Neisti - 08.03.1984, Síða 31
Nicaragua
►
Meginmarkmiðið er að tryggja yfir-
burði Bandaríkjanna í þessum heims-
hluta, að efnahagsleg og pólitísk völd
verði í höndum kapítalista, stjórjarða-
eigenda og bandarískra fyrirtækja.
Eining og endurreisn
Vandamál Bandaríkjastjórnar er að
FSLN vinnur að öllum líkindum yfir-
burðasigur í kosningunum. Það mun
þýða að byltingarþróunin getur haldið
áfram og eining þjóðarinnar hefur
styrkst. Leiðtogar FSLN hafa lýst því yf-
ir að slík þróun muni ekki þrengja póli-
tískar umræður þjóðþingsins, þar sem
fulltrúar ólíkra skoðana munu eiga sæti.
Enn er ekki ljóst hvaða völd Ríkisráðið
eigi að fara með. í því eiga nú sæti full-
trúar ýmissa fjöldahreyfinga, stjórn-
málaflokka og alls kyns hagsmunaaðila,
svo sem fulltrúar einkareksturs ýmis
konar.
„Kosningarnar tákna hvorki upphaf
né endi lýðræðisý sagði Daniel Ortega á
Ríkisráðsfundi í desember síðastliðnum.
Hann kvað það byrja með fjöldaþátt-
töku í ákvörðunarferlinu og endurreisn
efnahagslífsins, en í henni fælust meðal
annars umbætur í landbúnaði og þróun
mennta- og heilbrigðiskerfisins.
Kosningarnar til þjóðþingsins munu
gera Reagan-stjórninni erfiðara fyrir að
styðja þá hópa sem stunda hryðjuverka-
starfsemi gegn Nicaragua. En pólitískur
og efnahagslegur þrýstingur mun engu
að síður halda áfram.
í landi þar sem innrás er yfirvofandi
og efnahagsþrýstingurinn ógnvænlegur,
er haldið uppi lýðræðislegum umræðum
og kosið milli ólíkra stjórnmálaafla. Sú
staðreynd er tromp á hendi Sandinista.
El Salvador________________________________________________
Byltingaröflin stefna á flokk
Eftir Sólveigu Ásgrímsdóttur.
Þann 16. desember sl. sendi yfir-
stjórn FMLN frá sér yfirlýsingu þar
sem lýst var yfir því að sameining
þeirra fimm hreyfinga sem mynda
FMLN í einn flokk stæði fyrir dyr-
um. Rökin fyrir því að þessar hreyf-
^ ingar hafa haldið sjálfstæði sínu
innan FMLN hafi smám saman ver-
ið að hverfa. Hins vegar hefur þörfin
á því að þær sameinuðust í einum
flokki sífellt vaxið.
Yfirlýsing forystu FMLN um samein-
ingu fylgdi i kjölfar ákveðinnar þróunar,
sem verið hefur innan byltingarhreyfing-
ar í E1 Salvador. Sérstaklega veldur þar
miklu þróun mála innan FPL. FPL hef-
ur ráðið miklu innan FMLN á undan-
förnum árum. Þrátt fyrir að hreyfing-
arnar fimm skyldu vera jafnar innan
FMLN þá lá það orð á að FPL væri jafn-
ari en hinar fjórar. Aðal forystumaður
FPL var fram til síðasta árs, Salvador
Cayetano Carpio og mótaði hann mjög
stefnu FPL um árabil. Pólitík Carpios
var mikil hindrun í veg fyrir sameiningu
byltingarhreyfinganna, þrátt fyrir að
pólitísk þróun stefndi í átt til sameining-
ar og kröfur um sameiningu yrðu æ há-
p værari.
Snemma á síðasta ári hélt forysta FPL
fund, þar sem samþykkt var að leiðrétta
ranga pólitík samtakanna og snúa baki
við fyrri vinnubrögðum, sem einkennd-
ust af klíkuskap og pólitískum hroka
FPL í garð hinna samtakanna innan
FMLN. Nú skildi unnið heiðarlega að
raunverulegri sameiningu byltingarafl-
anna í E1 Salvador.
I Tveir forystumenn FPL voru ósam-
31