Neisti - 08.03.1984, Page 3
Ritstjórnargrein
Sama stétt, sama barátta:
Að ofan, Sandinistar berjast við gagnbyltingarsinna.
Að neðan, Ungurverkamaðurvið vinnu sína.
VIÐ
BREYTUM
BLAÐINU
Kæru lesendur!
Meö þessu blaöi fáiö þiö í hendur Neista af nýju tagi. Útlits-
breytingarnar liggja í augum uþpi og ég ætla ekki aö hafa mörg
orö um þær. Okkur sem stöndum aö þessu blaði, finnst aö
þetta útlit hæfi betur efninu, en það sem var. Brot blaðsins hef-
ur um margra ára skeið miðast við áróðursblað, sem tæki virk-
an þátt í atburðum dagsins en þannig hefur blaðið ekki verið.
Það hefur fremur leitast við aö útskýra atburöi líðandi stundar
eftir aö þeir gerðust, og benda lesendum á framtíðarmarkmið,
sem þyrfti aö vinna aö hér og nú.
Þetta mun blaðið gera áfram. En við viljum einnig leggja
meiri áherslu á að mennta lesendur, ef svo má segja. Við reyn-
um að koma á framfæri nauðsynlegum upplýsingum og skýra
samhengi atburða, svo það megi verða sérhverjum lesanda að
sem mestu liði í hversdagslegri baráttu hans hvarsem hann er
niðurkominn.
Málflutningur okkar á víðtækan hljómgrunn, þær hugmyndir
sem við tölum fyrir og þau rök sem við færum fyrir þeim. Þenn-
an málflutning ætlum við að dýpka í Neista og skýra betur því
við erum sannfærðir um það, að bitrasta vopn verkalýðsins
gegn atvinnurekendavaldinu er skýr stéttarvitund, sem byggir
ekki aðeins á heilbrigðri andstyggð á borgarastóttinni og mál-
pípum hennar, heldur og rökstuddri þekkingu og skilningi á
innviðum auðvaldsþjóðfélagsins.
Fjölmargir gera sér nú orðið grein fyrir þeim nánu tengslum
sem eru milli stjórnmálastefnu og árangurs í verkalýðsbarátt-
unni. Stéttasamvinnustefnan og ráðherrasósíalisminn eru
gjaldþrota. Við munum því leggja mikla áherslu á pólitíska
endurreisn verkalýðshreyfingarinnar, sem byggir á þátttöku og
valdi almennra félaga hennar um öll málefni, smá og stór. And-
óf okkar við makk verkalýðsforingjanna mun ekki setja síður
svip á blaðið en baráttan gegn auðvaldinu.
Þetta er rökrétt í okkar augum, því við álítum að árangursrík
barátta gegn atvinnurekendum, fjármálavaldi og íhaldi geti því
aðeins átt sér stað, að veigamiklar breytingar verði á stefnu og
skipulagi verkalýðssamtakanna.
Byltingin í Mið-Ameríku er orðin sá meginás, sem stéttabar-
áttan í heiminum snýst um. Eftir innrás Bandaríkjanna í Gren-
ada þarf enginn að efast um fyrirætlanir Bandaríkjastjórnar á
svæðinu. Það er brýn nauðsyn, að sérhver stéttabaráttusinni
í verkalýðshreyfingunni geri sér grein fyrir þessu og leggi sitt
af mörkum. Við munum í Neista leggja okkur fram við að flytja
efni, sem skýrir alþýðubyltinguna í Mið-Ameríku, og lesendur
geta hagnýtt sér í stuðningsstarfinu. Jafnframt því munum við
segja fréttir af stuðningsstarfi hér og erlendis.
Vonandi fellur hinn nýi Neisti lesendum vel í geð. Við teljum
sjálfir, að við gerum meira gagn með blaðinu nú en nokkru
sinni fyrr, og að málflutningur þess eigi meira erindi við fleiri
lesendur nú en var. Útgáfa þessa eina baráttublaðs á íslandi
hefur ávallt verið erfið og afrek útaf fyrir sig að hafa haldið því
úti öll þessi ár. En nú viljum við gera betur og heitum á lesend-
ur að greiða götu okkar, sýna blaðið og hvetja aðra til að gerast
áskrifendur og lesa Neista. _
3