Neisti - 26.11.1978, Page 7

Neisti - 26.11.1978, Page 7
Neisti 12. tbl. 1978 bls. 7 Ó, þjóðir hhmar löngu þjáningar . . . Svo ávarpaði Pablo Neruda ríki Mið-Ameríki í ljóðabálki sínum Canto General. Seint yrðu raktar þær þján- ingar sem hrjáð hafa íbúa bananaveld- anna, jafnt undir oki innlendra- fóla sem erlendra og þá sér í lagi umboðsmanna bandarískrar heims- valdastefnu. En barðir þrælar hafa löngum haft tilhneigingu til að slá til baka, fyrr eða seinna. Sú varð raunin á í Nicaragua í ágúst og september s.l. Þau átök voru reyndar hápunkturinn á þróun þeirri sem átt hefur sér stað í Nicaragua síðustu árin. Byssurnar eru nú hljóðnaðar í bili, en víða er hugað að vopnum og vistum fyrir næstu átök. Somoza í sárum Veldi Somozaættarinnar hrundi ekki endanlega í átökunum í haust. En drekinn er illa særður. Það sem enn tryggir Somoza völdin, eru tök hans á Þjóðvarðliðinu (Guardia Nacional), auk þess sem jafnt innlend burgeisa- stétt og bandarísk heimsvaldastefna eru hikandi við að stuðla að því að Somoza falli, án þess að hafa tryggt fyrir fram að sú breyting fari „skipu- lega“ fram, þ.e. að þjóðfélagsgerðin breytist ekki að marki. Auk þess sem slíkt myndi valda ,,upplausn“ í landinu sjálfu, yrðu afleiðingar þess ófyrirsjá- ánlegar í nágrannalöndunum í Mið- Ameríku. Þeir pólitísku straumar innan bur- geisastéttarinnar, sem andvígir eru Somoza, voru að nokkru innikróaðir meðan á átökunum stóð; annars vegar var Somoza, ákveðinn í að verja veldi sitt hvað sem það kostaði og hins vegar andstöðuhreyfingin með FSLN (Fylking Sandinista til þjóðlegrarfrels.- unar) í broddi fylkingar, en róttækni fjöldans fór mjög vaxandi eftir því sem á átökin leið. Þessir pólitísku straumar reyna nú að hagnýta sér það „hlé“ sem nú ríkir, til að treysta stöðu sína. Þeir vilja losna við Somoza án þjóðfélags- byltingar og án þess að leysa upp Þjóð- varðliðið til þess að geta við samninga- borð hindrað sigur hinnar róttæku andstöðuhreyfingar. Þjóðvarðliðið mætti síðar nota til að brjóta Sandin- ista á bak aftur þegar búið væri að af- greiða Somoza. Þessir hlutar burgeisastéttarinnar halda á lofti því sem þeir nefna „þriðju leiðina", á milli veldis Somoza og „öfgaleiðarinnar sem fáir vilja", til þess að setja á stofn „lýðræðislega ríkis- stjórn er hrindi í framkvæmd félagsleg- um, efnahagslegum og pólitískum endurbótum, og bætt geti líf fólksins í Nicaragua". Hin borgaralega stjórn- arandstöðufylking FAO (Frente Amplio de Oposición) hefur reynt að komast að einhverjum samningum við Somoza og staðið í viðræðum jafnt við fulltrúa hans, sem og öfl til vinstri. í því ætlunarverkefni sínu að gera „þriðju leiðina" trúverðuga, nýtur FAO stuðn- ings borgaralegra ríkisstjórna í Róm- önsku Ameríku (Costa Rica, Venezú- ela, Kólumbía) og ýmissa bandarískra áhrifamanna. I áætlun FAO er ekki gert ráð fyrir að Somoza verði sviptur eignum sínum, en stefnt skuli að því að Þjóðvarðliðið verði her ,,í þjónustu lýðræðisins og í þágu þjóðarinnar“. Sandinistar Þrátt fyrir að FSLN hafi orðið að hörfa undan her Somoza, er langt frá því að hreyfingin hafi orðið fyrir alls- herjaráfalli. Auk þess styrktu skæru- liðar hennar stöðu sína meðal alþýðu manna eftir því sem á átökin leið. FSLN er engan veginn samstæð heild. Þar hafa um nokkurt skeið tekist á þrír armar og deila þeir um hvernig skuli haga baráttunni gegn Somoza. „Upp- reisnarsinnar" (Tendencia Insurrecci- onalista) telja að sýnt hafi verið fram á að Þjóðvarðliðið sé tiltölulega veikt og að fólk hafi komið auga á að hægt sé ,,að sigra heri Somoza hernaðarlega". Þá segjast þeir berjast fyrir bráða- birgðabyltingarstjórn er hefja skuli störf sín á að svipta Somoza eignum sínum. Aðrir innan FSLN telja þessa af- stöðu byggjast á of mikilli bjartsýni, er ofmeti styrk hreyfingarinnar, en van- meti styrk andstæðingsins. „öreiga- línan“ (Tendencia Proletaria) innan FSLN telur ekki rétt að setja kröfuna um bráðabirgðabyltingarstjórn á odd- inn heldur að „safna fólki kringum það markmið að steypa Somoza, til þess að koma á fót lýðræði með fullum póli- tískum réttindum". Ný átök? Ástandið er enn eldfimt í Nicaragua. Somoza dregur sig ekki í hlé nema eignir hans séu tryggðar og Þjóðvarð- liðið fái að starfa óbreytt, hin borgara- lega stjórnarandstaða hefur slegið af kröfum sínum gagnvart Somoza, eftir að hafa orðið vitni að vaxandi rót- tækniþróun, auknu fylgi Sandinista og hinni ákveðnu afstöðu Somoza. Nú hef- ur hún að mestu gengið inn á tillögur Bandar. um „takmarkað lýðræði“, þar hefur fylgi Sandinista og hinni ákveðnu afstöðu Somoza. Nú hefur hún að mestu gengið inn á tillögur Banda- ríkjanna um „takmarkað lýðræði“, þar sem gert er ráð fyrir bráðabirgðar- stjórn er efni til kosninga, án þess að hreyfa við einu né neinu. f slíkum kosn- ingum yrði FSLN væntanlega úti- lokuð, að kröfu Somoza og félaga. Þessi áætlun er í algjörri andstöðu við vilja Sandinista og hinnar róttæku andstöðuhreyfingar og kemur ekki til móts við neina af þeim grundvallar- kröfum er barist varfyrirs.l. haust. Þar af leiðir að þar sem andstöðuhreyf- ingin og Sandinistar halda styrk sínum en veldi Somoza og Þjóðvarðliðið er í úlfakreppu, þá bendir flest til átaka, sem yrðu líklegast bæði útbreiddari og harðari en þau sem áttu sér stað á síð- astliðnu hausti. RUFUS Þessi mynd var tekin við brottförina frá Managua í ágúst eftir að FSLN hafði fengið politiska fanga látna lausa í skiptum. fyrir þingmenn sem teknir voru sem gislar. Neistar utanúr heimi Rudolf Bahro 16. nóvember sl. var haldin ráðstefna í V-Berlín til stuðnings a-þýska andófs- manninum og kommúnistanum Rudolf Bahro. Margt þekktra manna úr evrópskri verkalýðshreyfingu og úr hinni byltingarsinnuðu vinstri hreyfingu tók þátt í taðstefnunni. Bahro hefurnú veriðdæmduríátta ára fangelsi fyrir „njósnir" og'hefur verið haldið algerlega einangruðum í fangelsinu. En í bréfi sem honum tókst að koma til „Der Spiegel" kemur fram að hann lætur hvergi deigann síga. Þar segir hann m.a. að hann hafi ákveðið að fylgja veginum sem hann hafi valið. Einnig kemur fram að hann er kommúnisti og álítur Sovétríkin og A-Þýskaland ekki kapitalísk. (Internationalen) Andstöðuvottur í Búlgaríu f mars síðastliðnum sendu fjórtán búlgarskir andófsmenn frá sér yfirlýsingu þar sem m.a. var krafist að öllum mannréttindabrotum yrði hætt. Þá var og krafist tjáningarfrelsis og að Búlgarar fengju ferðafrelsi. Einnig var krafist endurbóta í tryggingarmálum og að kauphækkanir vægju upp á móti verðhækkunum. Þá var og farið fram á frelsi til að stofna verkalýðsfélög án afskipta ríkisins. í viðtali við Kiril Yanachkov, búlgarskan andófsmann búsettan í París, kemurfram að hann trúir þvt, að óvíða i heiminum séu eins margir pólitískir fangar, miðað við mannfjölda, og í Búlgaríu. (Intercont. Press) Bandarísk lúxushótel í Kína Ákveðið hefur verið að bandaríski hótelhringurinn Intercontinental sem er í eigu Pan Am-flugfélagsins byggi 5-6 stór lúxushótel í Kína. Þau fyrstu ciga að verða tilbúin árið 1981. Samkvæmt samningi milli kínversku stjórnarinnar og Intercontinental á ágóðinn að skiptast á milli beggja aðila. í framhaldi af þessu væri ekki svo fráleitt að ætla að Coca Cola verksmiðjurnar setji næst upp útibú í Kína. (Internationalen) Austurríki: Sigur kjarnorkuandstæðinga Eins og kunnugt er unnu austurrískir kjarnorkuandstæðingar sigur er tillaga um byggingu kjarnorkustöðva var felld í þjóðaratkvæðagreiðslu á dögunum. í viðtali í lnternationalen, málgagni sænskra trotskista, við Felix Stelzer, félaga í GRM (deild F.A. í Austurríki) kemur fram, að sigurinn vannst m.a. vegna þess að kjarnorkuandstæðingar gátu bent á að mörg kjarnorkuver gátu ekki hafið störf vegna bilana og þannig sýnt fram á að bygging þeirra borgi sig ekki. Þá kom og fram í viðtalinu, að iðjuhöldar lögðu frarn 11 milljónir sænskra króna til áróðurs. Einnig kemur fram að austurrískir trotskistar voru þeir fyrstu til að krefjast þjóðaratkvæðágreiðslunnar. Greiðið áskriftargjaldið Neisti er alltaf á hausnum. Einu tekjur okkar eru áskriftargjöld og lausasala. Það sparar okkur mikla vinnu, ef áskrifcndur ganga við á skrifstofu Fylkingarinnar á skrifstofutíma hennar og greiða áskriftargjöld sin. Áskriftin er kr. 1700 fyrir seinni hluta árs '78 og var sú sama fyrir fyrri hluta árs. Gírónúmer Neista er 17513-7. Námsstarf Leshringir um grundvallaratriði byltingarsinnaðs sósíalisma munu taka til starfa fljótlega uppúr áramótum. Þeir sem vilja vera með eru beðnirað skrá sig sem fyrst á skrifstofu Fylkingarinnar, í síma 17513, milli kl. 5 og 7 á virkum dögum. Kynnist stefnu okkar og starfi. Fylkingin. Skrifstofa Fylkingarinnar er opinfrá 5-7 Skrifstofa Fylkingarinnar. að Laugavegi 53 A, er opin alla virka daga frá kl. 5-7, laugardaga 2- 4. Á skrifstofunni er hægt að greiða áskriftargjöld Neista, skrá sig í leshringi, fá keypt útgáfuefni ýmislegt, glugga í blöð og timarit sem ekki eru annarsstaðar á boöstólum. Fylkingin fertug Grein Ragnars Stefánssonar um Fylk- inguna fertuga, sem birtast átti í þessu tbl. verður að biða næsta blaðs vegna plássleysis. Ritn.

x

Neisti

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Neisti
https://timarit.is/publication/343

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.