjölum.
15