Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1978, Side 26

Samvinnan - 01.03.1978, Side 26
Við fórum fram á það skrif- lega við útvarpsráð, að próf- essor Árna Pálssyni, Jóhanni Sæmundssyni yfirlækni, Lúð- vig Guðmundssyni skólastjóra, Pálma Hannessyni rektor og Sigurði Nordal prófessor, yrði gefinn kostur á að flytja er- indi í útvarp fyrri hluta janúar (1944) um lýðveldis- og sam- bandsmálið. Okkur barst svar útvarpsráðs 4. janúar og var það alger synjun — án nokk- urrar greinargerðar. Þegar fyrrgreindri málaleitan okkar hafði verið synjað í útvarps- ráði 30. desember, bar Pálmi Hannesson, sem sæti átti í út- varpsráði, fram þá tillögu, að Sigurði Nordal prófessor ein- um yrði þá gefinn kostur á að flytja tvö erindi í útvarpið um sama mál. Tillögu þessari var vísað frá með rökstuddri dag- skrá þess efnis, að eigi væri í ráði að ræða þetta mál í út- varpinu fyrst um sinn. Tveim dögum síðar, á nýárskvöld, hafði Eggert Stefánsson orðið. Við fengum margskonar niðr- andi nafngiftir, svo sem óláns- menn, undanvillingar m.m. Öll þessi brigsl bitnuðu á okkur undantekningarlaust þar á meðal prófessor Sigurði Nor- dal, sem um sína daga var frægastur íslenzkra vísinda- manna i norrænum fræðum og orðinn roskinn og lífsreyndur maður. Síðar báðu þeir hann að gerast sendiherra íslands i Danmörku. Það ættu sem flestir að lesa bréf okkar til stjórnarskrárnefndar, sjá Varð- berg 1. tbl. 8. janúar 1944. • ÁRANGUR BARÁTTUNNAR í lok ársins 1943 og byrjun árs 1944 hafði orðið sú breyt- ing á meðferð skilnaðarmáls- ins hjá stjórninni að van- efndakenningin var horfin af sjónarsviðinu, en í staðinn var komin kenningin um ómögu- leika og breytt viðhorf. Kom þetta fram í ræðu dómsmála- ráðherra Einars Arnórssonar 1. desember 1943, sbr. Vísi 8. des- ember s. á. og sama kom fram á fundum í Háskóla íslands 19. janúar og 4. febrúar 1944, en þar lögðu ræðumenn hrað- skilnaðarmanna áherslu á að sambandslögin væru þegar fallin úr gildi, en hvenær það hefði gerst fengu fundarmenn ekki að vita — einn ræðu- manna hélt því jafnvel fram að sambandslögin hefðu alltaf verið nauðungarsamningur. Ég skrifaði gegn þessu í Varð- berg 1.—4. tbl. 8. janúar 1944, bls. 10—13 og í ísland 14. fe- brúar og 13. mars s. á. Ég tel að okkur hafi tekizt, þegar hér var komið, að kveða niður hina ógeðfelldu og röngu vanefndakenningu nið- ur og var það mikill ávinning- ur fyrir alla meðferð málsins. Ég hafði ávallt haldið því fram, að ályktanir Alþingis, sem áður hefur verið minnst á, þar sem m. a. því er lýst yfir að eigi komi til endurnýjunar sambandslaganna á nokkurn hátt, þá jafngilti það bæði kröfu, sem endurskoðun, skv. lögunum og jafnframt því að ekki yrði samið um áframhald og var þá þeirri formhlið lag- anna líka fullnægt og hægt að fella samninginn niður eftir reglum hans sjálfs og þá ein- ungis eftir að semja um ýmis- leg uppgjörsatriði. Með tilliti til þess tíma sem liðinn var frá því Danir fengu ályktanirnar í hendur, taldi ég íslendinga eiga rétt til niður- fellingar sambandslaganna eft- ir 20. maí 1944. Þáverandi dómsmálaráðherra neitaði því í áðurnefndri ræðu sinni að nokkur krafa um end- urskoðun sambandslaganna hefði verið gerð af okkur. Ég fæ ekki séð að þessi staðhæfing hafi verið rétt, því hún er í ósamræmi við orð ályktananna og þær yrðu raunverulega marklausar eftir þessari skýr- ingu. Með tilvísun til þess sem ég hef sagt, staðhæfi ég að okkur lögskilnaðarmönnum hafi tek- ist í fyrsta lagi að kveða nið- ur vanefnda- (samningsrofs) kenninguna og forða þannig þjóðinni frá þeirri hneisu að fella niður sambandslögin af þeirri ástæðu að Danir hefðu rofið þau. f öðru lagi að fá þvi fram- gengt að lögin væru ekki felld niður fyrr en eftir 20. maí 1944. Þetta tvennt gerði það að verkum, að við gátum greitt atkvæði með því að fella sam- bandslögin niður eins og gert var að Lögbergi 17. júní 1944 og lýðveldi stofnað á íslandi. Þannig tókst ekki að kæfa hljóminn. Hann fann svo mikla samúð meðal margra hugsandi manna, að það varð að taka tillit til hans, enda kom það i ljós við atkvæðagreiðsluna 20.—23. maí 1944, en þá greiddu 97,35% atkvæði með niður- fellingu sambandslaganna og 95,04% með samþykkt lýðveld- isstjórnarskrár. 4 Sambandið býður íslenzku æskufólki að taka þátt í ritgerðasamkeppni um efnið: Samvinnuhreyfingin á íslandi — hlutverk hennar og starfsemi. MILUÓN í VERÐLAUN Samband íslenzkra samvinnufélaga efnir til rit- gerðasamkeppni meðal íslenzks æskufólks í tilefni af 75 ára afmæli sínu I fyrra. Ritgerðarefnið er: Samvinnuhreyfingin á íslandi — hlutverk hennar og starfsemi. Öllu æskufólki á aldrinum 14—20 ára er boðin þátttaka, einstaklingum eða hópum. Milljón í verðlaun Tólf beztu ritgerðirnar hljóta verðlaun, sex í ald- ursflokknum 14—17 ára og sex í aldursflokknum 18—20 ára. Verðlaunin nema alls einni milljón króna, 500 þúsund krónur í hvorum flokki. Fyrstu verðlaun eru 200 þúsund krónur, önnur verðlaun 100 þúsund krónur og fjórar ritgerðir hljóta þriðju verðlaun, 50 þúsund krónur hver. Dómnefnd skip- uð þremur mönnum veitir verðlaunin og getur ákveðið að fækka þeim ef ástæða þykir til. á ^Samvinnan Skilafrestur til 1. maí Þeir sem óska eftir upplýsingum varðandi rit- gerðarefnið geta snúið sér til Fræðsludeildar Sam- bandsins, Suðurlandsbraut 32, sími 81255. Lengd ritgerðanna skal vera 1000—3000 orð eða 4—12 vélritaðar síður. Helztu verðlaunaritgerðirnar munu birtast í tímariti samvinnumanna, Samvinnunni. Skilafrestur er til 1. maí næstkomandi. Ritgerðirnar skal merkja með dulnefni, en rétt nafn fylgja í lok- uðu umslagi. Utanáskriftin er: Samvinnan, Suður- landsbraut 32, 105 Reykjavík. 26

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.