Stéttabaráttan - 25.04.1973, Page 3
3
HRÆÐSLA SMÁBORGAR-
ANNAVIÐ KOMMÚNISMANN
Oft hefur KSML verið legið á hálsi af henti-
stefnusósíalistum fyrir að "vilja ekki koma til
samstarfs" og fyrir að "vera hræddir við banda-
menn sína" og þar fram eftir götunum. Við höf-
um verið sakaðir um einangrunarstefnu og
kreddufestu.
Það er auðvitað gott að verða fyrir árásum úr
þessari átt, því eins og Maó sagði, sýnir það,
að okkur hefur tekizt að aðgreina pólitík okkar
frá þeim, sem þrátt fyrir sínar "sósíalísku"
upphrðpanir eiga ekkert við sósíalismann skylt.
En þeim, sem mest hefúr verið í munn aðbenda
á þessa "galla" KSML eru einnig þeir hinir
sömu, sem eiga eftirfarandi' afrekaskrá:
Þeir félagar KHML, sem voru í
Fylkingunni er marxisku-leninisku
námshóparnir hófu starf, voru reknir
úr Fylkingunni fyrir "að starfa í and-
stöðu við yfirlýsta stefnu samtakanna".
Sannaðist þar að kommúnisk pólitík átti
ekki heima í Fylkingunni og mun aldrei
eiga.
Forsvarsmenn Víetnamnefndarinnar
boðuðu til útifundar 22. apríl "72.
Reynt var að halda fundinum leyndum
fyrir KHML þar sem pólitik okkar í
Víetnammálinu (alþjóðahyggja öreig-
anna) féll ekki í hið borgaralega kram
þeirra nefndarmanna.
A Glæsibæjarfundinum, þar sem sam-
tök herstöðvaandstæðinga voru stofnuð,
var fulltrúa KHML sagt að ræða ekki
pólitík en tala sem "maður".
l.maí 1972 hugðist KHML ganga til
samstarfs við Sósíalistafélag Reykja-
Víkur um blaðaútgáfu. Arangurinn varð
ströng ritskoðun á greinum KHML og
algjör neitun á að fallast á nokkuð það
sem fulltrúar KHML höfðu til málanna
að leggja.
I>egar ganga herstöðavaandstæðinga
var í júní 12 var reynt að hindra KHML
í að ganga undir eigin borðum, talað
var um að fleygja þeim úr göngunni en
smáborgararnir bliknuðu sem von var.
Víetnamnefndin boðaði fúlltrúa KSML
á fund til að ræða útgáfu "Samstöðu"
(málgagn Vfetnamnefndarinnar). Þegar
fulltrúar KSML mættu sátu fulltrúar
Víetnamnefndarinnar á öðrum fundi og
sinntu ekki boðuðum fundi. Síðan ráku
þeir upp ramakvein um að KSML vildi
ekki koma til samstarfs.
Er síðasta ASl þing stóð yfir birtu
nokkur félög yfirlýsingu til þingsins.
ifylkingin , sem var frumkvöðull að
yfirlýsingunni neitaði að láta KSML
vera með þrátt fyrir að aðrir sem að
þessu stóðu færu fram á slíkt.
Fylkingin boðaði til samstarfs um
"Rauða vei-kalýðseiningu" 1. maí 1973.
IT upphafi var passað vel uppá að KSML
kæmi hvergi nærri, en er meirihluti
samkrullsmannanna vildi fá KSML með
guggnuðu [fylkingargaukarnir á andstöðu
sinni og féllust á að boða KSML á fund.
Framkvæmd "samstarfsins" lýsir vel
vilja þessara manna til að fela komm-
úniska pólitík fyrir verkalýðnum.
Eftir að Fylkingar-"fræðimenn" höfðu
setið við og samið plagg sem leggja
skyldi til grundvallar "samstarfinu"
var KSML boðið til fundar eftir að hafa
fengið fimm tíma undirbúningstíma til
að kynna sér afrakstur yfirsetunnar.
A fundinum var síðan lýst yfir að
plaggið væri gott og gilt og aðeins þyrfti
að gera nokkrar orðalagsbreytingar.
Er fulltrúar KSML sýndu fram á smá-
borgaralegt innihald grundvallarins tóku
smáborgararnir það til bragðs að reyna
setja málið í nefnd þar sem þeir töldu
sig hafa betri möguleika til að makka
með pólitíkina.
I>annig var "samstarfsvilji" þessara
"verkalýðsvina" aldrei annað en tilraun
til þess að fá KSML í slagtog með sér
1. maí og skilyrðin voru að KSML
skyldi láta af byltingarsinnaðri stefnu
sinni og skrifa undir smáborgaralega
samsuðu. Síðan munu þeir auðvitað
básúna það að KSML hundsi allt sam-
starf og séu einangrunarsinnar og að
ekki þýði að bjóða þeim það framar.
Allt þetta sýnir svo ekki verður um villzt, að
þessar "hetjur" hræðast ekkert meira en ein-
arða kommúníska stefnu verkalýðsins. Alls
staðar reyna þeir að þagga niður kommúnískan
áróður, alltaf gengur þeirra eigin áróður út á
að fela framtíðarhagsmuni verkalýðsins í smá-
borgaralegu gjammi þeirra.
Þeir eru því hinir raunverulegu sundrungsmenn
það eru þeir, sem vilja skilja að verkalýðinn og
sðsíalismann. Það eru þeir, sem eru einangrun
arsinnar, því þeir vilja einangra baráttu verka
lýðsins innan ramma hins löglega í auðvalds-
þjóðfélaginu. Það eru þeir, sem eru kreddu-
meistarar, er þeir koma dröslandi með kreddui
sínar um "betra auðvald-skipulagt auðvald".
Verkamenn, snúum baki við hentistefnusósía-
listunumí
Reisum merki kommúnismans á ný á Islandi,
- takið þátt í starfi KSML fyrir uppbyggingu
kommúnistaflokksl
KSML haslar sér völl á Akureyri
Mikill meirihluti íbúa Akureyrar er verksmiðju-
öreigar. Þetta hefur jafnan þýtt jákvæðan
grundvöll fyrir kommúnískan árðður. Sem
dæmi um þetta má benda á, að fylgi kommún-
ista var mjög mikið á meðan Kommúnista-
flokkurinn var og hét, og undirforystu þeirra
sigraði verkalýðurinn í Nóvudeilunni 1933.
Mikil gróska var í starfi kommúnista hér, þar
til kratar náðu yfirtökunum í.verkalýðsfélög-,
unum sem og annars staðar á landinu.
Nú undir forystu þeirra, einskorðast baráttan
við krónu meira eða minna á tímann.
Til gamans má benda á eina samþykkt, sem
iessi kratagerpi í forystu Einingajr létu frá
sér fara. Hún var þess efnis, að skorað var
á bæjarstjórmna að minnka vínveitingar í
veizlum sínum.
Undir þessari krataforystu er öreigastéttin
ófær um að leiða baráttuna gegn kúgurum sínum
til lykta á farsælan hátt.
1 menntaskðlanum hér hafa ýmsar "vinstri"
grúppur verið "starfandi", svo sem "Rauða
sellan", "Krítíska grúppan" og nú síðast "Sam-
tök kommúmsta á Akureyri".
Myndun þessara grúppa hefur verið viðleitm
námsmanna til pólitísks starfs, en þessar
grúppur hafa lognazt út af. Hvað nýjustu grúpp-
una, "SKAA", snertir, er hún enn uppistand-
andi, en virðist eiga skammt ólifað.
Hvaða mistök hafa þessir menntaskólanemar
gert, sem af miklum ákafa hafa lýst sig komm-
únista? Þeir hafa einangrað sig við dægurmál
skólans, en engu sinnt því verkefni að færa
þekkingu sína út fyrir veggi skólastofnunarinn-
ar.
Nýjasta grúppan, SKAA, er stofnuð upp úr
námshópum þjððmáladeildar skólafélagsins,
sem starfað hafa innan við 3 mánuði. Þessi
samtök, sem nú þegar eru í andarslitrunum,
megnuðu aldrei að hefja neitt skipulegt starf.
Höparnir einangruðu námið frá starfinu.
Snemma fór að bera á ágreiningi innan náms-
hópanna um afstöðuna til KSML. Meirihluti
þeirra, sem afstöðu tóku, fylgdu KSML.
Stuðningsmenn KSML urðu fyrir aðkasti frá
Fylkingarsinnum og öðrum smáborgaralegum
vinstri mönnum. Helztu rök þessara smáborg-
ara gegn stuðningsmönnum KSML voru, að
ekki væri hægt að selja Stéttabaráttuna, ef
maður vissi ekki allt um sðsíalismann.
Enn önnur tilraun Ifylkingarsinna til að vinna
gegn KSML var að stofna samtök vinstri
manna í MA, þar sem þau skilyrði voru sett,
Utbreiðsla kommúnísks áróðurs hefur verið hafin á ný á Akureyri
að meðlimir félagsins mættu ekki vera undir
flokksaga í öðrum pólitískum samtökum.
Þessu unnu stuðningsmenn KgML eindregið
gegn og fóru með sigur af hólmi.
Stuðningsdeild KSML var stofnuð 14. febrúar
í blindbyl og rafmagnsleysi. Fljótlega rofaði
til í kommúnísku starfi hér. Stuðmngshópur-
inn hófst handa við að færa fræðikenninguna
út til verkalýðsins. Móttökur verkalýðsins á
áróðri KSML hafa verið góðar, en borgararnir
og smáborgararmr hafa kvartað undan óþæg-
indum. Aðventistar, hvítasunnumenn og sölu-
menn Samstöðu hafa gert árangurslausar til-
raumr til að trufla áróðursstarf KSML.
Skipulagt starf hefur nú verið í 2 mánuði, með-
limum hefur fjölgað, sala á Stéttabaráttunm,
Rauða Fánanum og bæklingum KSML hefur
aukizt. 1 öllu starfi okkar höfum við lagt
áherzlu á að tengja námið starfinu og starfið
náminu. Þannig beitum við auldnm þekkingu
umsvifalaust í starfinu og aukum með þvf
pólitískan þroska hópsins stig af stigi.
Nú nýlega var fyrsta námshóp KSML hleypt af
stokkunum og markar það tímamót í sögu bylt-
ingarstarfs á Akureyri.
VERKAFOLK, FRAMSYNIR NAMSMENN OG
AÐRffi STUÐNINGSMENN ÖREIGASTÉTTAR-
INNAR. TAKIÐ ÞATT 1 BYLTINGARSINNUÐU
NAMSSTARFI KSML.
Snúið ykkur til Guðmundar A. Sigurjónssonar,
Þðrunnarstræti 135, Pósthólf 115, Akureyri.
NIÐUR MEÐ KRATAFORYSTUNA í VERKA-
LYÐSFÉLÖGUNUM.
LIFI EINING VERKALYÐSINS A GRUNDVELLI
KOMMUNISMANS.
LÆRUM AF STÉTTABARATTUNNI OG GERUM
ÞEKKINGU OKKAR AÐ VOPNI TIL FLOKKS-
MYNDUNAR.
Með baráttukveðju,
Stuðningshópurinn á Akufeyri.
Starfsemi KSML
á Neskaupstað
Kommúnískt námsstarf á Neskaupstað
Kommúnistasamtökin m-1 hafa nú haslað sér
völl utan höfuðborgarsvæðisins. A Neskaup-
stað hefur í vetur verið starfandi námshópur á
vegum samtakanna. Stéttabaráttan, ásamt
öðrum þeim ritum, er KSML hafa gefið út,
hefur verið boðin fbúum Neskaupstaðar til kaups
frá því í september.
Námshópurinn hefur lagt stund á nám í grund-
vallaratriðum marxismans-lenínismans sam-
kvæmt námshring Kommúnistasamtakanna og
hefur tekið miklum framförmn, hvað snertir
fræðilegan styrkleika. Jafnframt náminu hafa
félagarnir gerzt virkir þátttakendur í starfinu.
Salan hefur gengið mj ög vel og er áberandi,
hve mikill hluti kaupenda eru verkamenn.
Ifyrri part vetrar var Stéttabaráttan nær ein-
göngu seld á götum kaupstaðarins á föstudags-
eftirmiðdögum, þegar annríki í verzlunum
hefur verið hvað mest, en eftir áramót var
tekin upp sú nýbreytni að ganga með blaðið í
hús og bjóða það kaupstaðarbúum ásamt öðrum
ritum samtakanna. A þennan hátt seldust 100
eintök af 2. tbl.' Stéttabaráttunnar. Jafnframt
þessu hafa félagarnir safnað f Víetnamsöfnun
KSML og hafa safnazt nálega 13 þús. kr.
I námshópnum er hvorutveggja aðkomufólk,
sem vimiur hér á staðnum, og starfandi verka-
menn frá Neskaupstað.
Til þess að hægt sé að byggja upp traustan og
velskipulagðan kommúnistaflokk með sterkum
deildum hvarvetna um landið, sem séu leiðandi
afl verkalýðsins í stéttabaráttunni, verður hann
að grundvallast á þátttöku stéttvfsra verka-
manna á öllu landinu.
Um kommúnískt starf hefur ekki verið að ræða
á Norðfirði síðan Norðfjarðardeild Kommún-
istaflokks Islands leið undir lok, en forystu-
menn hennar, Bjarm Þórðarson, Lúðvík Jó-
sepsson og Jóliannes Stefánsson hafa nú allir
krækt sér í slík embætti, að þeir hafa fyrir
löngu yfirgefið baráttu verkalýðsins fyrir rétt-
indum sínum, en ganga þess í stað erinda
borgarastéttarinnar. Það er ekki fyrr en nú,
að tekizt hefur að reisa merki öreigastéttar-
innar að nýju á Norðfirðii
Alþýðubandalagið (áður Sósíalistaflokkurinn)
hefur verið öflugasti stjórnmálaflokkurinn á
Neskaupstað í áratugi. En fylgi hans meðal
verkalýðsins virðist fara dvínandi. A fundum
Alþýðubandalagsins eru það því sem næst ein-
göngu kapítalistar og borgaralegir embættis-
menn, sem hafa orðið. Verkamenn eru í mikl-
um minnihluta á slíkum fundum.
Við hvetjum alla stéttvísa vei’kamenn á Norð-
firði og aðra stuðningsmenn öreigastéttarinn-
ar til að taka afstöðu gegn stéttasamvinnu-
pólitík Alþýðubandalagsins og fylkja sér undir
merki öreigastéttarinnar og sósfalismans
með því að taka þátt í starfi stuðningsdeildar
KSML á Norðfirði.
Ilafið samband við Sigurð Jón Olafsson,
heimavist Gagnfræðaskólans, sími 7330.
Þeir, sem óska eftir að fá keypta aðra ritlinga
KSML eða gerast áskrifendur geta einnegin
snúið sér til sama aðila.
Baráttukveðjur,
Stuðmngsdeild KSML á Neskaupstað.
Hafió samband
vió KSML
AKUREYRI: Hafið samband við fulltrúa
KSML: Guðmund Armann Sigurjónsson,
Þóruimarstræti 135, P.O. Box 115.
ESKIFJÖRÐUR: Umboðsmaður fyrir útgáfu-
efni KSML: Elías Kristinsson, Lambeyi’ar-
braut 10.
NESKAUPSTAÐUR: Fulltrúi KSML þar er:
Sigurður Jón Olafsson, Ileimavist Gagnfræð-
askólans, P.O. Box 26.
REYKJAVIK: KSML Skólastræti 3b, eða
pósthólf 1357.
SELFOSS: Fulltrúi KSML þar er Jóhannes
Gunnarsson, Austurvegi 65.
SIGLUFJÖRÐUR: Umboðsmaður Stéttabar-
áttunnar og annars prentaðs máls samtak-
aima: Oskar Garibaldason, Hvanneyrarbraut
25.
SKALHOLT: Fulltrúi KSML þar er Ottar
Felix Hauksson, Lýðháskólanum Skálholti.
DJALEKTISKA
OG
SÖGULEGA
efnishyggjan
Díalektísk
°9
.Wu[e$
efnishyggja
kSML hafa hafið útgáfu á efni grundvallar-
námshrmgsins. Ifyrsti bæklingurinn er
Dfalektíska og sögulega efnishyggjan eftir
Stalfn úr "Sögu Kommúnistaflokks Ráð-
stjórnarríkjanna (B)", sem er lesefni 2.
námsfundar. Verð bæklingsins ér 100 kr.
Einnig verða aðrir námsfundir gefnir út
í bæklmgsformi og sá næsti er um flokk-
inn; 8. námsfundur.
Aðrir væntanlegir bæklingar á vegum
KSML eru : Ileimsvaldastefnan og klofn-
ingur sósíalismans eftir Lenín og
Eldlína hinnar sósíalísku frelsisbaráttu -
Saga Víetnam stríðsins.