Neisti - 26.11.1978, Síða 3

Neisti - 26.11.1978, Síða 3
Opið bréf til Neista og Fylkingarinnar I tilefni af umrœðufundi EIK-ml Það er nú ekki á hverjum degi sem ég sting niður penna en nú get ég satt að segja ekki orða bundist. Hvað ætlast Fylkingin eiginlega fyrir? Hvað er hún að hugsa? Tilefnið til þessara spurninga er auð- vitað auðsætt og öllum ljóst. Það hefur' varla farið framhjá nokkrum manni að ég fór á fund hjá Einingarsamtökum kommúnista Marxlenínmaóistunum um daginn. Þeir höfðu boðið einhverri Baráttunefnd gegn heimsvaldastefnu (sem að mér vitandi hefur ekki haft nein afgerandi áhrif í baráttunni gegn heimsvaldastefnu) að koma á fundinn hjá sér og tala. Ég held nú satt að segja að það hafi þeir bara gert til þess að sýna okkur hinum hvernig skoðanir maður á ekki að hafa. Þessir „baráttu- menn“ töluðu svo eitthvað þarna og ég skildi satt að segja ekki orð af því sem þeir sögðu. Það ætti varla að þurfa að benda á að það var auðvitað vegna þess að þeir skildu það ekki sjálfir og það var ekkert vit í því sem þeir voru að segja. Þegar þrasinu í þeim lauk þá lifnaði nú heldur betur yfir fundinum. Þá stigu félagar úr Einingarsamtökum kommúnista Marxlenínmaóistunum, hver af öðrum upp í ræðustól og skýrðu þetta allt saman út fyrir okkur hinum. Það voru þarna einhverjir Trottar sem reyndu að halda því fram að Rúss- land væri ekki kapítalískt ríki en hann félagi Albert var nú ekki lengi að kveða þá í kútinn. Rjóður og hraustlegur þrammaði hann upp að ræðustólnum, greip um hann með báðum höndum af einstakri festu og orð hans eru mér fersk í minni. Þau eru sá vísdómur sem þið Fylkingarmenn ættuð að leggja til grundvallar ef þið hafið einhverntíma mannskap í ykkur til þess að mynda ykkur endanlega skoðun á því hvort Rússland er gott eða vont ríki. Hann Albert sagði: „Vitiði hvernig kerfið er þarna? Það eru stór plaköt á veggjun- um og á þeim er kannski mynd af hraðlest á fullri ferð (hér lét ræðumað- urinn hendina þjóta á fullri ferð yfir ræðustólinn til þess að sýna okkur enn frekar þennan sálarlausa ógnvekjandi hraða sem brýtur niður allt það góða og fagra sem á vegi hans verður, og hann hélt áfram lýsingu sinni á hrað- lestinni) og hún er með rúblu framaná. (Hér hækkaði félagi Albert rödd sína mjög mikið til þess að okkur mætti skiljast enn betur mikilvægi þess sann- leiks sem hann var að flytja okkur). Svona er kerfið þarna, - KAPÍTAL- ISMI“’ Við klöppuðum honum öll lof í lófa og ég sat rétt hjá þessum útsendurum ykkar og ég sá hvernig vonleysið helltist yfir þá. Ég skildi auðvitað strax að það var af því að þeir höfðu verið reknir á stampinn í pólitískum fræð- um. Þar með er ég kominn að kjarna málsins í þessu bréfi. Hvenær ætlar Fylkingin að hrista af sérslenið? Hven- ær ætlar hún eiginlega að móta endan- legar skoðanir og marka stefnu í því hvaða þjóðir eru góðar,þjóðir og hvaða þjóðir eru vondar þjóðir? Þetta er nokkuð sem Einingarsamtök komm- únista Marxlenínmaóistarnir eru búnir að gera fyrir löngu síðan. P.S. Ekki má ég gleyma að minnast á hugljúft menningarinnskot sem við fengum að njóta á þessum ágætafundi. Á miðjum fundinum, var tilkynntur flutningur menningarefnis og þá reis upp karlmannlegur félagi úr Einingar- samtökum kommúnista Marxlenín- maóistunum, mundaði gítarinn sinn og brosti alveg dæmalaust fallega til okkar. öll kvæðin sem hann söng voru ort í sönnum ungmennafélagsanda en bernskuljóð Jóhannesar úr Kötlum báru þó af. Af þeim gætuð þið Fylking- armenn margt lært. Ég ætla að ljúka þessu bréfi á tilvitnun í söng þessa unga snillings og þegar ég skrifa þessi orð þá finnst mér ég heyra hljómþýða rödd hans berast til mín yfir hálfa borgina, gegnum umferðadyn og veðragný: ísland er ég, er ég brosi best í blíðu skapi með góðan hest. Byltingarsinni úr vesturbænum. 1. des.: Háskóli í auðvaldsþjóðfélagi 1. desember 1978 velta námsmenn við Háskóla fslands fyrir sér spurning- um eins og: Hver er tilgangurinn með námi mínu? Hvaða hlutverki gegni ég í auðvaldsþjóðfélaginu eftir nám? Þetta er mjög verðugt viðfangsefni og kannski kominn tími til að varpa ljósi á stöðu námsmanna innan þjóð- félagsins. Efnisvalið hefur verið gagn- rýnt fyrir að standa ekki í nægilega nánu sambandi við verkalýðsmálin á íslandi eða þau mál er hæst ber í „villta vinstrinu" um þessar mundir. Það fer vissulega mest eftir þeirri meðfcrð sem efnið fær. hvort það tengist verkalýðs- málum eða ekki. Við höfum ástæðu til að ætla að svo verði. Á undanförnum árum hefur fagrýni verið nokkuð til umræðu í háskólum erlendis og hefur einnig hér heyrst dauft bergmál af þeirri umræðu. Þessi dagskrá mun vera e.k. samantekt og nánari útfærsia á hugmyndum manna í þessum efnum. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem markviss og yfirgripsmikil fagkritísk umræða á sér stað meðal námsmanna hér. Reyndar hafa komið fram innlegg við og við, og ber ekki að lítilsvirða þau. En. . . Til marks um áhugaleysi manna má nefna að enginn íslenskur stjórnmálaflokkur hefur markað sér víðtæka og vel grundaða stefnu í þessum málum og kannski ekki við því að kúast hcldur. Menn binda vonir við að dagskrá vinstrimanna á I. des. marki nýjan áfanga fyrir samfellt fagrýnið starf námsmanna í HÍ. Það cr mikilvægt fyrir námsmenn að malla saman heilsteypta stefnu í málum sínum og er þetta liður í því. Það er mikilvægt að við beinum sjónum okkar að þjóð- félaginu, reynum að byggja upp samstöðu námsmanna og verkamanna með því að nýta nám okkar í þágu þeirra. Gagnrýni í námi leggur grund- völlinn að gagnrýnu starfi þegar út í þjóðfélagið er komið. Við eigum ekki að rúlla þarna út eins og blóðmörs- keppir með sérþekkingu og siðlausa gróðavitund. Við eigum ekki að vera tannhjól í „regluveldis-" maskínunni, við eigum ekki að taka þátt í að viöhalda því kerfi sem kúgar íslenskan verkalýð. Við erum fólk með hugsun, manndóm og kjark. Okkar hagsmunir fara saman með hagsmunúm verka- lýðs. Við berjumst fyrir sósíalisma! I.ifi námsmannabaráttan! Gagnrýnið nám í þágu verkalýðs! I.ifi sósíalisminn! HÍ-sella. Berjumst fyrir þjóðar- atkvœðagreiðslu um herstöðvarnar og NATÓ - og sigrum Nýlega fór fram þjóðaratkvæða- greiðsla í Austurríki um byggingu kjarnorkuvers þar í landi. Þrátt fyrir að velflestir stjórnmálamenn hafi verið hlynntir notkun kjarnorku, og þess- vegna byggingu þessa kjarnorkuvers, tókst andstæðingum þess að hafa nauman sigur. Svipuð saga hefir áður gerst - þegar Norðmenn höfnuðu inn- göngu í EBE í þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir sex árum. I Austurríki voru velflestir stjórn- málamenn fylgjandi kjarnorkuverinu, og sér í lagi Kreisky, kanslari og leiðtogi sósíaldemókrata. Sama var uppi á teningnum í Noregi. Sama er upp á teningnum á íslandi hvað varðar herinn og NATO - og þess vegna er þess langt að bíða að þingmenn komi hernum úr landi, ef það getur orðið nokkurn tímann. Málefni á við kjarnorkuver, EBE og hermálið falla að litlu leyti að hinni hefðbundnu flokkaskipan, og t.d. er nokkur ágreiningur um hermálið inn- an Alþýðuílokksins og Framsóknar- flokksins. Innan Alþýðubandalagsins er einnig verulegur ágreiningur um mikilvægi málsins og þær leiðir sem eru færar því til framdráttar. Forysta Alþýðubandalagsins álítur herstöðva- málið annarsflokks mál, og tekur nú þátt í ríkisstjórn, sem ætlar sér ekki að stugga við hernum. Fjölmargir al- mennir félagar eru hinsvegar ósáttir við þessa afstöðu. Forystumenn Alb. sjá ennfremur enga leið aðra til að reka herinn en að bíða þess að herstöðvaandstæðingar verði í meirihluta á Alþingi, og vona ennfremur að önnur mál verði ekki til að fresta aðgerðum - eins og reyndar hefur gerst í tvígang, er vinstri stjórnir urðu að fara frá völdum án þess að reyndi á loforð þeirra um brottför hersins. Aðrir Alþýðubandalagsmenn hafa hinsvegar tekið undir kröfu Fylk- ingarinnar um þjóðaratkvæðagreiðslu um herinn og NATO, og fyrir tilstyrk þeirra gerðu Samtök herstöðvaand- stæðinga þessa kröfu að sinni á síðasta landsfundi. Á þeim árum, þegar verkalýðshreyf- ingin beitti sérgegn hernum og NATO hér áður, var krafan um þjóðarat- kvæðagreiðslu aðalkrafan. Megin- krafa lýðsins á Austurvelli 1949 var krafan um þjóðaratkvæði. Um leið og herstöðvaandstæðingar taka þessa kröfu upp á ný er ljóst að þeir geta lítils stuðnings vænst við hana frá verka- lýðsflokkunum, svo rammflæktir sem þeir eru í þingræðisnetinu. Þessvegna ér nauðsynlegt, að her- stöðvaandstæðingar starfi af fullum krafti og efli samtök sín stórlega, Her- stöðvaandstæðingar mega ekki láta á sig fá þótt fyrri bandamenn úr forystu Alþýðubandalagsins standi nú að fjandsamlegri ríkisstjórn, en það ætti að undirstrika nauðsyn sjálfstæðra samtaka herstöðvaandstæðinga. Þjóðaratkvæðagreiðsla tryggir auð- vitað ekki sigur í herstöðvamálinu, það gerir aðeins virk barátta samtakanna. Sama árið og Norðmenn höfnuðu EBE jánkuðu Danir því, og það er auðvitað ekki útilokað að herstöðvaandstæð- ingar bíði lægri hlut í þjóðaratkvæða- greiðslu. Tvennt mælir þó gegn því: Annars vegar, að til þess að til þjóðaratkvæðagreiðslu komi, verður andstaðan gegn hernum og NATO að eflast enn frekar, og það er því aðeins hægt, að það virðist mögulegt að gera eitthvað í málinu. Hins vegar er hin yfirlýsta stefna ASÍ, sem sýnir að her- stöðvaandstæðingar eiga þar hauk í horni, þótt lítið hafi borið á því. Það er svo augljóst, að meðan treyst er á þingliðið, mun herinn sitja sem fastast - er það ekki ósigur fyrir herstöðvaandstæðinga? Kjaraskerðingarlögin Þegar Neisti var að fara í prentun, birtist í fjölmiðlum tillögur ríkisstjórn- arinnar varðandi vísitölubætur launa 1. des. Samkvæmt tillögunum eiga laun að hækka um 6.1%, en 8% af vísitölunni á að „bæta“ með niður- greiðslum (3%), skattalækkun (2%) og félagslegum umbótum (3%). Það er erfitt að gera sér grein fyrir því, hve mikil kjaraskerðingin verður. Ef mið- að er við kostnaðaráætlun Abl. (sjá grein á baks.) má þó gera ráð fyrir að kjaraskerðingin verði a.m.k.: I. með niðurgreiðslum 1% 2. með skattalækkun 1% 3. með félagslegum umbótum 2% Samtals 4% Ef við reiknum með því, að bæði skattalækkun og félagslegar umbætur eru atriði, sem verkalýðsflokkarnir hafa barist fyrir og þeir geta því ekki selt, þá er kjaraskerðingin 8% mínus 2% sem niðurgreiðslurnar bæta kjör verkafólks, ef þær verða ekki greiddar af launafólki með niðurskurði áfélags- legum framkvæmdum. Kjaraskerðing- in er því minnst 6%.

x

Neisti

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neisti
https://timarit.is/publication/343

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.