Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1978, Page 21

Samvinnan - 01.03.1978, Page 21
Atkvæðagreiðsla 20.—23. maí 1944. 1‘ingsályktun frá 25. febrúar 1944, nm niðurfelling dansk-íslenzka sambandslagasamningsins frá 1918: Albingi ályktar nð iýsa yfir því, að nlSur s£ fallinn dansk-Ulenckl. sambandslagasamninerurinn frá 1918. Alyktun þcssa skal lcggja undir atkvsSl allra alþlnglskjðscnda til samþykktar eSa synjunar, og skal atkvœðagrciSslan vera leynileg*- Náí ályktunin samþykki, tekur hún gildi, er Alþingi hefur samþykkt hana aS nýju að nftokinni þessari atkvœðagreiSslu. • r Ja nei Sljórnarskrá lýðveldisins Ísíands, samþykkt á Alþingi 1944. • f ja nei Þeir, er samþykkja þingsáiyktunina cða stjórnarskrána, setja kross fyrlr framan „já“, en hinir fyrir framan „nei“. Atkvæðaseðillinn við lýðveldistökuna. Atkvæðagreiðslan fór fram 20,—23. maí 1944. Páll ísólfsson tónskáld stjórnar fjöldasöng á Lýðveldis- hátiðinni á Þingvöllum 1944. hljóði og aldrei minnzt á bók- ina. Ég minnist á þetta atriði begar í upphafi vegna þess, að fram komu ýmsar kenningar þjóðréttarlegs eðlis við með- höndlun sjálfstæðismálsins, sem ástæða var til að gagn- rýna, en lagadeild Háskóla ís- lands lagði þar aldrei orð í belg. Af sérstökum ástæðum vil ég minna á þá staðreynd, að ís- land varð sjálfstætt, frjálst og fullvalda ríki 1. desember 1918 samkvæmd Sambandslögunum 30. nóvember sama ár. Dan- mörk fór með ýmis mál fyrir ísland í umboði þess, og þeim fór æ fækkandi eftir því sem við tókum þau sjálfir í okkar hendur og auk þess var kon- ungurinn sameiginlegur sam- kvæmt reglunum í 1.—5. grein Sambandslaganna. Það var al- mannarómur hér, að Danmörk hafi annazt málefni þau, sem hún fór með fyrir ísland, með mestu prýði. Danmörk var her- tekin af Þjóðverjum 9. apríl 1940, en daginn eftir 10. apríl tók ísland að svo stöddu í sín- ar hendur konungsvaldið og önnur mál, sem Danir höfðu annazt fyrir íslenzka ríkið í umboði þess. Þetta var ágrein- ingslaust, enda byggt á nauð- syn. • ÁSKORUN TIL ALÞINGIS ísland var hernumið af Bret- um 10. maí 1940, en á árinu 1941 varð samkomulag um það, að Bandaríki Norður-Ameríku tækju að sér hervernd íslands. Bæði rikin skuldbundu sig til að virða sjálfstæði og fullveldi íslands. Það er upplýst, að ráðherrar Sjálfstæðisflokksins, Ólafur Thors og Jakob Möller, leituðu til Bjarna Benediktssonar, þá borgarstjóra í Reykjavík og áður prófessors við lagadeild Háskóla íslands, og óskuðu þess, að hann semdi rökstudda greinargerð um það, hvort fs- lendingar hefðu öðlazt rétt til að rifta Sambandslögunum, þar sem Danmörk gat ekki eft- ir hernámið 9. apríl 1940 rækt samningsskyldur sínar sam- kvæmt nefndum lögum. Bjarni Benediktsson varð við þessum tilmælum og birti höfuðatriði álitsgerðarinnar í Andvara 1941 (sbr. bls. 30-37). Hin svo- nefnda vanefndakenning var byggð á þessari álitsgerð, og árið 1941 var ætlunin að ganga frá formlegum sambandsslit- um við Danmörku og endan- legri stjórnskipun íslenzka rik- isins. Þetta var byggt á rift- unarrétti samkvæmt vanefnda- kenningunni. Sömu aðgerðir voru fyrir- hugaðar árið 1942 byggðar á sömu forsendum og árið áður. í fyrra skiptið hindruðu Bretar þessar fyrirætlanir og í síðara skiptið forseti Bandarikjanna. Áróður stjórnmálamanna og blaða varð sífellt æstari og má vísa til Morgunblaðsins frá þessum tíma, og er þar að finna hin svæsnustu gífuryrði um þá menn, sem ekki aðhyllt- ust áróðurinn. Mörgum blöskruðu þessar aðfarir og tóku sig saman. Þeir urðu rúmlega sextiu tals- ins og sömdu áskorun til al- þingis, sem afhent var for- sætisráðherra, dagsett 24. ág- úst 1942. Áskorunin hljóðar svo: „Vér undirritaðir alþingis- kjósendur leyfum oss hér með að skora á hið háa alþingi að kveða að svo stöddu ekki á um framtíðarstjórnskipun íslenzka ríkisins, vegna þess ástands, sem sambandsþjóðirnar, ís- lendingar og Danir, hvor um sig, eiga við að búa, en æski- legt er, að þær geti áður gert út um mál sín sem frjálsir að- ilar.“ Meðal þeirra sem skrifuðu undir voru til dæmis Árni Pálsson prófessor, Ásmundur Guðmundsson prófessor, Bjarni Jónsson dómkirkjuprestur, Björn Þórðarson, lögmaður, Einar Ólafur Sveinsson dr. phil., Guðmundur Thoroddsen prófessor, Halldór Kiljan Lax- ness rithöfundur, Helgi Guð- mundsson bankastjóri, Klem- ens Tryggvason hagfræðingur, Sigurður Nordal prófessor og Tómas Guðmundsson skáld, svo aðeins nokkrir séu nefnd- ir. Að öðru leyti vísast til bækl- insins „Ástandið í Sjálfstæðis- málinu 1943“ (bls. 15-21). — Morgunblaðið kallaði þessa menn ýmsum illum nöfnum, þar á meðal undanvillinga. Auk þess vil ég benda á ræðu, sem doktor Björn Þórð- arson, siðar dómsmálaráð- herra, flutti í útvarpið 1. des- ember 1942 og er birt i jóla- hefti Helgafells 1942, en úr- dráttur úr henni er einnig Morgun- blaðið kall- aði þessa menn ýmsum illum nöfn- um, þar á meðal und- anvillinga... 21

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.