Neisti - 01.01.1982, Síða 2
Neisti bls.2.
Mótmælum * leiðari
ofbeldisaðgerðum
skrifræðisins í Varsjá
13. desember lýsti pólska skrifræöiö ásamt starfs-
bræðrum í Kreml yfir striði gegn verkalýðsstétt Póllands.
Með valdatöku hersins hefur skrifræðið skipað sár í raðir
með herforingjastjórnum sem launafólk hatar hvað mest.
Talsmenn kapítalisma og borgaralegara hugmynda reyna
nií að beita neyðarástandi í Póllandi fyrir vagna sína. Þeir
staðhæfa að valdataka hersins í Póllandi færi almenningi á
Vesturlöndum heim sanninn um, að byltingin éti börnin sín
og sósíalismi leiði alltaf til hernaðareinræðis og kúgunar.
Eins og aðrir glæpir sem skrifræðið hefur framið i nafni
sósíalisma, þá verða mvrkraverk í Póllandi aðeins til þess
að kasta rýrð á sósialískar hugmyndir og sósialíska baráttu.
Valdataka hersins í Póilandi er vatn á áróðursmyllu þeirra
afla á vesturlöndum sem vilja auka hernaðarútgjöld, og
sem vilja kæfa frelsishreyfingar i Mið-Ameriku.
í raun lýsti Jaruzelski yfir skipbroti skrifræðisins þegar
hann lýsti yfir herlögum i Póllandi. í samræmi við starfs-
aðferðir skrifræ ðisins, þar sem einokun og valdahroki
skipa háan sess hefur Jaruzelski sölsað undir sig öll helstu
embætti landsins. Síðan Jóseu Stalín drapst hefur engum
einum forystuskriffinna tekist að sölsa undir sig jafn mikil
vold og Jaruzeíski fer með nú. Hann er hinn þríeini guð
skrifræðisins. Formaður ffokksins, forsætisráðherra og
æðsti maður alls herafla landsins. Skrifræðið, skipað for-
ystumönnum flokksins, herforingjum og opinberum hand-
löngurum þeirra, hefur steypt Póllandi i pólitíska félags-
lega og efnahagslega kreppu. Eina lausnin út úr þessari
kreppu, sem það hefur síðan komið auga á er að afnema öll
réttindi verkafólks, brjóta Samstöðu á bak aftur og opinbera
um leið vanmátt sinn.
En her og lögregla leysa engan vanda. Eina aflið sem
leyst getur vanda Póllands í dag er Samstaða - samtök
verkalýðsstéttarinnar sem hafa 10 milljón verkamenn innan
sinna vébanda. Skrifræðið vænir Samstöðu um að hafa
komið leyðarástandi á i landinu með verkföllum og upp-
vöðslusemi. Samstaða vísar slíkum staðhæfingum til
föðurhúsanna og bendir á, að ef framleiðsluafköst hafa
minnkað þá sé það vegna stjórnlevsis skrifræðisint, :em
skipar verkafólki m.a. að standa timunum saman í bið-
röðum framan við hálftómar verslanir.
Borgaralegir fréttsskýrendur útbásúna þá goðsögn, að
kreppa Póllands sé kreppa áætlunarbúskapar. Þessir sömu
fréttaskýrendur horfa alveg framhjá þeirri stiaðreynd, að
allar kröfur Samstöðu miða í þá átt, að koma á sósíaliskum
áætlunarbúskap undir beinni stjórn verkafólks. Hvergi í
boðskap Samstöðu er lagt til að fyrirtæki í eigur ríkisins
verði seld i hendur einkaaðilum. Samstaða hefur borið
fram sósíalískar lausnir á kreppu Póllands - lausnir sem eru
eitur í beinum skrifræðis Austur-Evrópu og kapitalista á
Vesturlöndum. Samstaða berst fyrir verkalýðslýðræði og
verkalýðsvöldum þar sem verkamenn segja forstjórum
fyrirtækjanna fyrir verkum, en segja þeim upp er þeir eru
ekki starfi sínu vaxnir. Kapítalistum Vesturlanda er mein-
illa við baráttu Samstöðu fyrir styttingu vinnudagsins í
Póllandi, þvi þeir eiga fullt í fangi með að halda aftur af
verkafólki heima fyrir sem berst fyrir 35 stunda vinnuviku.
Þeir eru einnig tilbúnir til að styðja skriffinna við að svín-
beygja verkafólk Póllands í þeirri von um að fá hæfilega
vexti af þeim lánum sem Pólland hefur fengið á Vesturlönd-
um.
Fylkingin mótmælir ofbeldisaðgerðum ríkisstjórnarinnar í
Varsjá gegn Samstöðu og hvetur um leið verkafólk á
Vesturlöndum til að taka höndum saman og mótmæla harð-
lega frelsisskerðingu stéttarbræ ðra í Póllandi.
YFIRLÝSING FULLTRÚARÁÐS FJÚRÐA ALÞJÚÐA-
SAM BANDSINS:
Hindrum árásir Bandarikjanna
á frelsishreyfingar alþýðunnar í
Mið-Ameríku
Bandaríska ráðastéttin i sam-
vinnu við bandamenn sína i
Mið- og Suðurameríku undirbýr
um þessar mundir auknar hem-
aðaraðgerðir gegn vaxandi
byltingarbaráttu verkamanna og
bænda i Miðameriku og eyjun-
um á Karabiska hafinu.
Talsmenn ameriska heimsveld-
isins á borð við Alexander
Haig utanrikisráðherra og Casp-
ar Weinberger varnarmála-
ráðherra, hafa sagt að þær að-
gerðir sem eru í alvarlegri at-
hugun séú meðal annarra:
★ Kallaðar verði til hersveitir
frá Argentinu og/eða öðrum al-
ræðisrikum Suðurameríku oe
þær sendar inn i E1 Salvador.
Samtímis þessu verði bandarísk-
um «ráðgjöfum» fjölgað mjög
verulega og stjóminni í E1
Salvador sendir storir farmar
stíðsvéla og -tækja.
★ Reynt verði að einangra Nica-
ragua þannig að allar samgöngur
á sjó og landi verði útilokaðar
til og frá landinu. Um leið verði
árásarleiðangrar hersins í Hon-
duras yfir landamæri Nicaragua
styrktir. Einnig verði stuðnings-
menn Somoza sem aðsetur hafa í
Honduras studdir til vigaferla.
★ Flugher Bandarikjanna verði
notaður til að ögra Kúbustjórn
alvarlega. Skipaferðir frá Kúbu
veíði hindraðar til þess að stöðva
meinta vopnaflutninga til E1
Salvador.
Yfirmenn herja þeirra Suður-
ameríkurikja sem «eiga sömu
hagsmuna að gæta í varnar-
málum» og Bandaríkin, hittust i
Washington fyrstu dagana i nóv-
ember til að ræða þessa valkosti.
Ríkisstjórn Nicaragua var að sjálf-
sögðu útilokuð frá þessum fundi.
Heræfing Bandarikjamanna á
Karabiska hafinu sem hófst 30.
oktober og tók heilan mánuð
gefur visbendingar. I þessari
heræfingu tóku þátt tugir her-
skipa og hundruð flugvéla. Mið-
punktur æfingarinnar var eyjan
Vieques skammt frá Puerto Rico,
en þar var æfð innrás. Þessi eyja
svipar mjög til Grenada, hvað
staðarhætti varðar.
Nákvæmlega hvaða aðgerðir
eru í bigérð er auðvitað ekki vitað
með vissu. En gegn hverju
þessar hernaðaraðgerðir og laun-
ráð beinast er deginum ljósara:
»Þessar aðgerðir beinast gegn
verkamönnum og bændum í E1
Salvador sem hafa náð umtals-.
verðum árangri í baráttu sinni til-
að koma blóðidrifinni herstjórn-
inni á kné.
»Þessar aðgerðir beinast gegn
verkamönnum og bændum í
Nicaragua sem halda áfram að
setja hagsmuni sína ofar gróðra-
hagsmunum heimsvaldasinn-
anna og burgeisanna í Nicragua.
»Þessar aðgerðir beinast gegn
verkamönnum og bændum á
Grénada, sem eru að skipuleggja
sig og safnast til baráttu til að
koma á nýju þjóðskipulagi, sem
hefur það markmið að mæta
brýnum þörfum alþýðunnar á
Grenada.
»Þessar aðgerðir beinast gegn
verkeimönnum og bændum á
Kúbu sem neita að láta kaupa sig
til svika eða stökkva sér á flótta,
þrátt fyrir tuttugu og tveggja ára
samfelldar gagnaðgerðir og
þrýsting heimsvaldasinna, þar á
meðal dýrkeypt viðskiptabann,
skemmdarverk, innrás o^
sýklahernaður. Kúbönsk alþyða
heldur áfram að nota rétt sinn og
gangast við alþjóðlegri skyldu
sinni og aðstoðar bræður sína og
systur í Karabíska hafinu og
Miðameríku í baráttu þeirra
gegn heimsvaldasinhum og fyrir
því að ráða örlögum sinum sjálf.
Af mikilli elju hafa ráðamenn i
Bandaríkjunum reynt að undir-
búa hinn pólitíska jarðveg fyrir
frekari árásir á frelsisöflin bæði
með geigvænlegri lygaherferð
og staðlausum ákærum sem
beint er gegn ríkisstjórum Kúbu
og Nicaragua. En frá þessum
stjórnum eru vopn og vistir
Farabundo Martí Þjóðfrelsis-
fylkingarinnar ( FMLN) í E1
Salvador sögð komin.
Þessi áróðursherferð komst á
nýtt og hærra stíg eftir hernaðar-
lega og pólitiska sigra FMLN 15.
oktober. Þá eyðilagði hún
Puente De Oro brúna yfir Lempa
fljótið, sem er mjög mikilvæg frá
herfræðilegu sjónarmiði. Þetta
hefur vakið mikla athygli. Það
var fullyrt að slíkt fagmannsverk
hefði aðeins getað verið unnið af
sérstökum sérþjálfuðum
kúbönskum hersveitum, sem
með leynd hefðu verið fluttar til
E1 Salvador um Nicaragua.
Þótt ríkisstjórnir Kúbu og
Nicaragua hafi borið til baka
þessar ásakanir oftar en einu
sinni og lý'st því yfir að þetta séu
hreinar lygar stjórnarinnar í
Washington, þá hafa þessar
ákærur aðeins verið síendur-
teknar án nokkurra sannanna.
Nýjar ásakanir koma daglega
fram. 8. nóvember t.d. fullyrtu
formælendur hersins i E1
Salvador að flugvélar málaðar i
rauðu og svörtu, sem eru litir
Sandinista i Nicaragua, hefðu
sést fljúga með vistir til FMLN-
sveita.
Á bak við þær ógnvænlegu her-
naðaraðgerðir sem Washington-
stjórnin er nú með i undirbún-
ingi, býr ein sáraeinföld stað-
reynd: Allt annað hefur gersam-
lega brugðist í þvi að stöðva
byltingaruppreisnina i Mið-
ameriku.
Þrátt fyrir stórfellda hernaðar-
aðstoð við miskunnarlausa her-
stjórn i E1 Salvador og þrátt fyrir
að meir en 11 þúsund
hafi verið myrtir þar á fyrstu níu
mánuðum ársins 1981, - þá hefur
herinn í E1 Salvador ekki getað
stöðvað framsókn FMLN.
Bandaríkjastjóm er orðin sann-
færð um að hrun stjómarinnar i
E1 Salvador verður ekki hindrað,
né heldur uppreisn alþýðunnar
brotin á bak aftur, nema frekari
hemaðarihlutun utan frá komi
til.
Þrátt fyrir að Nicaragua hefi
verið beitt bæði pólitískum og
efnahagslegum þrýstingsaðgerð-
um til þess að neyða stjórnvöld
til að hverfa af þeirri braut að
standa vörð um hagsmuni vinn-
andi fólks_gegn butgeisunum, ^á
hefur ’ Sandinista-stjórnin staðið
fast við stefnu sina og hvað eftir
annað kveðið verkalýð og
bændur í Nicaragua til baráttu
og varðstöðu til að tryggja sigur-
inn. Aðaláhyggjuefni Banda-
ríkjastjómar er sú staðreynd að
alþýðan í Nicaragua hefur ekki
aðeins byggt upp með miklum
hraða her atvinnumanna, heldur
einnig öflugar alþýðuvarðsveitir
sem með hverjum deginum váxa
að styrk og getu til að veija
byltinguna. Bandarikjastjóm er
orðin sannfærð um að það er
engin leið að stöðva fæðingu
verkalýðsríkis í Nicaragua nema
með hernaðaríhlutun utan frá.
4
<